FERÐIR TIL EVRÓPU
Sjá allar ferðir
Af hverju að ferðast til Evrópu?
Evrópa býður upp á sögulegar borgir, stórbrotið landslag, heimsfræga matargerð og fjölbreytta menningarupplifun.
Stór ævintýri í stuttri fjarlægð
Evrópa er full af ævintýrum sem eru nær en þú heldur. Frá stórbrotnum fjallgörðum og villtum strandlengjum til líflegra borga og fallegra smábæja er alltaf eitthvað nýtt að uppgötva. Fyrir bakpokaferðalanga er álfan fullkomin, hvort sem þú ert í helgarferð eða á margra mánaða flakki.
Síðustu ár hefur Austur-Evrópa vakið sífellt meiri athygli, með heillandi borgum, ríkri sögu og hagstæðu verðlagi. Röltaðu um steinlagðar götur, finndu falin kaffihús og njóttu góðs matar án þess að tæma ferðasjóðinn.
Hvort sem þú ert á road tripi, í fjallgöngu, að sigla milli eyja eða einfaldlega að elta næstu upplifun, þá er næsta ævintýri aldrei langt undan í Evrópu.

River rafting í Albaníu
Áfangastaðir í Evrópu
Kannaðu fjölbreytt svæði í Evrópu
Af hverju að velja KILROY fyrir næstu ferðina þína
30+ ára reynsla
Yfir 30 ára reynsla, sérþekking og traustir samstarfsaðilar okkar um allan heim gera þér kleift að ferðast með öryggi og sjálfstrausti.
Persónuleg ferðaráðgjöf
Ferðaráðgjafi sem kynnist þínum óskum, draumum og markmiðum. Frá fyrstu hugmynd að heimkomu erum við með þér í hverju skrefi á leiðinni.
24/7 neyðarsími
Ef eitthvað óvænt kemur upp á er neyðarsíminn okkar opinn allan sólarhringinn. Ferðasérfræðingar KILROY eru til staðar fyrir þig, hvar og hvenær sem er.
KILROY leiðin
Bestu ferðirnar enda ekki þegar þú kemur heim. Þær lifa áfram í upplifunum, sögum og minningum sem fylgja þér lengi eftir að ferðinni lýkur.
Þarftu aðstoð við að skipuleggja ferð til Evrópu?
Ferðasérfræðingarnir okkar hjálpa þér að móta ferðahugmyndina, velja áfangastaðina og skipuleggja ferð sem hentar þér.
Blanda af menningu, náttúru og andstæðum
Það sem gerir Evrópu svo spennandi er hversu ólíkir áfangastaðirnir eru. Einn daginn geturðu verið að synda í tærbláum sjó við strendur Albaníu eða Króatíu og þann næsta að rölta um sögulegar götur í Georgíu eða Tyrklandi þar sem ólík menning og löng saga mætast. Grikkland og Portúgal bjóða upp á fullkomna blöndu af eyjalífi, frábærri matargerð og afslappaðri strandarstemningu, á meðan aðrir áfangastaðir laða að sér ferðalanga með stórbrotinni náttúru, líflegum borgum og ævintýrum utan alfaraleiða.
Hvort sem þú ert að leita að menningu, náttúru, mat, ströndum eða næsta stóra ævintýrinu, þá er alltaf eitthvað nýtt að uppgötva í Evrópu.

Kannaðu Portúgal í sjálfboðavinnuævintýri
Að ferðast um Evrópu með Interrail
Hvort sem þú ert að horfa á sólsetur í Portúgal, smakka gelato á Ítalíu eða njóta stórbrotins landslags út um lestargluggann, þá leyfir Interrail Global Pass þér að kanna Evrópu á þínum hraða. Þú getur ferðast með sveigjanleika um 33 lönd og yfir 30.000 áfangastaði, búið til þína eigin leið og breytt plönum eftir þörfum. Þú getur pantað Interrail passa hjá KILROY.

Interrail um Evrópu
Algengar spurningar
Allt sem þú þarft að vita áður en þú skipuleggur ferðina til Evrópu!
Evrópa er frábær áfangastaður allt árið. Sumarið (júní til ágúst) er topp tími fyrir strendur og eyjaferðir í löndum eins og Grikklandi, Króatíu og Portúgal, á meðan vor og haust eru kjörin fyrir gönguferðir, borgarferðir og til að forðast mannmergð.
Ef þú vilt fara í virka ferð, þá hefur Evrópa mikið upp á að bjóða. Albanía og Georgía eru frábærir áfangastaðir fyrir gönguferðir og fjallaævintýri, Króatía býður upp á eyjaferðir og kajak, á meðan Tyrkland og Grikkland sameina menningu við útivist og strandævintýri.
Það er hægt að ferðast um Evrópu á mismunandi fjárhagsáætlunum. Vestur-Evrópa er yfirleitt dýrari, en áfangastaðir eins og Albanía, Georgía og hlutar Balkanskagans bjóða upp á mikið fyrir peninginn. Kostnaðurinn fer eftir því hvert þú ferð, hvernig þú ferðast og hvaða upplifanir þú velur.
Interrail er sveigjanlegur lestarferða passi sem leyfir þér að ferðast milli margra Evrópulanda með einum miða. Þetta er vinsæl leið til að kanna Evrópu ef þú vilt frelsi og sveigjanleika, með leiðum sem taka þig á milli borga eða jafnvel á milli nokkurra landa í einni ferð. Þetta hentar sérstaklega bakpokaferðalöngum sem vilja blanda saman áfangastöðum eins og Balkanskaga, Grikklandi, Króatíu eða fleiri landa án þess að þurfa að bóka hverja ferð sérstaklega.



















