BALÍ

Strendur, fossar og surfbretti
Balí er miklu meira en bara falleg eyja. Hér mætast litrík hindúamenning, gróskumikil náttúra og ævintýri á hverju horni. Frá grænum hrísgrjónaökrum og glæsilegum hofum til eldfjalla, fossa og paradísarstranda, Balí heillar flesta sem heimsækja eyjuna.
Dagarnir þínir geta verið jafn fjölbreyttir og landslagið sjálft. Prófaðu að surfa í Kuta eða Seminyak, vaknaðu snemma til að ganga upp á eldfjöll með sólarupprásina í bakgrunni, slakaðu á á hvítum sandströndum eða kafaðu og snorklaðu í kristaltæru vatni við Nusa Lembongan. Ef þú vilt hægja aðeins á ferðinni geturðu einnig notið rólega andrúmsloftsins í Ubud með jóga, kaffihúsum, hofum og daglegu lífi heimamanna.
Á Balí er alltaf eitthvað nýtt að upplifa og hver hluti eyjarinnar hefur sinn eigin karakter. Þess vegna mælum við með að gefa þér góðan tíma til að kanna mismunandi svæði og njóta ferðalagsins á þínum eigin hraða. Hvort sem þú ert að leita að slökun, menningu, náttúru eða ævintýrum býður Balí upp á ógleymanlegar upplifanir sem gera það erfitt að vilja fara aftur heim.



Uppgötvaðu fjölbreytileika Balí
Denpasar
Denpasar er þar sem margir lenda þegar þeir koma til Balí, en fyrir flesta ferðalanga er það aðeins upphafspunkturinn. Við mælum frekar með að halda strax af stað til annarra hluta eyjarinnar þar sem náttúran, menningin og ævintýrin bíða.
Ubud
Ubud er græna hjarta Balí og staðurinn sem margir verða ástfangnir af. Hér taka hrísgrjónaakrar, hof og frumskógur við af ströndum eyjarinnar. Heimsæktu Monkey Forest, röltu um Tegalalang-hrísgrjónaakrana, syntu í fossum eins og Kanto Lampo eða njóttu rólegs andrúmslofts á kaffihúsum og í jógastúdíóum.
Uluwatu
Dramatískir klettar, fallegar strendur og stórkostleg sólsetur gera Uluwatu að einum vinsælasta áfangastað Balí. Svæðið er sérstaklega vinsælt meðal surfara, en hentar jafn vel þeim sem vilja slaka á á kaffihúsi með útsýni yfir hafið eða njóta stemningarinnar á strandklúbbum og veitingastöðum.
Amed
Ef þig langar að upplifa rólegri hlið Balí skaltu setja Amed á listann þinn. Þetta afslappaða strandþorp er þekkt fyrir frábært snorkl og köfun, litríkt neðansjávarlíf og fallegt útsýni yfir eldfjallið Agung. Fullkominn staður til að hægja á ferðinni og njóta augnabliksins.
Canggu
Canggu hefur á undanförnum árum orðið einn vinsælasti staðurinn á Balí. Hér finnur þú góða blöndu af surfmenningu, kaffihúsum, veitingastöðum, næturlífi og afslappaðri stemningu. Svæðið er þó orðið nokkuð vinsælt og því getur verið mikið um fólk og umferð, sérstaklega á háannatíma. Hvort sem þú vilt læra að surfa, hitta aðra ferðalanga eða njóta lífsins við ströndina er Canggu frábær kostur.
Kuta
Kuta er einn þekktasti ferðamannastaður Balí og er sérstaklega þekktur fyrir líflegt næturlíf, langa strönd og góðar aðstæður fyrir byrjendur í brimbrettum. Þó margir kjósi að eyða meiri tíma annars staðar á eyjunni getur Kuta verið skemmtilegt stopp fyrir þá sem vilja mikið fjör og mannlíf.
Seminyak
Seminyak er stílhreinn og líflegur strandbær sem er þekktur fyrir flott hótel, vinsæla strandklúbba og frábært úrval veitingastaða. Hér geturðu notið aðeins meiri þæginda án þess að fórna afslappaðri Balí-stemningunni. Fullkomið fyrir þau sem vilja blanda saman strandlífi, góðum mat og smá dekri.

