Ferð

KLASSÍSK HEIMSREISA

Vinir í klassískri heimsreisu
Um ferð

Heimsreisa með öllu því besta

Þægileg og hagstæð flugleið sem gerir þér kleift að ferðast mikið landleiðis og upplifa ólíka áfangastaði. Framandi menning, heillandi paradísareyjar, skemmtileg roadtrip og fallegar strendur. Þetta er klassísk heimsreisa sem tekur þig frá hinni ævintýralegu Suðaustur-Asíu til Austurstrandar Bandaríkjanna með viðkomu á Balí, Ástralíu, Nýja Sjálandi og Fiji.

ATH: Þetta er ekki ákveðin ferð með föstum brottfarardagsetningum heldur ferðatillaga. Það er undir þér komið hvort þú vilt fara í nákvæmlega þessa ferð, bæta henni við ferðina þína eða gera hreinlega eitthvað allt annað. Við getum hjálpað þér að sérsníða ferðina þína nákvæmlega eins og þú vilt hafa hana.

Hápunktar ferðarinnar

Sérsniðnar ferðir

Byrjaðu með ferðatillögu sem við höfum sett saman og aðlagaðu hana að þínum þörfum með aðstoð ferðasérfræðinga okkar.

91 dagar

frá

580.000,-

/á mann

Innifalið

flight

Vespa á Balí
Smakkaðu matinn í Tælandi
Sólsetur í Tælandi
Long tail bátar í Tælandi
Lærðu að kafa á Balí

Fljótleg og einföld bókun hjá KILROY

1

Hafðu samband

Segðu okkur frá ferðaplönunum þínum, hugmyndum og markmiðum.

2

Deildu plönunum þínum

Við kynnumst þér og því sem þú ert að leita að.

3

Fínstillum smáatriðin

Við mótum þína fullkomnu ferð saman.

4

Bókaðu áhyggjulaus

Við sjáum um smáatriðin svo þú getir einbeitt þér að ævintýrinu.

5

Vertu klár!

Pakkaðu töskunum og byrjaðu að telja niður.

Dagskrá

Tillaga að ferðaáætlun

Þessi tillaga að ferðalagi er aðeins byrjunin. Fínpússaðu leiðina, upplifanirnar og smáatriðin með sérfræðingum okkar og gerðu ferðina algjörlega að þinni.

vika 1 / 13
Eyðimerkur safarí í Dúbaí
Sjálfboðastarf með fílum í Tælandi
Lærðu að surfa á Balí
Óperuhúsið í Sydney
Magnað landslag í Nýja-Sjálandi
Ævintýri á Fiji
Pálmatré í Kaliforníu
Frelsisstyttan í New York

Eyðimerkur safarí í Dúbaí

Sjálfboðastarf með fílum í Tælandi

Lærðu að surfa á Balí

Óperuhúsið í Sydney

Magnað landslag í Nýja-Sjálandi

Ævintýri á Fiji

Pálmatré í Kaliforníu

Frelsisstyttan í New York

vika 1: Dúbaí

Ferðin hefst í stórborginni Dúbaí. Þar getur þú skoðað hæstu byggingu heims og fleiri ótrúlega skýjakljúfa. Ef þér finnst gaman að versla þarftu að fara í hið risastóra Dubai Mall en þar finnur þú allar helstu tískubúðirnar, allskonar lúxusmerki og eitt stærsta fiskabúr í heimi.

Sandur og sól! Langar þig að fara um eyðimörkina á fjórhjóli, hitta kameldýr og upplifa einstaka matarmenningu? Við mælum með!

Sections.DayProgram.DetailsHeading/kilroy

Verð og innifalið

Upplýsingar um verð

Fráverð á mann, með flugi fram og til baka

Hvað er innifalið í þessari ferð?

  • Allir flugmiðar

  • ISIC kort

  • Bókunargjöld

  • Þinn eigin ferðaráðgjafi

  • Gisting

  • Staðbundnar samgöngur

  • Skipulagðar ævintýraferðir

  • Ferðatrygging (en við getum aðstoðað þig með það!)

Þarftu aðstoð við að skipuleggja ferðina?

Ferðasérfræðingarnir okkar hjálpa þér að móta ferðahugmyndina, velja áfangastaðina og skipuleggja ferð sem hentar þér.

FAQ

Algengar spurningar

Ert þú að skipuleggja heimsreisu? Hér eru svör við algengustu spurningunum um heimsreisur!

Asía spannar mörg loftslagssvæði og því er hægt að fara í þessa ferð á ýmsum tímum ársins. Við hjálpum þér að velja besta tímann út frá þeim löndum sem þú vilt heimsækja og hvers konar upplifun þú ert að leita að.

Já, algjörlega. Þetta er ferðatillaga en ekki ferð með föstum dagsetningum. Þú getur breytt leiðinni, gistingu, lengd stoppa og bætt við eða sleppt áfangastöðum eftir því sem hentar þér. Bókaðu fría ferðaráðgjöf hjá okkur og ferðaráðgjafi hjá KILROY hjálpar þér að skipuleggja ferð sem hentar þér!

Klárlega. Mörg sem fara í heimsreisur ferðast ein og Asía er vinsæll áfangastaður fyrir bakpokaferðalanga. Það er auðvelt að hitta annað ferðafólk á hostelum, í dagsferðum og á vinsælum ferðamannastöðum.

Já. Asía er einn vinsælasti áfangastaður heims fyrir bakpokaferðalanga og því eru miklar líkur á að þú hittir fólk alls staðar að úr heiminum, hvort sem það er á hostelum, í dagsferðum eða á ströndum.