FERÐIR TIL BÓLIVÍU

Salar de Uyuni, Bólivía
Um áfangastaðinn

Velkomin á öfgamestu slóðir Suður-Ameríku

Frá saltflötum til fjallstinda. Bólivía er draumaáfangastaður fyrir ævintýragjarna ferðalanga. Hér bíða mögnuð náttúra, rík menning og magnaðar upplifanir.

Salar de Uyuni, Bólivía
Salar de Uyuni, Bólivía
La Paz, Bólivía

Náttúra sem virðist úr öðrum heimi

Ferð til Bólivíu er full af andstæðum. Hér geturðu ferðast frá hitabeltisregnskógum upp í kalda tinda Andesfjallanna á einni og sömu ferðinni. Ekki missa af Salar de Uyuni, stærstu saltflötum heims, þar sem útsýnið er næstum óraunverulegt. Mögnuð náttúra, einstakar gönguleiðir og upplifanir á ótroðnum slóðum gera Bólivíu að draumaáfangastað fyrir bakpokaferðalanga.

Eyðimerkursvæði í Bólivíu

Eyðimerkursvæði í Bólivíu

Þarftu aðstoð við að skipuleggja ferð til Botsvana?

Ferðasérfræðingarnir okkar hjálpa þér að móta ferðahugmyndina, velja áfangastaðina og skipuleggja ferð sem hentar þér.

Salar de Uyuni: Ótrúleg saltflöt í hjarta Bólivíu

Engin ferð til Bólivíu er fullkomin án viðkomu á vinsælasta áfangastað landsins, Salar de Uyuni. Salar de Uyuni er eitt magnaðasta landslag jarðar. Saltflatirnar liggja hátt á Altiplano-hálendinu í Bólivíu, í nærri 3.700 metra hæð, og mynda stærsta saltlendi heims sem teygir sig endalaust út við sjóndeildarhringinn.

Ef þú kemur hingað á regntímanum breytist þunnt vatnslag yfir saltflötunum í stærsta náttúrulega spegil heimsins, sjón sem telst meðal þeirra mögnuðustu í Suður-Ameríku. En þetta er meira en bara endalaus hvít víðátta. Hér finnur þú einnig litrík lón, tignarleg eldfjöll, gufandi goshveri, risavaxna kaktusa og landslag sem virðist helst eiga heima á annarri plánetu.

Altiplano-hálendið í kring hýsir nokkur af fallegustu vötnum Bólivíu. Blágræna Laguna Verde liggur við rætur Licancabur-eldfjallsins á meðan rauðleita Laguna Colorada dregur að sér þúsundir flamingóa. Litadýrðin stafar af steinefnum og þörungum sem skapa landslag sem á sér fáa líka.

Á svæðinu er einnig að finna jarðhitasvæðið Sol de Mañana, þar sem gufandi hverir, kraumandi leirpollar og eldfjallagufa skapa næstum yfirnáttúrulegt andrúmsloft. Í nágrenninu eru náttúrulegar heitar laugar sem eru fullkomnar til að ylja sér eftir kaldan morgun á hálendinu. Eyðimörkin í kring er auk þess þakin furðulegum klettamyndunum sem vindur og veður hafa mótað í þúsundir ára. Í Valle de las Rocas mynda risavaxnar steinmyndanir landslag sem minnir á villta vestrið, nema hér ertu í nærri 4.000 metra hæð yfir sjávarmáli.

Salar de Uyuni á regntímanum

Salar de Uyuni á regntímanum

Af hverju að velja KILROY fyrir næstu ferðina þína

30+ ára reynsla

Yfir 30 ára reynsla, sérþekking og traustir samstarfsaðilar okkar um allan heim gera þér kleift að ferðast með öryggi og sjálfstrausti.

Persónuleg ferðaráðgjöf

Ferðaráðgjafi sem kynnist þínum óskum, draumum og markmiðum. Frá fyrstu hugmynd að heimkomu erum við með þér í hverju skrefi á leiðinni.

24/7 neyðarsími

Ef eitthvað óvænt kemur upp á er neyðarsíminn okkar opinn allan sólarhringinn. Ferðasérfræðingar KILROY eru til staðar fyrir þig, hvar og hvenær sem er.

KILROY leiðin

Bestu ferðirnar enda ekki þegar þú kemur heim. Þær lifa áfram í upplifunum, sögum og minningum sem fylgja þér lengi eftir að ferðinni lýkur.

