FERÐIR TIL EKVADOR

Landslag í Ekvador
Um áfangastaðinn

Þar sem náttúran er í aðalhlutverki

Upplifðu Amazon, Andesfjöll, Kyrrahafsströndina og Galápagos-eyjar í einni ógleymanlegri ferð.

Dýralíf í Amazon
Gönguferð í Tamandua
Gljúfraklifur í Baños
Staðbundin menning í Baños
Dýralíf á Galápagos-eyjum

Fjórir heimar, eitt ævintýri

Ekvador er eitt minnsta landið í Suður-Ameríku, en býður samt upp á ótrúlega fjölbreyttar upplifanir. Í einni ferð getur þú gengið á eldfjöllum í Andesfjöllum, farið í líflegt regnskógarævintýri í Amazon, slakað á við Kyrrahafsströndina og ráfað um litrík nýlenduborgarsvæði.

Bættu við vinalegu samfélagi, bragðgóðum staðbundnum mat og endalausum tækifærum til ævintýra og þú ert komin/n með áfangastað sem hefur eitthvað fyrir alla. Hvort sem þú leitar að náttúru, menningu, dýralífi eða adrenalíni er Ekvador land sem kemur sífellt á óvart.

San Cristobal, Galápagos

San Cristobal, Galápagos

Þarftu aðstoð við að skipuleggja ferð til Ekvador?

Ferðasérfræðingarnir okkar hjálpa þér að móta ferðahugmyndina, velja áfangastaðina og skipuleggja ferð sem hentar þér.

Uppgötvaðu hápunkta Ekvador

Ekvador er stútfullt af þekktum svæðum og ógleymanlegum upplifunum. Gakktu undir tignarlegum eldfjöllum eins og Cotopaxi og Chimborazo, skoðaðu gróskumikil svæði í kringum Baños eða farðu djúpt inn í Amazon-regnskóginn í leit að öpum, páfagaukum og öðru dýralífi. Fyrir þau sem elska spennu er Tena vinsæll staður fyrir river rafting og frumskógarævintýri.

Fyrir utan náttúruna er Ekvador líka ríkt af menningu. Röltu um sögulegar götur Quito, skoðaðu líflegan markað í Otavalo og Saquisilí eða farðu út að strönd og upplifðu afslappað andrúmsloft í surf-bænum Montañita. Sama hvert þú ferð, þá finnur þú einstaka blöndu af náttúru, menningu og ævintýrum.

Tamandua-foss

Tamandua-foss

Af hverju að velja KILROY fyrir næstu ferðina þína

30+ ára reynsla

Yfir 30 ára reynsla, sérþekking og traustir samstarfsaðilar okkar um allan heim gera þér kleift að ferðast með öryggi og sjálfstrausti.

Persónuleg ferðaráðgjöf

Ferðaráðgjafi sem kynnist þínum óskum, draumum og markmiðum. Frá fyrstu hugmynd að heimkomu erum við með þér í hverju skrefi á leiðinni.

24/7 neyðarsími

Ef eitthvað óvænt kemur upp á er neyðarsíminn okkar opinn allan sólarhringinn. Ferðasérfræðingar KILROY eru til staðar fyrir þig, hvar og hvenær sem er.

KILROY leiðin

Bestu ferðirnar enda ekki þegar þú kemur heim. Þær lifa áfram í upplifunum, sögum og minningum sem fylgja þér lengi eftir að ferðinni lýkur.

Galápagos-eyjar: Dýralíf eins og hvergi annars staðar

Ef Ekvador er á bucket listanum þínum, þá eru Galápagos-eyjar eiginlega skyldustopp. Þessi afskekkti eyjaklasi í Kyrrahafinu er þekktur fyrir einstakt dýralíf sem finnst hvergi annars staðar á jörðinni. Hér geturðu séð risaskjaldbökur, sæljón, einstakar sjávareðlur og aðra fugla og dýr sem finnast hvergi annars staðar á jörðinni.

Galápagos eru þó miklu meira en paradís fyrir dýraunnendur. Eldfjallalandslag, ósnortnar strendur og tærblár sjór gera eyjarnar að draumaáfangastað fyrir snorkl, köfun og eyjahopp. Hvort sem þú ferð í siglingu milli eyja eða dvelur á einni þeirra, bíða upplifanir sem fá þig til að velta fyrir þér hvort þú sért enn á sömu plánetu.