Að njóta útsýnisins yfir hrísgrjónaakrana í Ubud
Eyjahopp á Balí
Við getum hjálpað þér að setja saman ferð með gistingu, afþreyingu og flugum, þannig að þú upplifir ekki bara Balí heldur líka eyjarnar í kring. Þar bíða paradísarstrendur með túrkísbláu vatni, snorkl með skjaldbökum og strendur til að slaka á.
Gili-eyjar
Gili-eyjarnar eru sannkölluð köfunarparadís. Þær tilheyra Lombok, en eru klárlega þess virði að bæta við Balí ferðina þína. Fallegar strendur, kristaltært vatn og líflegt næturlíf. Gili-eyjarnar eru þrjár: Gili Trawangan, Gili Meno og Gili Air. Þær hafa allar sinn sjarma, veldu þá eyju sem hentar þér best!
Nusa Lembongan
Þessi litla eyja er nær Balí og býður upp á afslappað andrúmsloft og frábæra surf möguleika. Við getum aðstoðað við að bóka surfnámskeið eða styttri surfupplifun.
Lombok
Lombok er ósnortin indónesísk eyja rétt austan við Balí, þekkt fyrir stórbrotin eldfjöll, heimsklassa brimbretti og hvítar sandstrendur.

Hjólaferð um Gili Air
Aðrir staðir í Indónesíu
Uppgötvaðu fjölbreytt svæði Indónesíu
Af hverju að velja KILROY fyrir næstu ferðina þína
30+ ára reynsla
Yfir 30 ára reynsla, sérþekking og traustir samstarfsaðilar okkar um allan heim gera þér kleift að ferðast með öryggi og sjálfstrausti.
Persónuleg ferðaráðgjöf
Ferðaráðgjafi sem kynnist þínum óskum, draumum og markmiðum. Frá fyrstu hugmynd að heimkomu erum við með þér í hverju skrefi á leiðinni.
24/7 neyðarsími
Ef eitthvað óvænt kemur upp á er neyðarsíminn okkar opinn allan sólarhringinn. Ferðasérfræðingar KILROY eru til staðar fyrir þig, hvar og hvenær sem er.
KILROY leiðin
Bestu ferðirnar enda ekki þegar þú kemur heim. Þær lifa áfram í upplifunum, sögum og minningum sem fylgja þér lengi eftir að ferðinni lýkur.
Þarftu aðstoð við að skipuleggja ferð til Balí?
Ferðasérfræðingarnir okkar hjálpa þér að móta ferðahugmyndina, velja áfangastaðina og skipuleggja ferð sem hentar þér.
Algengar spurningar
Ertu að skipuleggja ferð til Bali? Hér finnurðu svör við algengustu spurningunum frá ferðasérfræðingum okkar.
Þurrkatímabilið
Júní til september er besti tíminn til að heimsækja Bali, sérstaklega til að skoða strendur og fara í gönguferðir um frumskóginn. Veðrið er sólríkt og minnst líkur á rigningu. Fullkomið fyrir sumarfrí!
Rigningartímabilið
Frá október til apríl er meiri rigning, en þá eru gróðurinn grænni og færri ferðamenn á svæðinu. Fullkomið fyrir þá sem vilja rólegri upplifun.
Yfirleitt er ódýrast að ferðast til Bali á rigningartímanum, sem er lágannatími á eyjunni. Þá eru verð á hótelum og hostelum lægri og oft er hægt að finna ódýrari flug. Þrátt fyrir rigningardaga færðu yfirleitt nóg af sól, þar sem skúrirnar eru oft stuttar og líða fljótt hjá.
Balí er almennt ekki þekkt fyrir góðar almenningssamgöngur. Akstur sem Google Maps segir að taki eina klukkustund getur auðveldlega tekið þrjár vegna umferðar og stundum slæmra vega. Gott er að hafa það í huga.
Að leigja vespu
Þú getur leigt vespu á Balí en mundu eftir hjálminum og vertu varkár í umferðinni.
Einkabílstjórar
Við getum hjálpað þér að bóka staðbundna bílstjóra fyrir þægilegar ferðir um eyjuna.
Balí er stútfull af mögnuðum upplifunum. Lærðu að surfa, skoðaðu litrík kóralrif, prófaðu jóga, eltu fossana og kynnstu einstakri menningu eyjunnar.
Viltu ferðast með ævintýragjörnu fólki? Skráðu þig í eina af hópferðum okkar til Balí! Þá færðu fullkomna blöndu af skipulögðum upplifunum og frelsi til að njóta ferðarinnar á þínum eigin forsendum. Þú þarft bara að bóka ferðina, pakka bakpokanum og mæta tilbúin/n í ævintýri. Á leiðinni upplifirðu það besta sem Balí hefur upp á að bjóða og eignast nýja vini alls staðar að úr heiminum.