Besti tíminn til að ferðast til Bólivíu

Besti tíminn til að heimsækja Bólivíu fer eftir því hvað þú vilt upplifa, en almennt skiptist árið í þurrkatímabil og rigningartímabil.

Þurrkatímabilið (maí - október): Þetta er vinsælasti tíminn til að heimsækja Bólivíu, sérstaklega hálendið og Salar de Uyuni. Veðrið er yfirleitt þurrt og bjart, sem býður upp á frábærar aðstæður fyrir gönguferðir og stórkostlegt útsýni.

Rigningartímabilið (nóvember - apríl): Þá verður gróðursældin meiri og Salar de Uyuni breytist oft í risavaxinn náttúrulegan spegil. Þessi árstími skapar einstakar aðstæður fyrir ljósmyndun og upplifanir sem þú gleymir seint. Hafðu þó í huga að mikil rigning getur gert suma vegi erfiðari yfirferðar.

La Paz, Bólivía

La Paz, Bólivía

FAQ

Algengar spurningar

Hér höfum við tekið saman þær spurningar sem okkur berast oftast um ferðir til Bólivíu.

Bólivísk matargerð er spennandi blanda af hefðum frumbyggja landsins og spænskum áhrifum. Kartöflur, maís og kjöt eru algeng hráefni og víða má finna rétti sem hafa verið eldaðir í kynslóðir. Meðal þess sem þú ættir að prófa eru salteñas sem eru bragðmiklar bökur fylltar með kjöti og grænmeti, anticuchos sem eru grillaðir kjötbitar á teini og sopa de maní sem er rík og kremkennd jarðhnetusúpa.

Ef þig langar í eitthvað að drekka skaltu prófa api, heitan og sætan maísdrykk sem er vinsæll á köldum morgnum, eða chicha, hefðbundinn gerjaðan maísdrykk sem hefur verið hluti af menningu landsins í aldaraðir.

Rútur: Vinsælasta og ódýrasta leiðin til að ferðast innanlands í Bólivíu. Langar rútuleiðir tengja helstu borgir, en vegirnir geta verið krefjandi á rigningartímanum.

Innanlandsflug: Fljótlegasta leiðin milli borga eins og La Paz, Sucre og Rurrenabaque. Hentar vel ef þú vilt sleppa löngum rútuferðum um fjöllin.

Lest: Lestarkerfið er lítið, en fallegar leiðir eins og „Expreso del Sur“ bjóða upp á einstaka upplifun út um sveitirnar.

Leigubíll og colectivo: Deilibílar (colectivos) eru ódýr leið til að komast um borgirnar, á meðan leigubílar eru oft án gjaldmælis, en verðið er ákveðið fyrirfram.

Algjörlega! Bólivía er talin eitt ódýrasta landið í Suður-Ameríku og er því í miklu uppáhaldi hjá bakpokaferðalöngum og þeim sem ferðast á minna budgeti. Gisting, almenningssamgöngur, götumatur og veitingastaðir eru á frábæru verði.

Margra daga ferðir um Salar de Uyuni og ævintýri í Amazon-regnskóginum rata oft beint á bucket listann. Þó slíkar upplifanir kosti meira en daglegt ferðalag eru þær yfirleitt mjög hagkvæmar miðað við sambærileg ævintýri annars staðar. Bólivía er því frábær áfangastaður fyrir þá sem vilja fá sem mest út úr ferðasjóðnum sínum.

Death Road er líklega frægasti vegur Bólivíu. Vegurinn var byggður á þriðja áratug síðustu aldar til að tengja Amazon-regnskóginn við La Paz og liggur um þröng fjallaskörð með stórbrotnu útsýni yfir dalina fyrir neðan. Á köflum er vegurinn innan við þrír metrar á breidd og umkringdur bröttum klettum, sem gaf honum orðspor sem einn hættulegasti vegur heims.

Í dag hefur nýr og mun öruggari vegur tekið við meginstraum umferðarinnar. Death Road er því fyrst og fremst vinsæll meðal ferðalanga sem vilja upplifa eina mest spennandi fjallahjólaferð Suður-Ameríku. Ferðin býður upp á hraða, útsýni og vænan skammt af adrenalíni, allt á einum þekktasta áfangastað Bólivíu.