Ferð

ROAD TRIP Í USA: FRÁ STRÖND TIL STRANDAR

Grand Canyon
Um ferð

Ertu til í alvöru road trip ævintýri?

Þessi ferðaleið tekur þig frá Los Angeles á vesturströndinni alla leið til New York á austurströndinni. Þú ferð yfir landið á um 8 vikum og færð að upplifa það besta sem Bandaríkin hafa upp á að bjóða, allt í einni ferð! Það er eiginlega ómögulegt að standast hugmyndina um að eyða 8 vikum á road trip yfir Bandaríkin. Farðu á þínum hraða og njóttu þess að taka allt inn! Frá Cali-stemmingunni í vestri til hipster New York í austri. Leiðin sem við höfum lagt til gerir þér kleift að fara í gegnum Kaliforníu, Nevada, Arizona, New Mexico, Texas, Oklahoma, Arkansas, Tennessee, Virginíu, Maryland, Pennsylvaniu og New York.

Þar sem þessi ferðatillaga er svona löng þá er ekki séns fyrir okkur að telja upp allt sem þú getur séð! Við tókum því saman það sem okkur fannst alveg ómissandi.

Hápunktar ferðarinnar

Sérsniðnar ferðir

Byrjaðu með ferðatillögu sem við höfum sett saman og aðlagaðu hana að þínum þörfum með aðstoð ferðasérfræðinga okkar.

56 dagar

frá

457.500,-

/á mann

miðað við 2 með flugi inniföldu

Innifalið

flight

Accommodation

Rental car

Venice, LA
Bensínstöð við vegkantinn í Death Valley

Fljótleg og einföld bókun hjá KILROY

1

Hafðu samband

Segðu okkur frá ferðaplönunum þínum, hugmyndum og markmiðum.

2

Deildu plönunum þínum

Við kynnumst þér og því sem þú ert að leita að.

3

Fínstillum smáatriðin

Við mótum þína fullkomnu ferð saman.

4

Bókaðu áhyggjulaus

Við sjáum um smáatriðin svo þú getir einbeitt þér að ævintýrinu.

5

Vertu klár!

Pakkaðu töskunum og byrjaðu að telja niður.

Dagskrá

Tillaga að ferðaáætlun

Þessi tillaga að ferð er bara byrjunin. Fínpússaðu leiðina, upplifanirnar og smáatriðin með sérfræðingunum okkar og gerðu ferðina alveg þína eigin.

vika 1 / 8
Venice, Los Angeles
Á ferðinni um götur Las Vegas
Sólsetur yfir gljúfrinu
Roswell, New Mexico
Sveitir Amarillo, Texas
Oklahoma City, Oklahoma
Baragata í Memphis
Country-paradís í Nashville
The Great Smokey Mountains
Við Hudson

Venice, Los Angeles

Á ferðinni um götur Las Vegas

Sólsetur yfir gljúfrinu

Roswell, New Mexico

Sveitir Amarillo, Texas

Oklahoma City, Oklahoma

Baragata í Memphis

Country-paradís í Nashville

The Great Smokey Mountains

Við Hudson

vika 1: Los Angeles, Kalifornía

Fyrsta stoppið í þessu road trippi er Los Angeles. Við höfum innifalið 3 nætur á uppáhalds hostelinu okkar á Venice Beach. Upplifðu andrúmsloftið á Venice Beach, farðu í notalega gönguferð meðfram Venice Canals eða drekktu í þig lífinu í líflegu Santa Monica. Ekki gleyma að heimsækja Griffith Observatory þar sem þú munt fá geggjað útsýni yfir borgina.

Sections.DayProgram.DetailsHeading/kilroy

Verð og innifalið

Upplýsingar um verð

Verð frá miðast við einn, með flugi fram og til baka, miðað við tvo ferðalanga saman

Hvað er innifalið í þessari ferð?

  • Flug til Los Angeles

  • Gisting í 3 nætur í Los Angeles

  • Bílaleiga í 8 vikur (Hertz FCAR model)

  • Gisting í 2 nætur í New York

  • Flug heim frá New York

  • Bókunargjöld

  • Ráðgjöf hjá ferðasérfræðing

  • Ferðatrygging (en við getum aðstoðað þig með það!)

  • One-way gjald, um 800EUR sem greitt er á staðnum

  • Bólusetningar

  • Máltíðir

  • Valfrjálsar afþreyingar / viðbætur

Bættu við afþreyingu og dagsferðir á leiðinni. Spyrðu ferðaráðgjafa okkar!

Þarftu aðstoð við að skipuleggja ferðina??

Ferðasérfræðingarnir okkar hjálpa þér að móta ferðahugmyndina, velja áfangastaðina og skipuleggja ferð sem hentar þér.

FAQ

Algengar spurningar

Hér má finna algengar spurningar og svör um road trip í Bandaríkjunnum.

Við hvetjum alltaf KILROY ferðalanga til að vera forvitna. Ekki keyra bara til að keyra. Stoppaðu þar sem þú getur, farðu niður þröngu hliðargötuna og ekki festast bara í húsbílnum. Kynnstu nýju fólki og kynntu þér nýjar leiðir til að gera hlutina. Kannaðu og vertu opin/n fyrir breytingum, því það er þá sem ævintýrin gerast!

Við mælum eindregið með að þú fyllir tankinn áður en þú keyrir í gegnum Death Valley. Það eru nokkrar bensínstöðvar í Death Valley National Park, en þær eru afskekktar, fáar og þekktar fyrir að vera dýrar vegna staðsetningar.

Nei. Bílaleigur í Bandaríkjunum fylgjast ekki með eða skipta sér af nákvæmri ferðaleiðinni þinni, svo lengi sem þú heldur þig innan leyfilegra marka (innan Bandaríkjanna).

Stóra reglan er landamæri. Að fara með bílaleigubíl frá Bandaríkjunum til Mexíkó er nánast alltaf stranglega bannað. Ætlarðu frekar til Kanada? Það er í lagi, en láttu bílaleiguna vita við afhendingu svo þau geti útvegað rétta tryggingapappíra.

Og mundu að halda þig við malbikaðar leiðir! Ef þú ferð út af vegi eða niður moldarstíga-eins og í Death Valley eða þjóðgörðum-fellur tryggingin úr gildi samstundis. Ef þú sprengir dekk eða rispar undirvagninn þar, þá borgar þú úr eigin vasa.

Við höldum að þú gætir líka haft gaman af...

Vantar þig meiri innblástur? Við höfum fleiri svipaðar ferðir fyrir þig til að skoða.