BAKPOKAFERÐALÖG
Sjá allar ferðir
Bakpokaævintýri um allan heim
Hvort sem þú tekur námspásu, starfsfrí eða leggur af stað í ævintýri ævinnar, hjálpum við þér að skipuleggja hið fullkomna bakpokaferðalag.
Af hverju að fara í bakpokaferðalag?
Bakpokaferðalag er miklu meira en venjulegt frí. Þetta snýst um frelsið til að ferðast á þínum hraða, kynnast nýjum menningarheimum og safna ógleymanlegum minningum á leiðinni. Hvort sem þú ert að skipuleggja námspásu, starfsfrí eða stórt ævintýri á milli lífskafla, þá gefur bakpokaferðalag þér sveigjanleika til að skoða heiminn á þínum eigin forsendum.
Hvort sem það eru hitabeltisstrendur, líflegar borgir, fjallgöngur eða ævintýri með villtum dýrum, þá bíður þín eitthvað nýtt á hverjum degi. Bakpokaferðalag snýst um að taka óvæntum atburðum fagnandi og láta ferðadraumana verða að lífsreynslu sem breytir þér.

Bakpokaferðalag í Suður-Afríku
Þarftu aðstoð við að skipuleggja bakpokaferðalag?
Ferðasérfræðingarnir okkar hjálpa þér að móta ferðahugmyndina, velja áfangastaðina og skipuleggja ferð sem hentar þér.
Bakpokaáfangastaðir um allan heim
Allt frá hitabeltiseyjum og líflegum borgum til epískra road tripa og ævintýra með villtum dýrum. Heimurinn er fullur af ógleymanlegum bakpokaævintýrum.
Suðaustur-Asía er í miklu uppáhaldi hjá bakpokaferðalöngum vegna hagstæðs kostnaðar, fjölbreyttrar menningar og góðra ferðaleiða.
Ástralía og Nýja-Sjáland laða að sér ferðafólk með stórbrotinni náttúru, útivistarævintýrum og frelsinu til að ferðast á eigin vegum.
Rómanska Ameríka heillar með litríkri menningu, fornum minjum og fjölbreyttri náttúru, frá ströndum og fjöllum til regnskóga.
Afríka býður upp á magnaðar dýralífsupplifanir, safaríferðir og ævintýri sem gleymast seint.
Norður-Ameríka er þekkt fyrir stórkostleg road trip, þjóðgarða í heimsklassa og einstaka blöndu af borgarlífi og útivist.

Tæland er klassískur áfangastaður fyrir bakpokaferðalög
Vinsælar upplifanir í bakpokaferðalögum
Bakpokaferðalag snýst um að skapa ferð sem passar við þinn ferðastíl. Hvort sem þú sækist eftir ævintýrum, menningarupplifunum, persónulegum vexti eða einfaldlega frelsinu til að kanna heiminn, þá eru ótal leiðir til að gera ferðina ógleymanlega.
Margir velja að ferðast um Suðaustur-Asíu, fara í road trip um Ástralíu eða Nýja-Sjáland, kanna líflega menningu Suður- og Mið-Ameríku eða upplifa stórbrotið dýralíf Afríku. Aðrir tengja saman marga áfangastaði og heimsálfur í eitt stórt ævintýri.
Ef þig langar í blöndu af sjálfstæði og félagsskap eru hópferðir frábær kostur. Þær gera þér kleift að upplifa nýja áfangastaði með öðrum ferðalöngum og kynnast fólki á leiðinni.
Vinsælar upplifanir í bakpokaferðalögum eru meðal annars:
Eyjahopp og strandævintýri
Epísk road trip og húsbílaferðir
Dýralífsupplifanir og safaríferðir
Gönguferðir og útivistarævintýri
Sjálfboðastörf og ferðalög með tilgang
Hópferðir og ævintýraferðir
Að læra nýja hæfileika eins og surf, köfun eða siglingar

Bakpokaferðalag í Nýja Sjálandi
Algengar spurningar
Að skipuleggja lengri ferð vekur oft margar spurningar. Hér eru nokkur atriði sem gott er að vita áður en þú leggur af stað í bakpokaferðalag.
Bakpokaferðalag er ferðastíll sem snýst um sveigjanleika, ævintýri og að skoða marga áfangastaði, oft yfir lengri tíma. Bakpokaferðalangar gista yfirleitt á ólíkum stöðum og skapa sína eigin ferðasögu eftir áhuga og fjárhag.
Byrjaðu á að ákveða hvert þig langar að fara, hversu lengi þú vilt ferðast og hvaða upplifanir skipta þig mestu máli. Hugleiddu samgöngur, gistingu, ferðatryggingar og fjárhagsáætlunina þína. Ef þú veist ekki hvar þú átt að byrja, hjálpa ferðasérfræðingarnir okkar þér að setja saman bakpokaferðalag sem passar við ferðadraumana þína, budgetið og ferðastílinn.
Vinsælustu áfangastaðirnir fyrir bakpokaferðalög eru meðal annars Tæland, Víetnam, Indónesía, Ástralía, Nýja Sjáland, Suður-Afríka, Kosta Ríka, Mexíkó, Perú og Kólumbía. Besti áfangastaðurinn fer eftir áhuga, fjárhagsáætlun og ferðastíl hvers og eins.
Verðið á bakpokaferðalagi fer eftir áfangastað, ferðalengd og því hvernig þú vilt ferðast. Suðaustur-Asía og sumir hlutar Rómönsku Ameríku eru vinsælir hjá þeim sem vilja ferðast á minna budgeti, á meðan ferðir til Ástralíu og Nýja Sjálands eru yfirleitt dýrari. Við getum hjálpað þér að skipuleggja ferð sem passar við þitt budget.
Algjörlega! Að ferðast ein/n í bakpokaferðalagi er ein vinsælasta leiðin til að sjá heiminn. Þú ferðast á þínum eigin hraða, ákveður hvert þú ferð og hittir oft aðra ferðalanga á leiðinni. Margir vinsælir áfangastaðir eru með öflugu bakpokaferðalagasamfélagi og félagslega gistimöguleika sem gera auðvelt að kynnast fólki. Þú getur líka tekið þátt í hópferð á leiðinni og notið þess besta úr báðum heimum: frelsisins að ferðast sjálf/ur og félagsskaps annarra ferðalanga.
Bakpokaferðalag getur verið frá nokkrum vikum upp í heilt ár eða lengur. Margir ferðalangar velja ferðir sem taka einn til þrjá mánuði, á meðan aðrir taka sér námspásu eða lengra hlé frá vinnu til að kanna fleiri lönd og heimsálfur.
Sýnir 4 / 6 niðurstöður
Þú ættir að fara í bakpokaferðalag ef...
...þú finnur fyrir þörf á breytingu
Stundum þarftu ekki bara að fara í enn eitt fríið. Þú þarft alvöru pásu frá daglegu lífi til að finna út hvað kemur næst.
...þig hefur alltaf langað að ferðast lengur
Bakpokaferðalag snýst ekki um að flýta sér. Það gefur þér frelsi til að taka þér tíma og upplifa staðina í alvöru.
...vilt meira en bara frí
Lærðu nýtt tungumál, gerðu sjálfboðastarf, taktu þátt í ævintýri eða prófaðu eitthvað nýtt.









