TÓKÝÓ

Tókýó ofan frá

Heillandi stórborgarljós Tókýó

Tókýó er höfuðborg Japans, stærsta borg landsins og ofarlega á bucket listanum hjá mörgum. Þar finnur þú neonljós, götumat, snjalltæki, hof og endalaust af geggjuðum veitingastöðum. Við hjá KILROY höfum sjálf ferðast mikið um Japan og erum tilbúin að hjálpa þér að bera saman flug og bóka ævintýri í Tókýó og víðar!

Teamlab Tókýó
Iðandi markaðsgata
Shibuya-gatnamótin

Hápunktar í Tókýó

Frá neonljósum Akihabara til götumatarmenningarinnar í Ueno, tískunnar í Harajuku og iðandi mannlífsins í Shibuya. Tókýó er borg sem á skilið sæti á öllum bucket listum.

Akihabara: Kafaðu ofan í heim tækni, anime og tölvuleikja þar sem skær neonljós og einstök stemning skapa þá Tókýó-mynd sem margir þekkja úr kvikmyndum og ferðabloggum.

Shibuya: Shibuya er miklu meira en frægu gatnamótin. Upplifðu orkuna í einu líflegasta hverfi borgarinnar, skoðaðu verslanir, kaffihús og næturlíf og krossaðu svo yfir heimsþekktu gangbrautina sjálfur.

Harajuku: Þetta er miðpunktur japanskrar götutísku og sköpunar. Röltu um litríkar götur, gramsaðu í second-hand búðum og uppgötvaðu hluti sem þú vissir ekki að þig langaði í.

Tokyo Skytree: Taktu lyftuna upp á eitt hæsta útsýnismannvirki heims og njóttu stórbrotins útsýnis yfir endalausa borgina.

Shinjuku: Skýjakljúfar, neonljós, karaókíbarir og iðandi næturlíf. Í Shinjuku sérðu Tókýó í sínu líflegasta og framtíðarlegasta formi.

Ueno: Kynntu þér daglegt líf heimamanna á markaðsgötunum í Ueno og smakkaðu japanska klassíka rétti á borð við takoyaki og okonomiyaki.

Iðandi gata

Iðandi gata

Að ferðast um Tókýó og víðar

Samgöngukerfið í Japan er algjörlega á öðru leveli. Við erum sko ekki að tala um hristandi, seina strætó með bilað loftkælingarkerfi hér. Hér eru engar tafir, engin óþarfa bið og enginn streita. Þess í stað ferðast þú með heimsfrægu Shinkansen-hraðlestunum, sem tengja saman stærstu borgir landsins á ótrúlega skilvirkan hátt. Fyrir marga er ferð með hraðlestunum upplifun út af fyrir sig.

Með Japan Rail Pass geturðu ferðast auðveldlega á milli helstu áfangastaða og fengið meira út úr ferðinni. Hoppaðu um borð í lest í Tókýó og áður en þú veist af ertu kominn til Kyoto, Osaka, Nara eða Hiroshima. Þegar lestarkerfið er svona þægilegt verður ferðalagið á milli staða hluti af ævintýrinu, ekki bara leiðin á áfangastað.

Samgöngur í Tókýó

Samgöngur í Tókýó

Af hverju að velja KILROY fyrir næstu ferðina þína

30+ ára reynsla

Yfir 30 ára reynsla, sérþekking og traustir samstarfsaðilar okkar um allan heim gera þér kleift að ferðast með öryggi og sjálfstrausti.

Persónuleg ferðaráðgjöf

Ferðaráðgjafi sem kynnist þínum óskum, draumum og markmiðum. Frá fyrstu hugmynd að heimkomu erum við með þér í hverju skrefi á leiðinni.

24/7 neyðarsími

Ef eitthvað óvænt kemur upp á er neyðarsíminn okkar opinn allan sólarhringinn. Ferðasérfræðingar KILROY eru til staðar fyrir þig, hvar og hvenær sem er.