Dýralíf á Galápagos-eyjum

Dýralíf á Galápagos-eyjum

FAQ

Algengar spurningar

Ertu að skipuleggja ferð til Ekvador? Hér eru svör við algengustu spurningunum um þetta fjölbreytta suður-ameríska ævintýraland.

Ekvador er frábær áfangastaður allt árið, en besti ferðatíminn fer eftir hvaða svæði þú ætlar að heimsækja. Fjölbreytt landslag landsins þýðir að loftslagið er mjög mismunandi eftir svæðum.

Hálendið (Quito & Andesfjöllin)

Hitastig er almennt milt allt árið, þar sem hitinn er yfirleitt um 15-20°C á daginn. Rigningartímabilið er frá október til maí, þó sé oftast í formi stuttra síðdegisskúra.

Ströndin (Guayaquil & Manabí)

Ströndin við Kyrrahafið er með suðrænu loftslagi allt árið. Þurrkatímabilið er frá júní til nóvember, en frá desember til maí er heitara, rakara og meiri úrkoma.

Amazon-regnskógurinn

Amazon svæðið er heitt og rakt allt árið. Rigning getur verið hvenær sem er, en mest rignir yfirleitt frá apríl til júní.

Galápagos-eyjar

Frá desember til maí er hlýtt, sólríkt og sjórinn rólegur sem er fullkomið fyrir snorkl og dýraferðir. Í júní til nóvember er svalara og vindasamara, með sterkari straumum og frábærum köfunarskilyrðum.

Þar sem loftslagið er mismunandi eftir svæðum í Ekvador er alltaf eitthvað spennandi að skoða, sama hvenær þú ferð.

Nei, þú þarft ekki að kunna spænsku til að ferðast um Ekvador. Á vinsælum ferðamannastöðum, á hótelum og hjá ferðaskipuleggjendum, talar fólk oft ensku. En að kunna nokkur einföld spænsk orð getur auðveldað ferðalagið og hjálpað þér að tengjast heimafólki, sérstaklega á minni stöðum, á mörkuðum og í afskekktari héruðum.

Ef þig langar að bæta spænskukunnáttuna á ferðalaginu getum við hjálpað þér að finna spænskunámskeið í Ekvador. Það er frábær leið til að sökkva sér í menninguna, öðlast sjálfstraust í tungumálinu og kynnast öðrum ferðalöngum alls staðar að úr heiminum. Hvort sem þú vilt læra í borg, við ströndina eða nær Amazon, eru fjölmargir möguleikar til að blanda námi og ævintýrum.

Sumir vinsælustu áfangastaðirnir eru Quito, Baños, Cotopaxi þjóðgarðurinn, Amazon-regnskógurinn, Otavalo-markaðurinn, Montañita og auðvitað Galápagos-eyjar. Hvert svæði býður upp á ólíka upplifun, frá eldfjallagöngum til ógleymanlegra kynna við villt dýralíf.

Við mælum með að þú gefir þér að minnsta kosti 10-14 daga til að upplifa helstu hápunkta Ekvador. Ef þú vilt blanda saman Andesfjöllum, Amazon-regnskógi, Kyrrahafsströnd og Galápagos-eyjum, þá mælum við með að gefa þér tvær til þrjár vikur.

Algjörlega. Ekvador er oft sameinað Perú, Kólumbíu eða Galápagos-eyjum sem hluti af lengri ferð um Suður-Ameríku. Við hjálpum þér að finna rökrétta leið miðað við áhuga þinn, budget og þann tíma sem þú hefur í ferðalagið.

Þar sem Ekvador hefur mörg loftslagsbelti er best að pakka fyrir mismunandi aðstæður. Létt föt henta vel fyrir ströndina og Amazon, en hlýtt lag og regnjakki eru sniðugt að hafa með fyrir Andesfjöllin og hærri svæði. Þægilegir gönguskór eru nauðsynlegir ef þú ætlar að fara í gönguferðir.

Sýnir 4 / 6 niðurstöður