FERÐALÖG MEÐ VINUM
Sjá allar ferðir
Farðu í draumaferðina með vinum þínum
Leitar þú að einhverju meira spennandi en hefðbundinni strandferð? Safnaðu vinunum saman og farið í ógleymanlegt ævintýri utan Evrópu.
Valdar ferðir fyrir vinahópa
Handvaldar upplifanir sem vert er að skoða
Bestu áfangastaðirnir fyrir vinahópa utan Evrópu
Fjölbreytt úrval af áfangastöðum fyrir vini.
Bestu minningarnar verða ekki til í hópspjallinu
Þær verða til þegar þið skoðið heiminn saman. Að ferðast með vinum gerir hvert ævintýri stærra, skemmtilegra og enn eftirminnilegra. Hvort sem þið stefnið á bakpokaferðalag, road trip eða Tripmates-hópferð, þá fáið þið að deila upplifunum sem styrkja vináttuna og skapa minningar sem endast alla ævi.
Áttu ekki ferðafélaga? Engar áhyggjur. Með Tripmates geturðu ferðast með fólki sem deilir sömu ferðadraumum og þú og eignast vini á leiðinni.
Frá ströndum Suðaustur-Asíu og Ástralíu til villtrar náttúru Suður-Ameríku og Afríku hjálpar KILROY þér að láta draumaferðina verða að veruleika og skapa minningar sem þú gleymir aldrei.
Gönguævintýri
Að ferðast með vinum
Surfcamp í Costa Rica
Morgunmatur á Balí
Að kanna Japan
Snorklun í Indónesíu
Gönguferð í Albaníu
Þarftu aðstoð við að skipuleggja vinaferð?
Ferðasérfræðingarnir okkar hjálpa þér að móta ferðahugmyndina, velja áfangastaðina og skipuleggja ferð sem hentar þér.
Epísk ævintýri til að deila með vinum
Hvort sem þið eruð að fara í bakpokaferðalag milli heimsálfa, road trip um stórbrotna náttúru, að skoða villt dýr í safarí eða hoppa á milli hitabeltiseyja, þá er hvert ævintýri tækifæri til að kynnast nýjum stöðum, deila mögnuðum upplifunum og tengjast fólki alls staðar að úr heiminum.
Bakpokaævintýri
Upplifið frelsið við að ferðast án þess að allt sé planað fyrirfram. Hvort sem þið eruð að skoða líflegar borgir í Víetnam, ganga um fjöll í Perú, hoppa á milli eyja á Filippseyjum eða keyra meðfram ströndum Ástralíu, þá snúast bakpokaferðalög um ógleymanlegar upplifanir, óvænt augnablik og sögur sem þið safnið á leiðinni.
Epísk road trip
Niður með rúðurnar og út á veginn. Hvort sem þið keyrið eftir austurströnd Ástralíu, ferðist með húsbíl um Nýj-Sjáland eða takið þekktar þjóðleiðir í Bandaríkjunum, þá snúast road trip um frelsi, vináttu og ævintýri.
Safarí- og náttúruævintýri
Skiptið út borgarsýninni fyrir ótrúlega náttúru og villt dýralíf. Hvort sem þið eruð að leita að „the Big Five“ í Suður-Afríku eða kanna þjóðgarða Tansaníu, þá skapa safarí-ævintýri minningar sem þið munuð deila lengi eftir að ferðinni lýkur.
Eyjahopp
Af hverju að vera á einni eyju þegar þið getið skoðað margar? Uppgötvið faldar strendur, snorklið í tærum sjó og njótið hitabeltisstemningar á meðan þið hoppið á milli fallegustu eyja heims í Suðaustur-Asíu og víðar. Frá bátsferðum og stranddögum til stórkostlegra sólsetra, er þetta fullkomið tækifæri til að skapa minningar með vinum og nýjum ferðafélögum.
Bakpokaævintýri
Road trip í Ástralíu
Safari-ævintýri með vinum
Eyjahopp í Tælandi
Algengar spurningar
Finndu svör við öllu sem þú þarft að vita um ferðalög með vinum.
Bakpokaævintýri, road trip, eyjahopp, safarí og hópferðir eru vinsælustu ferðamátarnir fyrir vini sem vilja skoða heiminn saman.
Byrjið á að ákveða fjárhagsáætlun, ferðatíma og draumaáfangastaði og við sjáum um restina. Hvort sem þið vitið nákvæmlega hvert þið viljið fara eða vanti smá innblástur, þá geta ferðasérfræðingar okkar hjálpað ykkur að finna réttu áfangastaðina, setja saman ferðaplan og láta ferðadraumana rætast.
Tripmates eru KILROY hópferðir fyrir ferðalanga á aldrinum 18-31 árs, þar sem þú getur skráð þig ein/n eða með vinum og ferðast um heiminn með öðrum ferðalöngum á sömu bylgjulengd og þú. Búðu þig undir stórkostleg ævintýri, ógleymanlegar upplifanir og vináttu sem endist löngu eftir að ferðinni lýkur.
Það er ekkert mál! Hópferð er frábær leið til að upplifa nýja áfangastaði og kynnast ferðafélögum alls staðar að úr heiminum. Við mælum með að skoða Tripmates eða Lítil hópævintýri, þar sem þú getur ferðast til stórkostlegra staða, deilt ógleymanlegum upplifunum og eignast nýja vini á leiðinni.
Algjörlega! Hvort sem þið eruð lítill vinahópur eða stærra teymi getum við hjálpað ykkur að hanna ferð sem passar fjárhagsáætluninni, ferðastílnum og ferðadraumunum ykkar. Við sjáum um skipulagið svo þið getið einbeitt ykkur að ævintýrinu.
Sýnir 4 / 5 niðurstöður
Þú ættir að ferðast með okkur ef þú...
...vilt sérsniðnar og sveigjanlegar ferðir frá sérfræðingum
Frá upplifunum á bucket listanum til tíma til að hlaða batteríin. Við sérsníðum ferðina að fjárhagsáætlun og draumum þínum.
...vilt innihaldsríkar, spennandi og ekta upplifanir
Skiptu skoðunarferðinni út fyrir eyjahopp, road trip eða annað ævintýri og upplifðu heiminn með vinunum.
...vilt ferðast áhyggjulaus með stuðning allan sólarhringinn
Við sjáum um allt skipulagið og erum með 24/7 neyðarsíma, svo þú getir einbeitt þér að ævintýrinu.







































