FERÐIR TIL KAMBÓDÍU

Land mustera, frumskóga og endalausra uppgötvana
Kannaðu goðsagnakennda Angkor Wat, sigldu eftir Mekong-fljóti og slakaðu á á suðrænum ströndum eftir daga fulla af menningu, sögu og ævintýrum.





Kannaðu musteri, eyjar og sögu Kambódíu
Kambódía er kannski þekktust fyrir Angkor Wat, en hér er svo miklu meira að uppgötva en bara stærsta trúarmannvirki heims. Röltu um fornu borgina Angkor Thom, skoðaðu aldargömul musteri falin í frumskóginum og upplifðu hlýja gestrisni heimamanna. Frá líflegum götum Phnom Penh, þar sem þú getur kynnst áhrifamikilli sögu landsins, til hvítu sandstrandanna á Koh Rong og Koh Rong Samloem. Kambódía býður upp á blöndu af menningu, náttúru og afslöppun. Hvort sem þú ferðast eingöngu um Kambódíu eða sameinar hana við nágrannalönd, þá er þetta ógleymanlegur áfangastaður á ævintýraferð um Suðaustur-Asíu.

Farðu í bakpokaævintýri um Kambódíu
Þarftu aðstoð við að skipuleggja ferð til Kambódíu?
Ferðasérfræðingarnir okkar hjálpa þér að móta ferðahugmyndina, velja áfangastaðina og skipuleggja ferð sem hentar þér.
Helstu upplifanir í Kambódíu
Frá fornum musterum til suðrænna eyja og áhrifamikilla sögustaða. Kambódía er stútfull af upplifunum sem þú gleymir ekki. Hér eru staðirnir sem þú vilt ekki missa af:
Kannaðu musteri Angkor
Engin ferð til Kambódíu er fullkomin án heimsóknar í Angkor Wat, eitt áhrifamesta mannvirkis í heimi. Dveldu í Siem Reap og gefðu þér nokkra daga til að kanna musterissvæðið. Þar bíða Angkor Thom, Ta Prohm og fjölmörg minni musteri sem leynast á milli trjáa og frumskógargróðurs.
Uppgötvaðu fleiri musteri Kambódíu
Þótt Angkor Wat steli oft senunni eru víða um land glæsileg musteri sem vert er að skoða. Í Phnom Penh má heimsækja Wat Ounalom, Wat Phnom og Wat Moha Montrei sem veita innsýn í búddíska menningu landsins. Silfurhofið er einnig skyldustopp, þekkt fyrir stórbrotna hönnun og falleg smáatriði. Að deginum loknum er tilvalið að rölta meðfram Mekong-fljóti og setjast inn á eitt af notalegu kaffihúsunum við árbakkann.
Kynntu þér sögu og menningu Phnom Penh
Höfuðborg Kambódíu er heillandi blanda af sögu, menningu og nútímalífi. Heimsæktu Killing Fields og Tuol Sleng safnið til að fá innsýn í sögu landsins og skoðaðu síðan kennileiti á borð við Silfurhofið og Wat Phnom. Á kvöldin lifnar borgin við með iðandi götum, kaffihúsum og spennandi matarmenningu.
Slakaðu á á suðrænum eyjum
Eftir musteraleit og borgarlíf er fátt betra en að skella sér á eina af eyjum Kambódíu. Frá Sihanoukville er auðvelt að komast út á eyjar með hvítar strendur, tæran sjó og afslappað andrúmsloft. Koh Russei (Bamboo Island) er tilvalinn staður til að hægja á ferðinni, njóta stórbrotinna sólsetra og sofa undir stjörnubjörtum himni.
Ef þig langar í meira ævintýri skaltu halda til Banlung í norðausturhluta landsins. Þar bíða frumskógar, fossar og eldfjallavatnið Yeak Laom, sem er fullkomið fyrir þá sem vilja komast aðeins á ótroðnar slóðir.
Upplifðu lífið á Mekong
Farðu í bátsferð á Mekong-fljóti og sjáðu Kambódíu frá öðru sjónarhorni. Á leiðinni færðu innsýn í daglegt líf á bökkum árinnar, fjarri helstu ferðamannastöðunum, og upplifir hlið landsins sem margir ferðalangar fara fram hjá.

