FERÐIR TIL ÁSTRALÍU

Ævintýrin þín í Ástralíu byrja hér
Road trips, surf, stórbrotin náttúra og ógleymanleg upplifun á einum vinsælasta áfangastað bakpokaferðalanga.





Road trip um Ástralíu
Ástralía og road trips fara einfaldlega saman. Hér bíða endalausar strandlengjur, stórbrotnir þjóðgarðar og ævintýri við hvert horn. Það er fátt sem jafnast á við að kanna landið í campervan eða húsbíl, ferðast á eigin hraða og vakna á nýjum stað á hverjum degi. Vaknaðu við sjávarútsýni, eltu sólsetrin og uppgötvaðu faldar perlur sem flestir ferðalangar keyra fram hjá. Hvort sem leiðin liggur um austurströndina, vesturströndina eða hið goðsagnakennda Red Centre, þá byrja stærstu ævintýrin í Ástralíu á opnum vegi.

Vaknaðu við sjávarútsýni.
Þarftu aðstoð við að skipuleggja ferð til Ástralíu?
Ferðasérfræðingarnir okkar hjálpa þér að móta ferðahugmyndina, velja áfangastaðina og skipuleggja ferð sem hentar þér.
Það er alltaf ástæða til að koma aftur
Austurströndin
Frá borgarlífi í Sydney til afslappaðra strandbæja og hitabeltisævintýra í North Queensland. Austurströnd Ástralíu er uppáhald margra sem heimsækja Ástralíu í fyrsta sinn. Lærðu að surfa, sjáðu kóalabirni, sigldu um Whitsundays og snorklaðu í Great Barrier Reef. Hvort sem þú ferð í road trip, tekur rútu eða blandar þessu saman, þá er Austurströndin stútfull af ógleymanlegum upplifunum og mörgum tækifærum til að hitta aðra ferðalanga.
Snorkl í Great Barrier Reef.
Sjáðu villt dýralíf á leiðinni.
Sjáðu hina ikonísku kletta úr lofti.
Af hverju að velja KILROY fyrir næstu ferðina þína
30+ ára reynsla
Yfir 30 ára reynsla, sérþekking og traustir samstarfsaðilar okkar um allan heim gera þér kleift að ferðast með öryggi og sjálfstrausti.
Persónuleg ferðaráðgjöf
Ferðaráðgjafi sem kynnist þínum óskum, draumum og markmiðum. Frá fyrstu hugmynd að heimkomu erum við með þér í hverju skrefi á leiðinni.
24/7 neyðarsími
Ef eitthvað óvænt kemur upp á er neyðarsíminn okkar opinn allan sólarhringinn. Ferðasérfræðingar KILROY eru til staðar fyrir þig, hvar og hvenær sem er.
KILROY leiðin
Bestu ferðirnar enda ekki þegar þú kemur heim. Þær lifa áfram í upplifunum, sögum og minningum sem fylgja þér lengi eftir að ferðinni lýkur.
Algengar spurningar
Ertu með spurningar? Við erum með svörin. Hér eru nokkrar spurningar sem ferðalangar spyrja oft áður en þeir leggja af stað til Ástralíu!
Austurströndin er vinsælasti kosturinn fyrir fyrstu ferð til Ástralíu, með blöndu af frægum ströndum, þekktum áfangastöðum og góðum samgöngum.
Algjörlega. Margir ferðalangar fara í road trip eftir Austurströndinni og fljúga svo til staða eins og Uluru, Perth eða Melbourne til að fá dýpri Ástralíuupplifun.
Já, ef þú ert til í ævintýri á vegum! Campervan og húsbílar eru auðveldir í akstri, til í alls konar stærðum og gerðum og margir velja Ástralíu fyrir sitt fyrsta road trip ævintýri.
Dýralífið í Ástralíu fær oft mikla athygli, en flestir ferðalangar lenda aldrei í vandræðum. Fylgdu ráðleggingum heimamanna, sýndu náttúrunni virðingu og líklegra er að þú sjáir kengúrur, kóalabirni og höfrunga en eitthvað hættulegt.














