FERÐIR TIL EGYPTALANDS

Kameldýr í eyðimörkinni
Um áfangastaðinn

Kannaðu sögu og menningu

Frá eyðimörkum til köfunar - Egyptaland er topp áfangastaður! Forn undur og ævintýri við Rauðahafið gera þetta að draumastað.

Kannaðu eyðimörkina
Kannaðu eyðimörkina
Hittu kameldýr í eyðimörkinni
Kannaðu forna sögu Egyptalands
Sjáðu pýramídana

Frá fornum undrum til ævintýra við Rauðahafið

Stígðu inn í land þar sem tímalaus saga mætir spennandi ævintýrum. Ferðir okkar til Egyptalands sameina helstu perlum landsins eins og Pýramídana í Giza, hofin í Lúxor og siglingu á Níl, við einstakar upplifanir fyrir ævintýragjarna ferðalanga. Snorklaðu eða kafaðu við heimsklassa kóralrif Rauðahafsins, tjaldaðu undir stjörnubjörtum himni í eyðimörkunni og skoðaðu iðandi Kaíró með nýjum ferðafélögum. Hvort sem þú sækist eftir menningu, ævintýrum eða hvoru tveggja, þá bíður Egyptaland þín með upplifun sem þú átt eftir að muna lengi. 

Kannaðu Egyptaland

Kannaðu Egyptaland

Þarftu aðstoð við að skipuleggja ferð til Egyptalands?

Ferðasérfræðingarnir okkar hjálpa þér að móta ferðahugmyndina, velja áfangastaðina og skipuleggja ferð sem hentar þér.

Stígðu inn í heim fornra undra

Kannaðu gullna sanda Sahara eyðimerkurinnar, Pýramídana í Giza og margt fleira.

Egyptaland er land sem kemur þér stöðugt á óvart. Einn daginn stendur þú andspænis Pýramídunum í Giza og þann næsta ertu að snorkla í Rauðahafinu eða sigla niður Níl. Röltu um iðandi markaði, upplifðu eyðimörkina undir stjörnubjörtum himni og kafaðu ofan í sögu sem nær þúsundir ára aftur í tímann. Ef þú ert að leita að ævintýrum, nýrri menningu og upplifunum sem sitja lengi í minninu, þá er Egyptaland áfangastaðurinn fyrir þig.

Faraóar Egyptalands

Faraóar Egyptalands

Af hverju að velja KILROY fyrir næstu ferðina þína

30+ ára reynsla

Yfir 30 ára reynsla, sérþekking og traustir samstarfsaðilar okkar um allan heim gera þér kleift að ferðast með öryggi og sjálfstrausti.

Persónuleg ferðaráðgjöf

Ferðaráðgjafi sem kynnist þínum óskum, draumum og markmiðum. Frá fyrstu hugmynd að heimkomu erum við með þér í hverju skrefi á leiðinni.

24/7 neyðarsími

Ef eitthvað óvænt kemur upp á er neyðarsíminn okkar opinn allan sólarhringinn. Ferðasérfræðingar KILROY eru til staðar fyrir þig, hvar og hvenær sem er.

KILROY leiðin

Bestu ferðirnar enda ekki þegar þú kemur heim. Þær lifa áfram í upplifunum, sögum og minningum sem fylgja þér lengi eftir að ferðinni lýkur.

Maturinn sem þú munt sakna þegar þú kemur heim

Njóttu litríkra bragða Egyptalands.

Egypsk matarmenning er jafn litrík og landið sjálft. Allt frá iðandi götubásum til fjölskyldurekinna veitingastaða bíða ný bragð, ilmur og upplifanir við hvert horn. Smakkaðu koshari, einn vinsælasta rétt landsins, eða njóttu nýgrillaðs kofta með heimamönnum. Í Egyptalandi er matur ekki bara máltíð heldur leið til að kynnast menningunni, fólkinu og sögunum sem gera landið einstakt.

Götumatur

Götumatur

FAQ

Algengar spurningar

Hér eru svör við nokkrum algengum spurningum um Egyptaland. Finnurðu ekki það sem þú ert að leita að? Hafðu samband og einn af ferðaráðgjöfum okkar mun hafa samband við þig.

  • Nóvember - febrúar: Dagarnir eru hlýir og sólríkir, en ekki of heitir til að skoða. Þetta er háannatími, svo þú mátt búast við fleiri ferðamönnum. Frábær tími fyrir allar upplifanir.

  • Maí - september: Veðrið verður heitt, en færri ferðamenn og líklega lægra verð. Þetta er góður tími til að prófa t.d. köfun.

Íslendingar sem ferðast til Egyptalands þurfa yfirleitt vegabréfsáritun. Hafðu samband við ráðgjafa okkar og við förum yfir þetta með þér!

Í Egyptalandi er þjórfé hluti af daglegri menningu. Hafðu smáa seðla við höndina fyrir þjónustufólk, leiðsögumenn og ökumenn, og reiknaðu með að skilja eftir þjórfé á veitingastöðum ef það er ekki þegar innifalið í reikningnum.

Egypsk pund eru nauðsynleg fyrir markaði, smærri verslanir og þjórfé.