Ferðir til Grikklands

Eyjahopp og endalaus ævintýri
Frá fornum sögum til matar við sjávarsíðuna, Grikkland er fullkomið til að kanna á þínum hraða.





Goðsagnir, menning og eyjaævintýri
Grikkland er einn vinsælasti áfangastaðurinn fyrir ferðalanga og bakpokaferðalanga. Þetta söguríka land við Miðjarðarhafið býður upp á stórbrotið meginland, fallegar strandlengjur og hundruð eyja sem hver hefur sinn sjarma.
Aþena er skyldustopp á leiðinni, þar sem þú getur rölt á milli fornra minja eins og Akropolis, notið líflegra hverfa og sest niður á kaffihús eða bar eftir dag fullan af skoðunarferðum. Ef þú vilt blanda saman ævintýrum og afslöppun er eyjahopp á stöðum eins og Santorini og Mykonos algjör hápunktur.
Í ferðunum okkar færðu að upplifa það besta sem Grikkland hefur upp á að bjóða. Þú mátt búast við dögum fullum af sögu, menningu og ógleymanlegu útsýni, ásamt kvöldum þar sem ný vinátta myndast yfir góðum mat og grískri stemningu.

Forn stytta í Grikklandi
Þarftu aðstoð við að skipuleggja ferð til Grikklands?
Ferðasérfræðingarnir okkar hjálpa þér að móta ferðahugmyndina, velja áfangastaðina og skipuleggja ferð sem hentar þér.
Eyjahopp í Grikklandi
Á grísku eyjunum bíða sólardagar, tær sjór og upplifanir sem sitja lengi í minningunni. Röltu um sjarmerandi þorp, finndu faldar víkur og njóttu afslappaðs eyjalífsins. Þegar kvöldar tekur við grísk stemning, bragðgóður matur og sólsetur sem erfitt er að toppa.
Grísku eyjarnar eru hver annarri ólíkari og eyjahopp er ein besta leiðin til að upplifa fjölbreytileikann. Hvort sem þig dreymir um hvít hús og stórbrotin sólsetur á Santorini, líflegt næturlíf og strandlíf á Mykonos eða afslappaðar strendur og sjarmerandi þorp á Krít og Ródos, þá bíður ný upplifun á hverri eyju.
Á Kos geturðu hjólað á milli stranda og fornra minja, á meðan Samos heillar með grænu landslagi og fjölbreyttum ströndum. Hver eyja hefur sinn eigin karakter, en sameiginlegt er kristaltær sjór, ljúffeng miðjarðarhafsmatargerð og upplifanir sem gera það erfitt að velja uppáhaldseyju.
Hoppaðu á milli eyja með ferju, finndu þína uppáhalds vík og njóttu gríska eyjalífsins á þínum eigin hraða.

Sigling í Grikklandi
Af hverju að velja KILROY fyrir næstu ferðina þína
30+ ára reynsla
Yfir 30 ára reynsla, sérþekking og traustir samstarfsaðilar okkar um allan heim gera þér kleift að ferðast með öryggi og sjálfstrausti.
Persónuleg ferðaráðgjöf
Ferðaráðgjafi sem kynnist þínum óskum, draumum og markmiðum. Frá fyrstu hugmynd að heimkomu erum við með þér í hverju skrefi á leiðinni.
24/7 neyðarsími
Ef eitthvað óvænt kemur upp á er neyðarsíminn okkar opinn allan sólarhringinn. Ferðasérfræðingar KILROY eru til staðar fyrir þig, hvar og hvenær sem er.
KILROY leiðin
Bestu ferðirnar enda ekki þegar þú kemur heim. Þær lifa áfram í upplifunum, sögum og minningum sem fylgja þér lengi eftir að ferðinni lýkur.
Hagnýt ráð fyrir Grikklandsferðina
Langar þig að upplifa grísku eyjarnar án mesta mannfjöldans? Þá er tilvalið að ferðast í maí, september eða október. Veðrið er enn hlýtt og notalegt, en færri ferðalangar á ferðinni. Þú færð því meira pláss til að njóta stranda, bæja og afslappaðrar grískrar stemningar.

Grísk strönd
Algengar spurningar
Við svörum nokkrum af algengustu spurningunum um Grikkland hér að neðan. Ef þú þarft meiri upplýsingar, eða ef spurningin þín er ekki á listanum, hafðu samband!
Maí til júní er frábær tími ef þú elskar sólina, eða september til október þar sem sumarið getur orðið mjög heitt!
Íslenskir ríkisborgarar þurfa ekki vegabréfsáritun til Grikklands. Við mælum samt alltaf með að skoða nýjustu upplýsingar á heimasíðu sendiráðsins.
7 til 14 dagar er fullkomið!
Já, þú getur auðveldlega ferðast sóló hér, en við mælum líka með hópferðum fyrir betri upplifun og til að fá tækifæri til að sjá eyjarnar almennilega.












