FERÐIR TIL EYJAÁLFU
Sjá allar ferðir
Af hverju að heimsækja Eyjaálfu?
Frá Ástralíu og Nýja-Sjálandi til paradísareyja Kyrrahafsins. Eyjaálfa er full af náttúruperlum, ævintýrum og ógleymanlegum upplifunum.
Fullkomin blanda af eyjum, borgarlífi og útivist
Eyjaálfa er fyrir ferðalanga sem þrá frelsi, fjölbreytni og stórbrotna náttúru. Hugsaðu um langar strandkeyrslur í Ástralíu, eldfjöll, jökla og firði í Nýja-Sjálandi og afskekktar hitabeltiseyjar á víð og dreif um Kyrrahafið. Hér er hver ferð ólík þeirri næstu, hvort sem þú ert á road trip í campervan, á göngu um þjóðgarða eða að snorkla í kristaltæru vatni.
Í Ástralíu geturðu keyrt endalausa vegi um eyðimerkur, regnskóga og strandhéruð með stoppum í stórbrotnum þjóðgörðum á leiðinni. Nýja-Sjáland býður upp á einstaka blöndu af fjöllum, jöklum, eldfjöllum og fjörðum, sem gerir hvert road trip að ævintýri. Síðan eru það Kyrrahafseyjarnar, eins og Fídjí, þar sem dagarnir snúast um hafið, afslöppun og afslappaðan eyjalífsstíl.
Frá road trip ferðum og fjallgöngum til surfs, köfunar og eyjahopps snýst Eyjaálfa um frelsi, ævintýri og náttúru eins og hún gerist best.

Sjáðu Sydney Opera House við vatnið í Sydney
Áfangastaðir í Eyjaálfu
Upplifðu Eyjaálfu fyrir utan það sem þú sérð á netinu
Af hverju að velja KILROY fyrir næstu ferðina þína
30+ ára reynsla
Yfir 30 ára reynsla, sérþekking og traustir samstarfsaðilar okkar um allan heim gera þér kleift að ferðast með öryggi og sjálfstrausti.
Persónuleg ferðaráðgjöf
Ferðaráðgjafi sem kynnist þínum óskum, draumum og markmiðum. Frá fyrstu hugmynd að heimkomu erum við með þér í hverju skrefi á leiðinni.
24/7 neyðarsími
Ef eitthvað óvænt kemur upp á er neyðarsíminn okkar opinn allan sólarhringinn. Ferðasérfræðingar KILROY eru til staðar fyrir þig, hvar og hvenær sem er.
KILROY leiðin
Bestu ferðirnar enda ekki þegar þú kemur heim. Þær lifa áfram í upplifunum, sögum og minningum sem fylgja þér lengi eftir að ferðinni lýkur.
Þarftu aðstoð við að skipuleggja ferð til Eyjaálfu?
Ferðasérfræðingarnir okkar hjálpa þér að móta ferðahugmyndina, velja áfangastaðina og skipuleggja ferð sem hentar þér.
Bestu road trip áfangastaðirnir
Fáir heimshlutar henta road trip ferðalögum jafn vel og Ástralía og Nýja-Sjáland. Í Ástralíu tengja langar strandleiðir saman surfbæi, þjóðgarða og heimsfrægar náttúruperlur, á meðan leiðir inn í landið liggja um víðáttumikla Outback, þar sem vegalengdirnar virðast endalausar og hvert stopp býður upp á nýja upplifun. Hér færðu frelsið til að ferðast á þínum eigin hraða og velja þína eigin leið.
Í Nýja-Sjálandi er nánast hver vegur eins og útsýnisleið. Þú keyrir framhjá snæviþöktum fjöllum, djúpum fjörðum, túrkísbláum vötnum og grænum dölum, oft allt á sama degi. Suðureyjan er þekkt fyrir stórbrotið landslag og útivist í heimsklassa, á meðan Norðureyjan sameinar strendur, eldfjöll og menningarlega hápunkta.
Hvort sem þú velur campervan eða bílaleigubíl eru Ástralía og Nýja-Sjáland fullkomin fyrir ferðalanga sem leita að sveigjanleika, stórbrotinni náttúru og ævintýrum á opnum vegi.

