FERÐIR TIL KANADA

Jökullón í Kanada
Um áfangastaðinn

Villt landslag og þekktar borgir

Epic road trip, fjallaævintýri og ógleymanlegar upplifanir. Kanada hefur allt sem þú leitar að.

Gönguferð um stórbrotin útsýni Kanada
Upplifðu Niagara-fossa
Flúðasigling í Kanada
Skoðaðu frægu vötnin í Kanada
Calgary, Kanada

Farðu í road trip í Kanada

Road trip er ein besta leiðin til að upplifa Kanada. Endalausir fallegir þjóðvegir, þjóðgarðar og sjarmerandi smábæir gefa þér frelsi til að kanna á þínum hraða. Keyrðu í gegnum Rocky Mountains í Alberta og British Columbia, fylgdu dramatískri strandlengju Nova Scotia eða farðu út í óbyggðirnar til að sjá dýralíf eins og birni, elgi og hvali. Að leigja campervan eða bíl er vinsælt hjá ferðalöngum sem vilja skoða fjölbreytt landslag Kanada.

Road trip í Kanada

Road trip í Kanada

Þarftu aðstoð við að skipuleggja ferð til Kanada?

Ferðasérfræðingarnir okkar hjálpa þér að móta ferðahugmyndina, velja áfangastaðina og skipuleggja ferð sem hentar þér.

Ævintýri bíða í Kanada

Ef þú elskar útivist mun Kanada ekki valda vonbrigðum. Farðu í gönguferðir um stórbrotna þjóðgarða, róaðu kanó á kristaltærum vötnum, fylgstu með villtu dýralífi í óbyggðunum eða skelltu þér á skíði og snjóbretti á heimsklassa skíðasvæðum. Aðrar vinsælar afþreyingar eru kajakferðir, river rafting, útilegur, fjallahjólreiðar, hvalaskoðun og norðurljósaferðir. Sama hvaða árstíð er, þá býður Kanada upp á endalaus tækifæri til ævintýra utandyra.

Hjá KILROY hjálpum við þér að skapa ógleymanlegt ferðalag um Kanada, hvort sem þig dreymir um epic road trip um Klettafjöllin eða ævintýri um eitt stórbrotnasta landslag heims.

Kanóferð í Kanada

Kanóferð í Kanada

Af hverju að velja KILROY fyrir næstu ferðina þína

30+ ára reynsla

Yfir 30 ára reynsla, sérþekking og traustir samstarfsaðilar okkar um allan heim gera þér kleift að ferðast með öryggi og sjálfstrausti.

Persónuleg ferðaráðgjöf

Ferðaráðgjafi sem kynnist þínum óskum, draumum og markmiðum. Frá fyrstu hugmynd að heimkomu erum við með þér í hverju skrefi á leiðinni.

24/7 neyðarsími

Ef eitthvað óvænt kemur upp á er neyðarsíminn okkar opinn allan sólarhringinn. Ferðasérfræðingar KILROY eru til staðar fyrir þig, hvar og hvenær sem er.

KILROY leiðin

Bestu ferðirnar enda ekki þegar þú kemur heim. Þær lifa áfram í upplifunum, sögum og minningum sem fylgja þér lengi eftir að ferðinni lýkur.

Ferðast austur eða vestur?

Vestur-Kanada er þekkt fyrir stórkostlega náttúru og útivist. Uppgötvaðu háa fjallatinda og blágræn vötn í Banff og Jasper þjóðgörðum, upplifðu afslappað borgarlíf í Vancouver eða farðu til Vancouver Island fyrir surf, hvalaskoðun og gönguferðir. Vesturströndin hentar ferðalöngum sem vilja fjöll, skóga, dýralíf og ógleymanlegar road trip-leiðir.

Austur-Kanada sameinar líflegar borgir, fallega strandlínu og ríkulega menningararfleið. Skoðaðu þekktar borgir eins og Toronto, Montreal, Ottawa og Quebec City, sem hver og ein býður upp á sína sögu, mat, menningu og næturlíf. Fyrir utan borgirnar finnur þú fallegar strendur, sjarmerandi sjávarþorp og fallegar road trip-leiðir um svæði eins og Nova Scotia, New Brunswick, Prince Edward Island og Newfoundland. Austur-Kanada hentar ferðalöngum sem vilja blanda saman borgarupplifun, náttúru, staðbundinni menningu og ógleymanlegum ævintýrum við ströndina.

Toronto, Kanada

Toronto, Kanada

Snjóævintýri í Kanada

Ef þú hefur óbilandi áhuga á vetraríþróttum og elskar að skíða, skauta, fara á íshokkí eða snjóbretti þá er Kanada frábær staður til að heimsækja yfir vetrartímann. Banff og Whistler í vesturhluta Kanada eru á meðal bestu skíðasvæða í heimi og og þangað sækja þúsundir ferðamanna á hverju ári.

Skíði í Kanada

Skíði í Kanada

FAQ

Algengar spurningar

Að skipuleggja ferð til Kanada? Hér finnur þú svör við algengustu spurningunum.

Besti tíminn til að ferðast til Kanada fer eftir því hvað þú vilt upplifa. Sumarið (júní-september) er frábært fyrir road trip, gönguferðir, dýralíf og borgarævintýri, á meðan haustið (september-október) býður upp á ótrúlega haustlitadýrð. Veturinn (desember-mars) er kjörinn fyrir skíði, snjóbretti og snjóævintýri.

Ef þú vilt færri ferðamenn, lægra verð og gott veður, þá eru svokallaðir „skiptitímar“ sem eru síðla vors (maí-júní) og snemma hausts (september-október). Þeir mánuðir eru frábærir fyrir skoðunarferðir, road trip og útivist.

Það fer eftir því hvaða ferð þú ert að leita að. Farðu til vesturhluta Kanada fyrir Rocky Mountains, Banff, Jasper og útivist, eða skoðaðu austurhluta Kanada fyrir líflegar borgir eins og Toronto, Montreal og Quebec City ásamt fallegum strandlengjum og ríkri menningu. Ef þú ert að plana road trip eru vinsælar leiðir Vancouver til Calgary og Atlantshafsströndin um Nova Scotia og Newfoundland.

Já, Kanada er almennt talið eitt öruggasta land í heiminum fyrir ferðamenn. Landið hefur góða innviði, áreiðanlegar almenningssamgöngur og vinalegar borgir og samfélög. Eins og á öllum áfangastöðum er mikilvægt að nota almenna skynsemi, sérstaklega í fjölmennum borgum og þegar þú ert að kanna afskekktar náttúruslóðir. Með smá skipulagningu og skynsemi er Kanada auðvelt og öruggt land til að ferðast um.

Til að ferðast til Kanada þarftu gilt vegabréf og, eftir þjóðerni þínu, annað hvort rafræna ferðamannaheimild (eTA) eða vegabréfsáritun. Reglur um innritun geta breyst, svo það er alltaf góð hugmynd að skoða nýjustu opinberu kröfurnar áður en þú ferð.