BRÚÐKAUPSFERÐ TIL INDÓNESÍU

Brúðkaupsferð þar sem slökun mætir ævintýrum
Indónesía er einstakur áfangastaður fyrir brúðkaupsferð þar sem skemmtileg menning, falleg náttúra og afslappað andrúmsloft skapa fullkomna umgjörð fyrir fyrstu ferðina saman sem hjón. Í þessari ferð fáið þið að njóta þess besta sem Balí hefur upp á að bjóða ásamt kyrrðinni á Lembongan eyju og lúxusdvöl á Uluwatu.
Ferðin hefst með flugi þar sem millilent er í Frankfurt og Singapore (tilvalið er að framlengja um nokkra daga þar). Áfram liggur leiðin svo til Balí þar sem þið komið ykkur vel fyrir við ströndina í Sanur. Þar gefst tími til að slaka á, kynnast balískri menningu og fara í styttri dagsferðir um eyjuna. Þaðan liggur leiðin á Lembongan eyju þar sem rólegt andrúmsloft, kristaltær sjór og náttúran ráða ferðinni. Brúðkaupsferðinni lýkur svo á glæsilegu resorti á Uluwatu þar sem þið njótið síðustu daganna í algjörum lúxus og afslöppun.
Hápunktar ferðarinnar
Sérsniðnar ferðir
Byrjaðu með ferðatillögu sem við höfum sett saman og aðlagaðu hana að þínum þörfum með aðstoð ferðasérfræðinga okkar.





Fljótleg og einföld bókun hjá KILROY
1
Hafðu samband
Segðu okkur frá ferðaplönunum þínum, hugmyndum og markmiðum.
2
Deildu plönunum þínum
Við kynnumst þér og því sem þú ert að leita að.
3
Fínstillum smáatriðin
Við mótum þína fullkomnu ferð saman.
4
Bókaðu áhyggjulaus
Við sjáum um smáatriðin svo þú getir einbeitt þér að ævintýrinu.
5
Vertu klár!
Pakkaðu töskunum og byrjaðu að telja niður.
Tillaga að ferðaáætlun
Þessi tillaga að ferð er bara byrjunin. Fínpússaðu leiðina, upplifanirnar og smáatriðin með sérfræðingunum okkar og gerðu ferðina alveg þína eigin.
Sólsetur í dagsferð til Ubud
Nýtið tækifærið og lærið að kafa!
Njóta á ströndinni í Uluwatu
Dagur 1-7: Sanur ströndin
Flogið er frá Íslandi til Balí með millilendingum í Frankfurt og Singapore þar sem tilvalið er að framlengja aðeins ferðina ef áhugi er fyrir því og skoða hvað borgin hefur upp á að bjóða. Þaðan liggur leiðin áfram til Balí.
Gist er í sex nætur á fjögurra stjörnu hóteli við Sanur ströndina með morgunverði. Sanur er rólegur og fallegur staður sem hentar vel til að jafna sig eftir langt flug og njóta fyrstu daganna saman. Héðan er tilvalið að fara í dagsferðir til Ubud, skoða hrísgrjónaakra, musteri og upplifa daglegt líf á Balí.
Sections.DayProgram.DetailsHeading/kilroy
Upplýsingar um verð
Fráverð á mann, með flugi fram og til baka, miðað við tvo ferðalanga saman í herbergi
Hvað er innifalið í þessari ferð?
Öll flug með tösku
6 nætur í Sanur á 4* hótel með morgunverði
5 nætur á Lembongan Island á 4* hóteli með morgunverði
6 nætur í Uluwatu á 5* hóteli með morgunverði
Þjónustugjald
Ráðgjöf hjá ferðasérfræðing
Tryggingar, en við getum aðstoðað þig við kaup á slíkum
Máltíðir aðrar en þær sem eru nefndar
Afþreyingar
Þarftu aðstoð við að skipuleggja brúðkaupsferðina?
Ferðasérfræðingarnir okkar hjálpa þér að móta ferðahugmyndina, velja áfangastaðina og skipuleggja ferð sem hentar þér.
Algengar spurningar
Hér að neðan eru algengar spurningar sem við fáum um brúðkaupsferðir og svörin við þeim. Finnur þú ekki svar við þinni spurningu? Endilega hafðu samband og ferðaráðgjafarnir okkar hjálpa þér!
Þið hafið samband og við hjálpum ykkur að setja saman ferð sem hentar ykkar óskum, hvort sem þið viljið slökun, ævintýri eða blöndu af hvoru tveggja.
Já, allar brúðkaupsferðirnar okkar eru sérsniðnar. Við getum aðlagað áfangastaði, ferðalengd, gistingu og upplifanir að ykkar óskum.
Besti tíminn er yfirleitt frá maí til september þegar þurrkatímabilið stendur yfir. Ef þið viljið njóta góðs veðurs en forðast mesta mannfjöldann eru apríl og október einnig frábærir kostir, með hlýju loftslagi, gróskumikilli náttúru og oft hagstæðara verði. Þá getur komið einn og einn regnskúr, en veðrið er yfirleitt mjög gott.
Já, Lembongan er vinsæll staður fyrir byrjendur sem vilja taka fyrstu skrefin í köfun eða prófa köfun í fyrsta sinn. Við getum hjálpað ykkur að finna afþreyingu sem hentar ykkur!