Road trip í gegnum Ástralíu með camper
Hópferð eða sérsniðin ferð?
Hjá KILROY getur þú valið hvernig þú vilt ferðast. Ef þér finnst gaman að hitta nýtt fólk og hafa allt skipulagt fyrir þig, þá er hópferð frábær kostur. Þú ferðast með öðrum sem hugsa eins, fylgir ákveðinni dagskrá og upplifir staðbundin ævintýri á leiðinni, svo þú getur einbeitt þér að því að njóta ferðarinnar án þess að hafa áhyggjur af skipulaginu.
Ef þú vilt meiri frelsi, þá gefur sérsniðin dagskrá þér fullan sveigjanleika. Þú ákveður hvert þú ferð, hversu lengi þú dvelur og hvað þú vilt hafa með, og við hjálpum þér að búa til leið sem passar við áhugasvið, fjárhag og ferðahraða. Hvort sem þú vilt ævintýralega ferð eða rólegri ferð með meiri tíma á hverjum stað, þá mótum við ferðina í kringum þig.

Ganga um Mount Cook þjóðgarðinn
Algengar spurningar
Ert þú að skipuleggja ferð til Ástralíu, Nýja-Sjálands eða Kyrrahafseyja? Hér eru svör við algengustu spurningunum.
Eyjaálfu er hægt að heimsækja allt árið um kring, en besti tíminn fer eftir því hvert ferðinni er heitið. Sumarið í Ástralíu og Nýja-Sjálandi, frá desember til febrúar, hentar vel fyrir road trip, strandlíf og útivist í hlýju veðri. Veturinn, frá júní til ágúst, er hins vegar vinsælasti tíminn fyrir skíðaævintýri í Nýja-Sjálandi.
Kyrrahafseyjar eins og Fiji bjóða upp á hlýtt og suðrænt loftslag allt árið um kring, sem gerir þær að frábærum áfangastað hvort sem þú ert að leita að afslöppun, snorkli eða eyjahoppi. Sama á hvaða árstíma þú ferðast bíða fjölbreytt ævintýri víðs vegar um Eyjaálfu.
Ástralía og Nýja-Sjáland geta verið dýrari miðað við önnur bakpokaferðalög, en það eru leiðir til að ferðast á minna budgeti, til dæmis með road trip í húsbílum og gistingu á hostelum. Kyrrahafseyjar eru mismunandi en Fiji býður bæði upp á ódýra gistingu og lúxus upplifanir.
Best er að byrja að skipuleggja ferðina eins snemma og hægt er til að fá bestu tilboðin á flugum og húsbílum. Almennt gefur bókun 6-9 mánuðum fyrir brottför þér bestu möguleikana á góðu verði og framboði, sérstaklega þegar ferðast er á vinsælum tímum eins og ástralska og nýsjálenska sumrinu. Húsbílar seljast oft hratt upp á háannatíma, svo því fyrr sem þú tryggir ferðamáta og lykilleiðir, því fleiri valkosti hefur þú. Ef þú ert sveigjanleg/ur með dagsetningar getum við líka hjálpað þér að finna bestu brottfarirnar innan þess glugga.
Til að upplifa Eyjaálfu almennilega ættir þú að plana að minnsta kosti 4-6 vikur í hverju landi. Ástralía og Nýja-Sjáland eru bæði stór svæði með mikið að sjá, svo styttri ferðir geta orðið þéttar ef þú vilt sjá meira en bara nokkra helstu staðina.
Ef þú vilt sameina Ástralíu, Nýja-Sjáland og Kyrrahafseyjar mælum við með lengri ferð, um 6-12 vikur, svo þú hafir nægan tíma til að ferðast á þægilegum hraða og njóta hvers staðar almennilega. Við getum líka hjálpað þér að búa til eina samfellda ferð, þar sem flug, leiðir og ferðamáti tengjast á rökréttan og stresslausan hátt.
Já! Hvort sem þú ert að plana road trip í húsbíl, eyjahopp ævintýri eða Ástralíu-Nýja-Sjálands leið, þá getur KILROY hjálpað með flug, ferðamáta, afþreyingu og sérsniðna ferðaáætlun.
Sýnir 4 / 5 niðurstöður