KILROY leiðin

Bestu ferðirnar enda ekki þegar þú kemur heim. Þær lifa áfram í upplifunum, sögum og minningum sem fylgja þér lengi eftir að ferðinni lýkur.

Þarftu aðstoð við að skipuleggja ferð til Tókýó?

Ferðasérfræðingarnir okkar hjálpa þér að móta ferðahugmyndina, velja áfangastaðina og skipuleggja ferð sem hentar þér.

FAQ

Algengar spurningar

Við höfum sjálf ferðast um Tókýó og Japan, svo við vitum nákvæmlega hvernig þetta virkar. Við hjálpum þér að hámarka budget-ið með því að finna bestu dílana á flugum og afþreyingu, auk þess að deila okkar bestu ferðaráðum!

Ef þú ert að skipuleggja ferð til Japan, þá skaltu hafa í huga að veðrið getur verið mjög mismunandi eftir stað og árstíma. Japan á fjögur mjög ólík árstíðaskipti, hvert með sínu eigin andrúmslofti og ævintýrum!

Vorið (mars - maí) Vorið er eitt vinsælasta tímabilið til að heimsækja Japan, sérstaklega vegna kirsuberjablómanna. Veðrið er líka einstaklega milt og notalegt!

Sumarið (júní - ágúst) Sumarið getur verið heitt og rakt, en þá eru líka stórkostlegar hátíðir (matsuri) og magnaðar flugeldasýningar (hanabi).

Haustið (september - nóvember) Haustið er líka í miklu uppáhaldi hjá ferðalöngum, með svalara lofti og ótrúlegum haustlitum.

Vetur (desember - febrúar) Veturinn í Japan getur verið kaldur, en þá er fullkomið að fara á skíði, njóta heitra lauga (onsen) og kíkja á vetrarhátíðir.

Yfirleitt mælum við með 5 til 7 dögum til að upplifa Tókýó almennilega. En þetta er þín ferð og þitt budget. Hvað langar þig að sjá og gera? Hér eru nokkur atriði sem gott er að hafa í huga þegar þú setur saman dagskrána:

Helstu staðirnir

Tókýó er stútfull af áhugaverðum stöðum og upplifunum. Ef þú vilt sjá alla helstu staðina eins og Shibuya, Shinjuku, Asakusa og Akihabara, þá þarftu að taka frá að minnsta kosti 4-5 daga. Þá hefurðu nægan tíma til að skoða musteri, versla og kafa ofan í spennandi matarmenningu Japans.

Dagsferðir

Það er auðvelt að taka dagsferðir til staða eins og Nikko, Kamakura eða Hakone. Ef þú vilt bæta þessu við, mælum við með að bæta 2-3 dögum við áætlunina. Frábær leið til að kynnast öðruvísi hliðum Japans fyrir utan Tókýó.

Þín áhugamál

Stilltu ferðina eftir þínum áhugamálum. Ertu fyrir listir og menningu, mat, verslanir eða tækni? Bættu við nokkrum dögum til að prófa nýja veitingastaði, taka þátt í vinnusmiðjum eða heimsækja söfn. Þá verður þetta þín draumaferð!

Upplifa borgina

Ef þú hefur tíma, þá er algjör snilld að bæta við nokkrum dögum bara til að rölta um og njóta andrúmsloftsins. Að skoða almenningsgarða, furðuleg kaffihús og markaði gefur þér miklu raunverulegri mynd af borginni. Ef þú vilt afslappaðri ferð, þá eru 7-10 dagar góð viðmiðun.

Að ferðast um borgina

Tókýó er risastór og þó samgöngukerfið sé frábært, þá tekur það tíma að komast á milli hverfa og staða. Passaðu að gera ráð fyrir ferðatíma svo þú þurfir ekki að flýta þér um allt.

