EYJAHOPP
Sjá allar ferðir
Eyjahopp: Frá einni paradís til þeirrar næstu
Hvort sem þú siglir á milli afskekktra eyja eða ferðast hægt á milli hitabeltisperla, þá færðu að upplifa meira af heiminum með eyjahoppi.
Af hverju að velja eyjahopp?
Af hverju að stoppa á einni eyju þegar þú getur upplifað margar? Með eyjahoppi færðu að kynnast ólíkum ströndum, landslagi og menningu í einni og sömu ferð. Einn daginn ertu að snorkla í kristaltærum sjó, þann næsta að skoða heillandi þorp eða rölta um suðræna skóga.
Eyjahopp er fullkomin blanda af ævintýrum, afslöppun og nýjum upplifunum. Frá vinsælum eyjum í Suðaustur-Asíu til falinna paradísa víðs vegar um heiminn færðu frelsið til að sjá meira og upplifa fleiri hliðar á áfangastaðnum.
Snorklun í Indónesíu
Chill á ströndinni
Paddleboarding á Maldíveyjum
Eyja á Maldíveyjum
Island hopping í Indónesíu
Slaka á í hengirúmi
Island hopping kringum Coron á Filippseyjum
Snorklun við Coron á Filippseyjum
Kafari og nautskata á Fiji
Gönguferð á Fiji
Tripmates hópferð í Indónesíu
Bestu staðirnir fyrir eyjahopp
Eyjahopp áfangastaðir sem við mælum með.
Þarftu aðstoð við að skipuleggja eyjahopp?
Ferðasérfræðingarnir okkar hjálpa þér að móta ferðahugmyndina, velja áfangastaðina og skipuleggja ferð sem hentar þér.
Eyjahopp á þínum forsendum
Það eru margar leiðir til að upplifa eyjahopp, allt eftir því hvernig þér finnst best að ferðast og hvert þig langar að fara.
Ef þú vilt nýta tímann á sjónum til fulls gæti sigling með gistingu um borð verið fullkomin fyrir þig. Þá sefur þú um borð og vaknar á nýjum stað á hverjum degi, með stoppum á litlum eyjum, afskekktum ströndum og sumum af bestu köfunar- og snorklstöðum heims. Hér er siglingin sjálf hluti af ævintýrinu, ekki bara leið til að komast á milli staða.
Þú getur líka valið að eyða nokkrum nóttum eða jafnvel heilli viku á hverri eyju áður en þú ferð áfram. Áfangastaðir eins og Tæland og Indónesía henta sérstaklega vel fyrir þessa rólegri útgáfu af eyjahoppi.
Hvort sem þig langar í ævintýri frá morgni til kvölds eða afslappaða eyjaferð, þá bíður þín eyjahopp sem passar þínum draumum.
Koh Tao í Tælandi
Kafarar og stjörnu-blásufiskur í Gili, Indónesíu
Njóta fersks kókoshnetudrykkjar í Tælandi
Klettar við El Nido á Filippseyjum
Búðu um þig á liveaboard og eyttu meiri tíma á sjónum
Hópferð á Koh Tao, Tælandi
Ulun Danu hofið á Balí, Indónesíu
Mount Bromo á Jövu, Indónesíu
Köfun á Filippseyjum
Eyjahopp í kringum El Nido á Filippseyjum
Algengar spurningar
Hér finnur þú svör við öllum spurningum um eyjahopp.
Eyjahopp snýst um að ferðast á milli nokkurra eyja á einni ferð í stað þess að dvelja bara á einum stað. Þannig færðu að upplifa ólíkar strendur, menningu og ævintýri á leiðinni. Einn daginn gætirðu verið að snorkla í kristaltærum sjó og þann næsta að slaka á undir pálmatrjám á nýrri eyju.
Þú getur til dæmis valið að fara í siglingu með gistingu um borð, þar sem þú vaknar á nýjum stað nánast á hverjum degi, eða tekið þessu aðeins rólegar og dvalið í nokkra daga á hverri eyju áður en þú heldur áfram.
Hvort sem þú ert að leita að ævintýrum, afslöppun eða blöndu af hvoru tveggja, þá er eyjahopp frábær leið til að sjá meira af áfangastaðnum og upplifa fleiri en eina paradís á sömu ferð.
Besti áfangastaðurinn fer eftir því hvað þú ert að leita að. Tæland er frábært fyrir þau sem eru að prófa eyjahopp í fyrsta sinn, Indónesía býður upp á ótrúlega fjölbreytni, Filippseyjar eru með einhverjar fallegustu strandlengjur heims og Fiji hentar vel ef þig langar í afskekkt hitabeltisævintýri. Það eru líka margar aðrar spennandi leiðir, svo ekki hika við að hafa samband við ferðasérfræðingana okkar ef þú vilt hjálp við að skipuleggja þitt eyjahopp.
