FERÐIR TIL CHILE

Eyðimerkur, eldfjöll og firðir á enda veraldar
Frá Atacama-eyðimörkinni til jökla Patagóníu. Uppgötvaðu yfir 4.000 kílómetra af mögnuðu landslagi.





Undur Chile: Frá eyðimörkum til jökla
Chile er land mikilla andstæðna og býður upp á eitt fjölbreyttasta landslag jarðar. Ævintýrið hefst í norðri með Atacama-eyðimörkinni, sem er þekkt sem þurrasti staður heims. Þetta yfirnáttúrulega svæði heillar ferðalanga með tignarlegum eldfjöllum, gufugígum, víðáttumiklum saltflötum og stórkostlegum fjallavötnum. Innan eyðimerkurinnar leynist dularfulli Valle de la Luna (Tungldalurinn), þar sem ómissandi er að hjóla um hrjúft landslagið á fjallahjóli. Að sjá sólarupprás eða sólsetur yfir þessum dramatíska dal er ógleymanleg upplifun. Lengra inn í hálendinu tekur Lauca-þjóðgarðurinn á móti þér með fjölbreyttu dýralífi, þar sem meðal annars má sjá llama dýr, alpaka og fjölmargar fuglategundir.
Þegar þú heldur suður breytist landslagið yfir í gróskumikið vatnasvæði. Þetta svæði er draumur ævintýraþyrstra ferðalanga, með ám sem henta vel til rafting, tignarlegum eldfjöllum og tærum fjallavötnum. Sérstaklega er gaman að heimsækja bæinn Villarrica, sem er upphafspunktur fyrir göngu á Villarrica-eldfjallið. Skammt frá ströndinni er friðsæl eyjan Chiloé, þekkt fyrir litrík trébyggð hús á staurum við bugðóttar víkur. Eyjan býður jafnframt upp á róleg sjávarþorp, villtar strendur og víðáttumiklar grænar grundir sem bíða þess að verða skoðaðar.
Ef þú ert til í að ferðast langt út á Kyrrahafið bíður Páskaeyja (Rapa Nui) í um 3.700 kílómetra fjarlægð frá meginlandi Chile. Þessi afskekkta eyja er heimsþekkt fyrir dularfullu Moai-steinstytturnar sem hafa vakið forvitni ferðalanga um aldir.
Til baka á meginlandinu endar ferðin í suðri í Torres del Paine-þjóðgarðinum. Þetta er sannkölluð paradís fyrir göngugarpa, þar sem stórbrotin fjöll, jöklar, túrkísblá vötn og magnaðar klettamyndanir skapa eitt eftirminnilegasta landslag Suður-Ameríku.

Torres del Paine þjóðgarðurinn
Þarftu aðstoð við að skipuleggja ferð til Chile?
Ferðasérfræðingarnir okkar hjálpa þér að móta ferðahugmyndina, velja áfangastaðina og skipuleggja ferð sem hentar þér.
Líflega borgin Santiago
Santiago er lífleg höfuðborg Chile og staðsett í hjarta landsins. Borgin er umkringd vínekrum, Andesfjöllum og Kyrrahafsströndinni, sem gerir hana að frábærum upphafspunkti til að kanna fjölbreytta náttúru landsins. Í nágrenninu má meðal annars finna þekkt vínræktarsvæði og fallega strandbæi á borð við La Serena.
Santiago sameinar nútímalegt borgarlíf, menningu, matargerð og útivist á einstakan hátt. Hér færðu góða innsýn í kraftmikið mannlíf og nútímalega Suður-Ameríku.