1. Kannaðu mismunandi hverfi

Tókýó er eins og púsluspil af ólíkum hverfum með gjörólíkt andrúmsloft. Frá framtíðarorkunni í Shibuya og Shinjuku yfir í hefðbundna sjarma Asakusa og Ueno. Ekki missa af því að skoða sem flest svæði til að fá alvöru Tókýó upplifun.

2. Farðu í dagsferð

Það eru ótrúlega margar spennandi dagsferðir í boði með aðeins stuttri lestarferð. Skoðaðu sögulegu göturnar í Kamakura, njóttu útsýnis við Fuji Five Lakes, eða kíktu á heimsþekkta skemmtigarða eins og Tokyo Disneyland.

3. Lærðu nokkur japönsk orð

Margir í Tókýó tala ensku, en það er alltaf vel þegið ef þú reynir að segja nokkur einföld orð á japönsku. Það sýnir virðingu og auðveldar samskipti.

4. Forðastu háannatímann

Samgöngur í Tókýó eru ótrúlega öflugar, en það getur verið mikið um fólk á háannatíma, sérstaklega í lestum og neðanjarðarlestum. Reyndu að forðast lestirnar á álagstímum, yfirleitt milli 7-9 á morgnana og 17-19 á kvöldin.

5. Fara í matarævintýri

Matarupplifanir í Tókýó eru stórkostlegar. Prófaðu allt frá sushibarum með færibandi og rjúkandi skálum af ramen yfir í litla götubása. Það er líka algjör skylduferð að heimsækja Izakaya, japanskaa krá, fyrir líflega kvöldstund!

6. Pakkaðu eftir árstíð

Tókýó er falleg allt árið, en veðrið getur verið mjög breytilegt. Kíktu á veðurspána og pakkaðu skynsamlega!

7. Sæktu réttu öppin

Sparaðu þér hausverk og sæktu Google Maps eða Japan Travel appið fyrir lestarkerfið, auk góðs þýðingaforrits.

8. Virðing fyrir menningu

Í Japan eru ákveðnar reglur og hefðir sem gott er að kynna sér. Lestu þig til áður en þú ferð (eða hafðu samband og við gefum þér ráð!) svo þú sért ávallt kurteis ferðalangur.

Það kostar meira að fara til Japan en margra annarra áfangastaða í Asíu, en þú getur alveg haldið kostnaðinum í skefjum ef þú skipuleggur vel. Með smá undirbúningi geturðu upplifað Tókýó og aðra hluta þessa magnaða lands án þess að fara yfir strikið. Hafðu samband og við segjum þér allt um það!

Hagkvæmir gististaðir

Flug og hótel eru oft stærstu útgjöldin, en við getum fundið hagkvæma valkosti fyrir þig, eins og kapsúluhótel og einfaldari gististaði sem halda samt mjög háum gæðastandard! Við hjálpum þér að finna ódýrustu staðina án þess að fórna gæðum.

Samgöngur á staðnum

Að ferðast um Tókýó er líka kostnaður sem þarf að hafa í huga, en það er ódýrara en þú heldur. Lestarkort eins og Japan Rail Pass er ótrúlega þægilegt og hagkvæmt fyrir sjálfstæða ferðalanga. Og þú þarft ekki að hafa áhyggjur af töfum því japanir eru alltaf stundvísir, og lestirnar líka!

Við erum hér til að gera ferðina til Japans eins einfalda og mögulegt er. Hvort sem þú ert að leita að ódýru flugi til Tókýó, vilt bera saman mismunandi leiðir eða þarft ráð um besta ferðatímann, þá hjálpum við þér að finna lausn sem hentar þér.

Hvaða flugvöllur er best að lenda á? Hvaðan er hagkvæmast að fljúga? Hvernig forðastu langar biðstöðvar? Þarftu vegabréfsáritun? Við höfum svörin. Ef þú vilt til dæmis fljúga til Tókýó og heim frá Osaka getum við einnig fundið bestu flugleiðirnar og miðana fyrir slíka ferð.

Sýnir 4 / 5 niðurstöður