FERÐIR TIL FILIPPSEYJA

Eyjar sem þú vilt aldrei yfirgefa
Kafaðu, surfaðu, farðu í gönguferðir og hoppaðu á milli paradísareyja í einu mest spennandi ævintýralandi Suðaustur-Asíu.




Valdar ferðir til Filippseyja
Sérvaldar upplifanir sem vert er að skoða
Eyjahopp án vesenis
Með yfir 7.000 eyjar að velja úr er kannski erfiðast að ákveða hvar ævintýrið á að byrja. Filippseyjar bjóða upp á endalausa möguleika, en það getur verið áskorun að finna réttu leiðina í gegnum eyjaklasann. Hvaða eyjar eru þess virði að heimsækja? Hvernig kemstu á milli þeirra? Og hvað passar best við þinn ferðastíl?
Ferðasérfræðingar okkar hjálpa þér að púsla saman ferð sem meikar sens, svo þú getir einbeitt þér að upplifuninni en ekki skipulaginu.

Bátaævintýri á Filippseyjum
Þarftu aðstoð við að skipuleggja ferð til Filippseyja?
Ferðasérfræðingarnir okkar hjálpa þér að móta ferðahugmyndina, velja áfangastaðina og skipuleggja ferð sem hentar þér.
Fleira en póstkortastrendur
Ferðalag um Filippseyjar snýst um miklu meira en hvítar strendur og túrkísblátt haf. Hér bíða tærar lindir, litríkt sjávarlíf, fossar, eldfjöll og þúsundir eyja sem hver um sig hefur sinn einstaka karakter. Það er því auðvelt að skilja af hverju Filippseyjar eru orðnar einn vinsælasti áfangastaður bakpokaferðalanga í Suðaustur-Asíu.
Eyjahopp er ein besta leiðin til að upplifa landið. Einn daginn geturðu slakað á á paradísarströnd, þann næsta gengið á eldfjall eða kafað niður að litríkum kóralrifum fullum af lífi. Með yfir 7.000 hitabeltiseyjar bjóða Filippseyjar upp á ótrúlega fjölbreytni og endalausa möguleika til ævintýra.
Hvort sem þú leitar að afslöppun, útivist eða upplifunum á ótroðnum slóðum, þá eru Filippseyjar áfangastaður sem stendur undir væntingunum.

Gljúfraganga á Filippseyjum
Af hverju að velja KILROY fyrir næstu ferðina þína
30+ ára reynsla
Yfir 30 ára reynsla, sérþekking og traustir samstarfsaðilar okkar um allan heim gera þér kleift að ferðast með öryggi og sjálfstrausti.
Persónuleg ferðaráðgjöf
Ferðaráðgjafi sem kynnist þínum óskum, draumum og markmiðum. Frá fyrstu hugmynd að heimkomu erum við með þér í hverju skrefi á leiðinni.
24/7 neyðarsími
Ef eitthvað óvænt kemur upp á er neyðarsíminn okkar opinn allan sólarhringinn. Ferðasérfræðingar KILROY eru til staðar fyrir þig, hvar og hvenær sem er.
KILROY leiðin
Bestu ferðirnar enda ekki þegar þú kemur heim. Þær lifa áfram í upplifunum, sögum og minningum sem fylgja þér lengi eftir að ferðinni lýkur.
Kafaðu inn í neðansjávarparadís
Með litríkum kóralrifum og ótrúlegu sjávarlífi eru Filippseyjar sannkölluð paradís fyrir kafara og snorklara. Landið er hluti af Coral Triangle, einu líffræðilega fjölbreyttasta hafsvæði heims, þar sem neðansjávarheimurinn iðar af lífi. Hér geturðu synt meðal sæskjaldbaka, hitabeltisfiska og litríkra kórala, auk þess sem sums staðar gefst tækifæri til að sjá tignarlega hvalháka.
Hvort sem þú ert reynslumikill kafari eða vilt taka fyrstu skrefin undir yfirborðinu bjóða Filippseyjar upp á frábærar aðstæður til köfunar. Hlýr sjór, gott skyggni og fjölbreyttir köfunarstaðir gera landið að einum eftirsóttasta köfunaráfangastað í heimi.
Viltu gera meira en að skoða neðansjávarheiminn? Taktu þátt í Marine Conservation & Diving Project og sameinaðu ævintýrið við náttúruvernd. Þar vinnurðu með staðbundnum sérfræðingum að verndun sjávarvistkerfa, tekur þátt í köfun og færð einstaka innsýn í mikilvægi þess að vernda kóralrif og sjávarlíf fyrir komandi kynslóðir.