Kannaðu forn Angkor Wat musteri
Af hverju að velja KILROY fyrir næstu ferðina þína
30+ ára reynsla
Yfir 30 ára reynsla, sérþekking og traustir samstarfsaðilar okkar um allan heim gera þér kleift að ferðast með öryggi og sjálfstrausti.
Persónuleg ferðaráðgjöf
Ferðaráðgjafi sem kynnist þínum óskum, draumum og markmiðum. Frá fyrstu hugmynd að heimkomu erum við með þér í hverju skrefi á leiðinni.
24/7 neyðarsími
Ef eitthvað óvænt kemur upp á er neyðarsíminn okkar opinn allan sólarhringinn. Ferðasérfræðingar KILROY eru til staðar fyrir þig, hvar og hvenær sem er.
KILROY leiðin
Bestu ferðirnar enda ekki þegar þú kemur heim. Þær lifa áfram í upplifunum, sögum og minningum sem fylgja þér lengi eftir að ferðinni lýkur.
Besti tíminn til að heimsækja Kambódíu
Kambódía hefur suðrænt loftslag, svo það er hlýtt allt árið. Árstíðirnar skiptast aðallega í þurrkatímabil og rigningartímabil. Hitastig helst hátt árið um kring en mars, apríl og maí eru heitustu mánuðirnir. Þá er góður tími til að heimsækja Kambódíu ef þú ætlar að eyða mestum hluta ferðarinnar á ströndinni. Ef þú ert að skoða Angkor Wat á þessum tíma er sniðugt að fara snemma morguns eða finna skugga þegar heitast er seinnipartinn.
Rigningartímabilið stendur frá maí til nóvember og mesta úrkoman er oft í september og október. Þá getur rignt lengi og sambland hita og raka getur gert veðrið krefjandi. Ólíkt nágrannalöndum eins og Víetnam og Tæland, er loftslagið í Kambódíu nokkuð jafnt um allt land, svo þú finnur ekki mikinn mun eftir svæðum.

Slakaðu á á ströndinni á þurrkatímanum
Algengar spurningar
Finndu svör við algengustu spurningunum um Kambódíu.
Ferð sem tekur 10 til 14 daga gefur þér nægan tíma til að skoða helstu staðina, eins og Phnom Penh, Siem Reap og eyjarnar við Kambódíu. Ef þú ert að ferðast um Suðaustur-Asíu geturðu líka eytt 5-7 dögum í Kambódíu og sameinað hana við nágrannalönd eins og Taíland, Víetnam eða Laos.
Algjörlega! Kambódía er einn vinsælasti áfangastaður bakpokaferðalanga í Suðaustur-Asíu, þökk sé góðu verði, vinalegu andrúmslofti og vel mótuðum bakpokaferðaleiðum. Það er auðvelt að ferðast sjálfstætt og hitta aðra ferðalanga á leiðinni.
Flestir ferðalangar heimsækja Angkor Wat, Phnom Penh, Siem Reap og hitabeltiseyjarnar Koh Rong eða Koh Rong Samloem. Ef þú hefur meiri tíma mælum við með að fara til Banlung fyrir frumskógarævintýri eða kanna fljótandi þorpin á Tonlé Sap vatni.
Flestir ferðalangar þurfa vegabréfsáritun til að komast inn í Kambódíu. Oft er hægt að sækja um rafræna áritun (e-visa) á netinu fyrir ferðina eða fá áritun við komu á helstu flugvöllum og landamærastöðvum. Kröfur um vegabréfsáritun ráðast af ríkisfangi, svo vertu alltaf viss um að kanna nýjustu reglurnar áður en þú ferðast.
Kambódía er almennt talin öruggur áfangastaður fyrir ferðalanga. Eins og alltaf er mikilvægt að hafa auga með eigum sínum, nota skynsemi og fylgjast með staðbundnum ferðaráðleggingum.
Sýnir 4 / 5 niðurstöður