Góð eyjahoppsferð getur verið frá nokkrum dögum upp í nokkrar vikur eða jafnvel mánuði, allt eftir því hvers konar ævintýri þú vilt og hvert þú ætlar.
Já, eyjahopp getur verið frábær kostur fyrir þá sem ferðast einir. Margar eyjahoppleiðir eru vinsælar hjá bakpokaferðalöngum og ef þú ferð í hópferð er auðvelt að kynnast öðrum ferðalöngum á nýjum stöðum. Þú getur líka farið sjálfstætt í eyjahopp, til dæmis með ferjupassa.
Pakkaðu létt og einbeittu þér að nauðsynjunum: Sundföt, þægileg föt, sólarvörn, fjölnota vatnsbrúsi og vatnsheld taska. Lítill bakpoki er oft þægilegri en stór ferðataska þegar þú ferðast á milli eyja. Þú gætir líka viljað taka með þér bók, spil eða eitthvað annað til að hafa gaman af þegar þú ert að slaka á á ströndinni eða um borð.
Verðið fer eftir mörgu, eins og áfangastað, lengd ferðarinnar og hvernig þú kýst að hoppa á milli eyja. Ef þú ert bara að ferðast á milli vinsælla eyja í Suðaustur-Asíu er þetta yfirleitt frekar hagkvæmt, á meðan siglingar á afskekktari stöðum er oft dýrari.
Dreymir þig um eyjahoppsævintýri? Við getum hjálpað þér að skipuleggja ferð sem passar við þinn fjárhag, ferðastíl og draumaáfangastaði.
Sýnir 4 / 6 niðurstöður
Bestu áfangastaðirnir fyrir eyjahopp
Sumir staðir eru bara gerðir fyrir eyjahopp; þar sem þú finnur hundruð eyja, þægilegar samgöngur og ógleymanlegt landslag. Hér eru nokkrir okkar uppáhalds áfangastaðir, en það eru ótal fleiri að skoða.
Tæland er klassískur valkostur með blöndu af líflegum eyjum, rólegum ströndum og geggjuðum köfunarstöðum. Upplifðu eyjar eins og Koh Tao, Koh Phangan og Koh Phi Phi og njóttu frábærs matar og afslappaðs backpacker andrúmslofts.
Indónesía býður upp á endalaus ævintýri á eyjum, allt frá eldfjallalandslagi Balí og Lombok yfir í túrkísbláa sjóinn við Gili-eyjar og Komodo-þjóðgarðinn. Þetta er tilvalið fyrir bæði siglingar sem þið gistið um borð og lengri stopp á draumaeyjunum þínum, eða blöndu af hvoru tveggja.
Filippseyjar eru fullkomnar fyrir þau sem vilja sjá dramatíska strandlengju, föld lón og eitt tærasta vatn heims, auk líflegra borga og spennandi menningar. Palawan, Coron og Siargao eru aðeins nokkur af hápunktunum. Þetta er líka áfangastaður sem hentar bæði fyrir siglingar með gistingu um borð og rólegra eyjahopp.
Fiji er frábær kostur ef þig langar í enn afskekktari eyjaupplifun. Paradísarstrendur, litrík kóralrif og gestrisnir heimamenn dreifast yfir meira en 300 eyjar. Fídjí er draumastaður fyrir suðrænt frí.
Ertu með annan áfangastað í huga fyrir eyjahopp? Hafðu samband við ferðasérfræðing hjá okkur og við hjálpum þér að skipuleggja draumaferðina.
Blue Lagoon Beach á Fídjí
Eyjahopp í Indónesíu
Komodo-dreki
Góður matur í Taílandi
Sólsetur í Indónesíu
Coron Island á Filippseyjum
Sólsetur á Fídjí
Slökun í Taílandi
Pulau Padar eyja í Indónesíu
Koh Phangan á Filippseyjum
Þú ættir að prófa eyjahopp ef þú...
...elskar að skoða meira en einn stað
Eyjahopp gefur þér tækifæri til að upplifa margar eyjar, mismunandi landslag og menningu í einni ógleymanlegri ferð.
...lifir fyrir lífið við sjóinn
Eyjahopp er fullkomið ef þér finnst gaman að sigla, synda, kafa, snorkla og njóta lífsins á ströndinni.
...vilt blanda saman ævintýrum og afslöppun
Eyjahopp er venjulega blanda af útivistarævintýrum, staðbundnum upplifunum og rólegum dögum á ströndinni. Sem passar vel ef þú vilt smá af öllu.


































































