Köfun á Filippseyjum
Algengar spurningar
Allt sem þú þarft að vita áður en þú ferð til Filippseyja!
Besti tíminn til að heimsækja Filippseyjar er yfirleitt frá desember til apríl, þegar veðrið er þurrara og stöðugra. Landið hefur hitabeltisloftslag, svo það er venjulega hlýtt og rakt allt árið. Á evrópskum sumarmánuðum er regntímabil á Filippseyjum, með miklum skúrum og stundum fellibyljum, sem getur gert ferðalög ófyrirsjáanlegri á þeim tíma.
Hver eyja getur verið með sitt eigið veðurmynstur, svo það borgar sig að kanna hvenær er besti tíminn fyrir þína áfangastaði. Álagstímar eru yfir jólin og páska, þegar verð hækka og vinsælir staðir fyllast. Eitt af hápunktunum sem vert er að upplifa er Sinulog hátíðin á Cebu í janúar, sem er litrík níu daga menningarhátíð.
Að ferðast milli eyja á Filippseyjum felur oft í sér blöndu af innanlandsflugi og ferjum. Flugin eru hraðasta og algengasta leiðin til að komast lengri vegalengdir, en ferjur eru notaðar fyrir styttri ferðir á milli nágrannaeyja. Þar sem Filippseyjar samanstanda af þúsundum eyja skiptir máli að skipuleggja leiðina vel. Við getum hjálpað þér að finna skilvirkustu leiðina á milli allra staða!
Fyrir stuttar ferðamannaferðir, allt að 30 daga, þurfa flestir ferðalangar ekki vegabréfsáritun til Filippseyja. Hins vegar þarf vegabréfið þitt að vera gilt í að minnsta kosti sex mánuði umfram áætlaðan brottfarardag, og þú gætir þurft að sýna fram á áfram- eða heimferð. Reglur um komu geta breyst, svo það er alltaf góð hugmynd að athuga nýjustu upplýsingarnar áður en þú leggur af stað.
Filippseyjar henta flestum ferðabudgetum. Matur, samgöngur og gisting eru oft á hagstæðu verði, sérstaklega utan vinsælustu ferðamannasvæðanna. Þótt kostnaður geti hækkað á þekktustu eyjunum og yfir háannatímann eru Filippseyjar almennt áfangastaður þar sem þú færð mikið fyrir peninginn. Hér geturðu sameinað paradísarstrendur, ævintýri og ógleymanlegar upplifanir án þess að tæma ferðasjóðinn.
Eyjahopp er ein besta leiðin til að skoða Filippseyjar. Vinsæl svæði eru meðal annars Palawan (El Nido og Coron), Bohol, Boracay og Visayas-eyjarnar, þar sem þú ferðast á milli stranda og smáeyja með bát. Hvert svæði hefur sinn sjarma. Frá tignarlegum kalksteinsklettum til hvítra sandstranda og líflegra kóralríkra sjávarsvæða.
Algjörlega! Flestar ferðir til Filippseyja innihalda nokkrar eyjar. Þar sem það þarf skipulag að ferðast milli eyja er mikilvægt að byggja upp rökrétta leið, til dæmis að blanda saman Palawan, Cebu, Bohol og Siargao. Við hjálpum þér að setja upp leið sem er landfræðilega skynsamleg svo þú getir nýtt tímann betur í ævintýrin og varið minni tíma í ferðalögum milli staða.
Já, við getum hjálpað þér að setja saman heildarferðaáætlun fyrir Filippseyjar sem passar við þinn ferðastíl, fjárhag og tíma. Ferðasérfræðingarnir okkar sjá um flug, gistingu, samgöngur og afþreyingu og tryggja að allt passi saman svo þú þurfir ekki að hafa áhyggjur af skipulaginu.
Til að upplifa Filippseyjar almennilega mælum við með að vera þar í að minnsta kosti 2-3 vikur. Þar sem eyjarnar eru yfir 7.000 tekur ferðalagið tíma, sérstaklega ef þú vilt skoða fleiri staði eins og Palawan, Cebu, Bohol eða Siargao. Styttri ferðir eru mögulegar, en þá þarftu líklega að einbeita þér að einu svæði til að eyða ekki of miklum tíma á ferðinni.
Ef þú hefur meiri tíma, þá gefa 3-5 vikur þér frelsi til að eyjahoppa á rólegri nótum, bæta við afskekktari stöðum og blanda saman ævintýrum og afslöppun. Ferðasérfræðingarnir okkar hjálpa þér að skipuleggja ferð sem passar við þinn tíma, svo þú fáir sem mest út úr dvölinni án þess að þurfa að flýta þér.
Filippseyjar eru almennt taldar öruggur áfangastaður fyrir ferðalanga. Eins og á öllum ferðalögum borgar sig þó að vera meðvitaður um umhverfið sitt og beita almennri skynsemi. Passaðu vel upp á verðmæti þín á fjölmennum stöðum, sýndu staðháttum og menningu virðingu og gættu varúðar í umferðinni. Ekki gleyma að pakka bæði sólarvörn og moskítóvörn, sérstaklega ef þú ætlar að eyða miklum tíma utandyra.
Sýnir 4 / 9 niðurstöður













