Road Trip í USA: Route 66

Frá Chicago til Los Angeles: Upplifðu alvöru bandarískt road trip
Lokið var við leiðina árið 1926 og fékk hún nafnið Route 66. Nærri 4000 km liggja frá Grant Park í Chicago til Santa Monica Boulevard í Los Angeles í gegnum þrjú tímabelti og átta fylki; Illinois, Missouri, Kansas, Oklahoma, Texas, New Mexico, Arizona og Kaliforníu.
Rithöfundurinn John Steinbeck nefndi hann „The Mother Road“ og Route 66 hefur alltaf verið samheiti við að vera á ferðinni, í átt að draumi eða að flýja glötuð tækifæri og svikin loforð. Route 66 hefur allt sem Bandaríkin eru þekkt fyrir. Þú munt finna borgir sem aldrei sofa, sléttur svo langt sem augað nær og litlar hamborgarabúllur með heimagerðum hamborgurum. Svo ekki sé minnst á ótrúlega náttúrufegurð.
Við höfum sett inn bílaleigu bíl fyrir þessa ferð en þú getur breytt honum í húsbíl ef þú vilt, valið er þitt! Það er líka gott að hafa í huga að þú sért með góða ferðatryggingu þegar þú leigir bíl erlendis. Við getum aðstoðað þig við það!
Hápunktar ferðarinnar
Sérsniðnar ferðir
Byrjaðu með ferðatillögu sem við höfum sett saman og aðlagaðu hana að þínum þörfum með aðstoð ferðasérfræðinga okkar.
frá
309.000,-
á mann
miðað við 2 með flugi inniföldu
Innifalið
flight
Accommodation
Rental car




Fljótleg og einföld bókun hjá KILROY
1
Hafðu samband
Segðu okkur frá ferðaplönunum þínum, hugmyndum og markmiðum.
2
Deildu plönunum þínum
Við kynnumst þér og því sem þú ert að leita að.
3
Fínstillum smáatriðin
Við mótum þína fullkomnu ferð saman.
4
Bókaðu áhyggjulaus
Við sjáum um smáatriðin svo þú getir einbeitt þér að ævintýrinu.
5
Vertu klár!
Pakkaðu töskunum og byrjaðu að telja niður.
Tillaga að ferðaáætlun
Þessi tillaga að ferðalagi er aðeins byrjunin. Fínpússaðu leiðina, upplifanirnar og smáatriðin með sérfræðingum okkar og gerðu ferðina algjörlega að þinni.
Þitt Route 66 ævintýri byrjar hér
Leggðu af stað til Springfield
Njóttu næturlífsins í Kansas City
Taktu göngutúr um borgina
Upplifðu það sem Route 66 hefur upp á að bjóða
Lifandi tónlist, góður matur og staðbundin menning
Upplifðu ekta kúrekamenningu í Texas
Saga, menning og eyðimerkurlandslag
Keyrðu um landslag New Mexico
Njóttu útsýnisins við töfrandi Horseshoe Bend
Upplifðu björtu ljósin í miðbæ Las Vegas
Renndu meðfram hinni þekktu Santa Monica Beach Path
Dagur 1-3: Chicago, Illinois
Route 66 byrjar í Chicago. Ef þú ert að heimsækja Chicago ættirðu ekki að missa af körfuboltaleik með Chicago Bulls. Mundu líka að heimsækja einn af mörgum retro blús börum borgarinnar áður en þú sækir bílaleigubílinn og byrjar road trippið.
Sections.DayProgram.DetailsHeading/kilroy
Upplýsingar um verð
Fráverð á mann, með flugi fram og til baka, miðað við tvo ferðalanga saman í herbergi
Hvað er innifalið í þessari ferð?
- Flug til Chicago
- 2 nætur á hóteli í Chicago
- Bílaleiga í 21 dag (Hertz FCAR gerð)
- 3 nætur á hóteli í LA
- Flug heim frá LA
- Bókunargjöld
- Þinn eigin ferðaráðgjafi
- Ferðatrygging (en við getum aðstoðað þig með það!)
- Bólusetningar
- Máltíðir
- Valfrjálsar uppákomur / viðbætur
Þarftu aðstoð við að skipuleggja ferðina?
Ferðasérfræðingarnir okkar hjálpa þér að móta ferðahugmyndina, velja áfangastaðina og skipuleggja ferð sem hentar þér.
Algengar spurningar
Ert þú að skipuleggja Route 66 road trip? Hér eru svör við algengustu spurningunum um að keyra Route 66, allt frá bestu stoppunum og ferðatíma yfir í hvenær er best að fara og hvaða bíl þú þarft.
Við hvetjum alltaf KILROY ferðalanga til að vera forvitna. Ekki keyra bara til að keyra. Stoppaðu þar sem þú getur, farðu niður þröngu hliðargötuna og ekki festast bara í húsbílnum. Kynnstu nýju fólki og kynntu þér nýjar leiðir til að gera hlutina. Kannaðu og vertu opin/n fyrir breytingum, því það er þá sem ævintýrin gerast!
Við mælum með um 4 vikum til að upplifa leiðina í rólegheitum og nýta hvert stopp til fulls.
Route 66 hefst í Chicago, Illinois, og endar í Los Angeles, Kaliforníu.
Helstu hápunktar eru Chicago, St. Louis, Santa Fe, Grand Canyon, Las Vegas og Los Angeles.
Já, bílaleiga er besta leiðin til að skoða Route 66 og ferðast á þínum hraða.
Vorið og haustið bjóða upp á þægilegt veður og frábærar aðstæður fyrir road trip.
Aksturstími er mismunandi eftir dögum, en þú getur átt von á nokkrum löngum akstursdögum milli áfangastaða.
Já, Route 66 er frábær leið til að kynnast Bandaríkjunum, þar sem borgarlíf, náttúra, menning og þekktir staðir blandast saman.
Taktu með þér þægilegan fatnað, föt fyrir breytilegt veður, sólgleraugu, sólarvörn og góðan road trip-playlista.
Sýnir 4 / 9 niðurstöður
Við höldum að þú gætir líka haft gaman af...
Vantar þig meiri innblástur? Við erum með fleiri svipaðar ferðir fyrir þig að skoða.













