FERÐIR TIL JAPAN

Japan
Um áfangastaðinn

Land sem kemur sífellt á óvart

Frá neonljósum Tókýó til rólegra hofa í Kyoto, frá sumóglímu og sushi til eldfjalla og fjallalandslags. Japan er áfangastaður sem kemur sífellt á óvart.

Kyoto
Prófaðu kimono í Japan
Smakkaðu japanska matarmenningu
Skelltu þér í hópferð í Japan
Ferðir

Valdar ferðir til Japans

Handvaldar upplifanir sem vert er að skoða

Frá neonljósum stórborganna til aldagamalla mustera

Borgir á borð við Tókýó og Osaka eru fullkominn staður til að kynnast nútíma Japan. Hér taka skýjakljúfar, neonlýstar götur, tækninýjungar og iðandi mannlíf á móti þér á hverju horni. Margir byrja ferðalagið einmitt hér til að upplifa hraðann, orkuna og einstaka stemningu japönsku stórborganna.

En Japan er svo miklu meira en bara framtíðartækni og stórborgarlíf. Til að upplifa aðra hlið landsins skaltu heimsækja Kyoto og Nara, fyrrum höfuðborgir Japans sem geyma stóran hluta af menningararfi þjóðarinnar. Hér geturðu gengið á milli fallegra mustera, friðsælla garða og hefðbundinna hverfa sem veita innsýn í sögu og hefðir landsins.

Ef þú vilt kafa enn dýpra inn í andlega hlið Japans skaltu halda til Koyasan (Mount Koya), sem er ein mikilvægasta miðstöð búddisma í landinu. Þar geturðu gist í musteri, kynnst daglegu lífi munkanna og upplifað ró og kyrrð sem er í mikilli andstæðu við ys og þys stórborganna.

Þessi einstaka blanda af fortíð og framtíð er það sem gerir Japan að einum heillandi áfangastað heims.

Tokyo

Tokyo

Þarftu aðstoð við að skipuleggja ferð til Japan?

Ferðasérfræðingarnir okkar hjálpa þér að móta ferðahugmyndina, velja áfangastaðina og skipuleggja ferð sem hentar þér.

Náttúra sem kemur sífellt á óvart

Japan er miklu meira en bara stórborgir og neonljós. Fyrir utan borgarlífið bíður fjölbreytt náttúra með fjöllum, skógum, vötnum og eldfjöllum sem gera landið að draumaáfangastað fyrir útivistarfólk.

Þú getur klifið hið fræga Fuji-fjall, gengið um friðsæla bambusskóga í Arashiyama eða heimsótt Jigokudani Monkey Park þar sem snjóapar slaka á í heitum laugum innan um fjallalandslagið. Ef þig langar að kanna meira býður Japan upp á fjölmargar eyjar með gjörólíkar upplifanir. Á Okinawa finnurðu hvítar strendur og tærblátt haf, á Hokkaido bíða fyrsta flokks skíðasvæði og á Yakushima geturðu gengið um forna skóga með þúsunda ára gömlum sedrusviðtrjám.

Hvort sem þú sækist eftir ævintýrum í náttúrunni, rólegum gönguferðum eða einstökum upplifunum á ótroðnum slóðum er Japan fullt af stöðum sem bíða þess að vera uppgötvaðir. Þetta er land andstæðnanna, þar sem ný ævintýri leynast handan við hvert horn.

Náttúra Japans

Náttúra Japans

Svæði í Japan

Japan er miklu meira en bara Tókýó og Kyoto

Uppgötvaðu fjölbreytileika Japans.

Af hverju að velja KILROY fyrir næstu ferðina þína

30+ ára reynsla

Yfir 30 ára reynsla, sérþekking og traustir samstarfsaðilar okkar um allan heim gera þér kleift að ferðast með öryggi og sjálfstrausti.

Persónuleg ferðaráðgjöf

Ferðaráðgjafi sem kynnist þínum óskum, draumum og markmiðum. Frá fyrstu hugmynd að heimkomu erum við með þér í hverju skrefi á leiðinni.

24/7 neyðarsími

Ef eitthvað óvænt kemur upp á er neyðarsíminn okkar opinn allan sólarhringinn. Ferðasérfræðingar KILROY eru til staðar fyrir þig, hvar og hvenær sem er.

KILROY leiðin

Bestu ferðirnar enda ekki þegar þú kemur heim. Þær lifa áfram í upplifunum, sögum og minningum sem fylgja þér lengi eftir að ferðinni lýkur.