Plaza de Armas í Santiago
Sameinaðu Chile við aðra áfangastaði
Upplifðu ólíka náttúru og menningu í einni ferð
Af hverju að velja KILROY fyrir næstu ferðina þína
30+ ára reynsla
Yfir 30 ára reynsla, sérþekking og traustir samstarfsaðilar okkar um allan heim gera þér kleift að ferðast með öryggi og sjálfstrausti.
Persónuleg ferðaráðgjöf
Ferðaráðgjafi sem kynnist þínum óskum, draumum og markmiðum. Frá fyrstu hugmynd að heimkomu erum við með þér í hverju skrefi á leiðinni.
24/7 neyðarsími
Ef eitthvað óvænt kemur upp á er neyðarsíminn okkar opinn allan sólarhringinn. Ferðasérfræðingar KILROY eru til staðar fyrir þig, hvar og hvenær sem er.
KILROY leiðin
Bestu ferðirnar enda ekki þegar þú kemur heim. Þær lifa áfram í upplifunum, sögum og minningum sem fylgja þér lengi eftir að ferðinni lýkur.
4 ráð fyrir ævintýrið þitt í Chile
Ertu á leið til Chile? Þú átt eftir að upplifa eitthvað stórkostlegt! Hér eru 4 mikilvægir hlutir sem þú þarft að vita áður en þú leggur af stað:
Taktu með föt fyrir tvær ólíkar árstíðir. Veðrið í Chile er algjörlega óútreiknanlegt. Til að gefa þér smá mynd: norðurhlutinn er heitur og sólríkur eins og Kalifornía, en suðurhlutinn kaldur og hrjóstrugur eins og Alaska! Þar sem loftslagið breytist svona mikið, vertu viss um að taka með þér föt í lögum svo þú sért tilbúin/n fyrir bæði brennandi eyðimerkur og ískalda jökla.
Rifjaðu upp spænskuna þína. Ef þú dvelur í höfuðborginni Santiago kemstu vel af með ensku. En um leið og þú ferð út fyrir borgina og skoðar minni bæi, jafnvel vinsæla ferðamannastaði, þá gerist nánast allt á spænsku. Það að kunna nokkrar grunnsetningar getur bjargað deginum!
Settu aðeins meira í ferðabudgetið. Ef þú hefur áður ferðast með bakpoka um nágrannalönd eins og Bólivíu eða Ekvador, þá skaltu hafa í huga: Chile er aðeins dýrara. Lífsgæðin eru hærri, sem þýðir að matur, gisting og afþreying kosta aðeins meira.
Vertu tilbúin/n fyrir epísk road trip
Chile er ótrúlega langt land! Til að setja þetta í samhengi er fjarlægðin frá norðurenda Chile niður á þann syðsta er næstum því sú sama og að keyra þvert yfir Bandaríkin, frá strönd til strandar. Ef þú ætlar að ferðast með rútu, vertu með góðan playlista því þú átt eftir að upplifa langar (en ótrúlega fallegar) ferðir!

Gönguferðir í Chile
Algengar spurningar
Algengar spurningar um ferðalög til Chile.
Gjaldmiðillinn er Chilean Peso (CLP). Greiðslukort eru almennt tekin í borgum, en það er nauðsynlegt að hafa reiðufé fyrir smærri staði, markaði og þjórfé.
Já, það er vani að gefa 10% þjórfé á veitingastöðum. Oft er því bætt við reikninginn sem valkostur, en það er sniðugt að vera með smá reiðufé ef þú vilt gefa öðrum þjónustuaðilum beint.
Chile nær yfir meira en 4.000 km frá norðri til suðurs og því er loftslagið mjög fjölbreytt. Hér er leiðarvísir að veðrinu eftir svæðum:
🌵 Norður-Chile (Atacama-eyðimörkin): Eitt þurrasta svæði heims með sól allt árið og nánast enga úrkomu. Fullkomið fyrir stjörnuskoðun, eyðimerkurlandslag og heita daga.
🏙️ Mið-Chile (Santiago & Valparaíso): Miðjarðarhafsloftslag með heitum sumrum (desember - febrúar) og mildum, rökum vetrum (júní - ágúst). Vinsælasti ferðatíminn er á sumrin.
❄️ Suður-Chile & Patagonia: Hér er veðrið kaldara og óútreiknanlegra. Sumarið (desember - mars) er best fyrir gönguferðir og útivist, en á veturna er snjór og möguleikar á vetraríþróttum.
Ef þú ætlar að heimsækja Atacama-eyðimörkina eða Andesfjöllin í norðri getur hæðarveiki verið vandamál. Byrjaðu rólega fyrstu dagana, drekktu vel af vatni og takmarkaðu áfengisneyslu til að hjálpa líkamanum að aðlagast.


