Ferðastu um Japan á þinn hátt

Ein besta leiðin til að upplifa Japan er að leggja af stað í road trip. Þá geturðu ferðast á þínum eigin hraða, heimsótt staði á ótroðnum slóðum og stoppað hvar sem útsýnið eða ævintýrið kallar. Á leiðinni færðu að kynnast fornum hefðum, stórbrotinni náttúru og japanskri matarmenningu á dýpri hátt.

Ef bílaferð hentar þér síður er Japan Rail Pass frábær kostur. Passinn er í boði fyrir 7, 14 eða 21 dag og veitir aðgang að öflugu lestarkerfi landsins. Með hraðlestum, neðanjarðarlestum og strætisvögnum kemstu auðveldlega á milli helstu áfangastaða.

Viltu frekar sleppa skipulaginu? Þá gæti skipulögð ferð með staðbundnum leiðsögumanni hentað vel. Leiðsögumaðurinn sér um samgöngur, gistingu og dagskrá svo þú getir einbeitt þér að upplifuninni. Auk þess færðu dýpri innsýn í menninguna og uppgötvar staði sem margir ferðamenn missa af. Að hafa leiðsögumann sem talar bæði ensku og japönsku getur einnig gert ferðalagið enn auðveldara og ríkara af upplifunum.

Lestir í Japan

Lestir í Japan

FAQ

Algengar spurningar

Finndu svör við algengustu spurningunum um Japan.

  • Vegabréf & vegabréfsáritun: Gildir allan ferðatímann. Skoðaðu vefsíðu sendiráðsins til að sjá hvort þú þurfir að sækja um vegabréfsáritun.

  • Visit Japan Web: Skráðu þínar upplýsingar á Visit Japan Web vefinn fyrir ferðina. Þá færðu QR kóða sem flýta fyrir afgreiðslu hjá innflytjenda- og tollafgreiðslu.

  • Staðfesting á ferð og fjármálum: Hafðu heimilisfang gististaðarins við höndina og vertu tilbúin/n að sýna flugmiða til baka eða næga fjármuni við komu.

  • Lyf: Í Japan eru strangar reglur um innflutning á lyfjum og lyfseðilsskyldum vörum. Athugaðu fyrirfram hvort lyf sem þú þarft að hafa meðferðis séu leyfð í landinu.

Þó að flugið til Japans geti kostað sitt þarf ferðin sjálf ekki að gera það. Matur, samgöngur og fjölmargar upplifanir eru oft á hagstæðara verði en margir búast við.

  1. Bókaðu flugmiða með góðum fyrirvara. Oft gildir að því fyrr sem þú bókar, því ódýrara verður það.

  2. Veldu ódýra gistingu, eins og hostel eða capsule-hótel.

  3. Nýttu þér Japan Rail Pass, lestarmiða sem gefur þér ótakmarkaðar ferðir með flestum lestum í Japan fyrir fasta upphæð.

  4. Borðaðu á staðbundnum veitingastöðum eða í matvöruverslunum þar sem þú finnur góðan og ódýran mat.

  5. Heimsæktu ókeypis eða ódýr kennileiti, eins og musteri, almenningsgarða, söfn og markaði.

  6. Viltu forðast mannþröng og spara pening? Þá gæti verið sniðugt að heimsækja Japan utan háannatíma. Á vinsælum tímabilum eins og þegar kirsuberjatrén blómstra er eftirspurn mikil, verð hærra og ferðamenn fleiri.

Verðrið í Japan getur verið mjög mismunandi eftir landshlutum og árstíma. Almennt eru júlí og ágúst heitustu mánuðirnir, þar sem hitastig nær oft 30°C eða meira. Fyrir marga er vorið og haustið þó besti tíminn til að heimsækja landið, þegar hitastigið er þægilegra og náttúran skartar sínu fegursta.

Dreymir þig um að sjá kirsuberjablómin? Þá er vorið, yfirleitt frá lok mars til apríl, vinsælasti tíminn til að ferðast til Japans. Á haustin, frá september til nóvember, taka svo litrík haustlauf við og skapa ekki síður stórkostlegt landslag.

Ef þetta er fyrsta ferðin þín til Japans er erfitt að slá við þessari klassísku leið. Þú getur byrjað í stórbrotinni Tókýó, heimsótt Mount Fuji í Hakone, tekið hraðlestina til hefðbundnu Kyoto og endað ferðina í nútímalegu Osaka.

Hefur þú tök á að ferðast lengur en 2 vikur? Bættu þá sögulegu borgunum Himeji og Hiroshima við eða veldu sveitina í Nikko til að fullkomna ferðina. Langar þig í ævintýri? Farðu á skíði í snjó sem gæti verið sá besti í heimi!