FERÐIR TIL KÓLUMBÍU

Kólumbía: Fyrir forvitna ferðalanga
Kaffifjöll, frumskógaslóðir, karabískar strendur, salsa-nætur og litríkar borgir sem eru alltaf á hreyfingu.



Leitarðu að ekta ævintýri? Farðu til Kólumbíu
Einn daginn getur þú rölt um litríkar götur í nýlenduborgum, næsta dag farið í gönguferð djúpt inn í frumskóginn eða slakað á karabískum ströndum. Bættu við heimsklassa kaffi, líflegum borgum fullum af tónlist og menningu, stórbrotna þjóðgarða og hlýjar móttökur sem þú finnur hvergi annars staðar. Þá er auðvelt að skilja af hverju Kólumbía hefur orðið uppáhalds áfangastaður hjá ævintýraþyrstum ferðalöngum sem vilja upplifa eitthvað ekta.

Litrík hús í Cartagena
Þarftu aðstoð við að skipuleggja ferð til Kólumbíu?
Ferðasérfræðingarnir okkar hjálpa þér að móta ferðahugmyndina, velja áfangastaðina og skipuleggja ferð sem hentar þér.
Fjöll, regnskógar og strendur
Eitt af því sem gerir Kólumbíu svo sérstaka er ótrúleg fjölbreytni landsins. Frá Andesfjöllunum og Karíbahafsströndinni til regnskóganna við Kyrrahafið er hvert svæði eins og nýr heimur. Þú getur gengið í gegnum þéttan frumskóg að fornleifasvæðum sem leynast djúpt í náttúrunni, farið í gönguferðir á meðal hæstu vaxpálma heims, snorklað í tæru Karíbahafinu eða fylgst með hnúfubökum við afskekktar strendur Kyrrahafsins.
Hvort sem þú ert að leita að stórbrotinni náttúru, einstöku dýralífi eða ævintýrum á ótroðnum slóðum, þá kemur Kólumbía sífellt á óvart. Þetta er áfangastaður fyrir ferðalanga sem vilja upplifa meira, sjá meira og fara örlítið út fyrir þægindarammann.

Útsýni yfir Taganga, hefðbundið fiskimannaþorp
Af hverju að velja KILROY fyrir næstu ferðina þína
30+ ára reynsla
Yfir 30 ára reynsla, sérþekking og traustir samstarfsaðilar okkar um allan heim gera þér kleift að ferðast með öryggi og sjálfstrausti.
Persónuleg ferðaráðgjöf
Ferðaráðgjafi sem kynnist þínum óskum, draumum og markmiðum. Frá fyrstu hugmynd að heimkomu erum við með þér í hverju skrefi á leiðinni.
24/7 neyðarsími
Ef eitthvað óvænt kemur upp á er neyðarsíminn okkar opinn allan sólarhringinn. Ferðasérfræðingar KILROY eru til staðar fyrir þig, hvar og hvenær sem er.
KILROY leiðin
Bestu ferðirnar enda ekki þegar þú kemur heim. Þær lifa áfram í upplifunum, sögum og minningum sem fylgja þér lengi eftir að ferðinni lýkur.
Hvað er hægt að skoða í Kólumbíu?
Kólumbía er full af upplifunum, hvort sem þú sækist í líflegar borgir, ótamda náttúru eða staði sem eru fjarri mannfjöldanum.
Upplifðu líflegar borgir Kólumbíu
Byrjaðu í Bogotá, höfuðborginni sem stendur hátt í Andesfjöllum. Borgin er umkringd fjöllum og sameinar nýlenduarkitektúr við nútímaleg hverfi, þar sem götulist, lifandi tónlist og markaðir mynda skapandi stemningu. Næst er Medellín, borg sem hefur breyst gríðarlega og er nú ein af mest spennandi borgum Suður-Ameríku. Kannaðu litríku hverfin, lærðu um sögu borgarinnar og njóttu kaffibolla úr heimaræktuðum kólumbískum baunum.
Engin ferð til Kólumbíu er fullkomin án þess að heimsækja Cartagena, þar sem pastellitaðar nýlendubyggingar, steinlagðar götur og karabískur sjarmi gera borgina ógleymanlega. Ef tónlist og dans er eitthvað fyrir þig, þá er Cali staðurinn! Hún er Salsa höfuðborg landsins, þar sem dansinn er hluti af daglegu lífi og þú getur alltaf fundið partý til að taka þátt í.
Farðu út í óbyggðirnar
Landslag Kólumbíu er jafn fjölbreytt og borgirnar. Í Tayrona þjóðgarðinum leiða göngustígar í gegnum regnskóga að afskekktum Karíbahafsströndum og fallegu strandútsýni. Úti á Rosario eyjum finnur þú tær vötn sem henta vel til snorklunar. Ef þú vilt kafa dýpra, þá er Taganga frábær staður til að kafa og skoða lífríkið.
Innanlands er Cocora-dalurinn nálægt Salento heimili hæstu vaxpálma í heiminum, þar sem göngustígar liggja í gegnum þokukennda skógana og grænar hæðir. Á afskekktri Kyrrahafsströnd Kólumbíu teygir regnskógurinn sig allt að svörtum sandströndum og myndar eitt villasta landslag landsins. Frá júní til október er þetta líka einn besti staðurinn til að sjá hnúfubaka á ferðalagi.
Slakaðu á og skoðaðu
Sumir af bestu stöðum Kólumbíu eru þeir sem fá þig til að vera aðeins lengur en þú ætlaðir. Röltaðu um litríkar götur Guatapé, njóttu rólegs taktsins í Minca og kynnstu heimafólki sem tekur á móti þér með opnum örmum. Það eru þessar upplifanir sem gera Kólumbíu að stað sem margir vilja snúa aftur til.

Palenqueras að selja ávexti í Cartagena
Lost City Trek: Alvöru frumskógarævintýri í Kólumbíu
Lost City Trek (Ciudad Perdida) er eitt magnaðasta ævintýri Kólumbíu. Gangan liggur djúpt inn í Sierra Nevada-fjöllin þar sem þéttur regnskógur felur hina fornu borg Tairona-menningarinnar. Á leiðinni ferðast þú yfir ár, um krefjandi skógarstíga og í gegnum samfélög frumbyggja sem enn búa á svæðinu. Verðlaunin bíða við lok ferðarinnar þegar fornu rústirnar í Ciudad Perdida birtast úr frumskóginum, en það er ferðalagið sjálft sem gerir upplifunina ógleymanlega. Með leiðsögumönnum á staðnum sem færa sögu og menningu svæðisins til lífs er þetta einstakt ævintýri fyrir ferðalanga sem vilja upplifa hina sönnu Kólumbíu.

Ciudad Perdida - „Týnda borgin“
Hvenær er besti tíminn til að heimsækja Kólumbíu?
Kólumbía er spennandi áfangastaður allt árið um kring, en besti tíminn til að ferðast fer eftir því hvert þú ætlar og hvaða upplifanir þú ert að leita að. Almennt eru mánuðirnir frá desember til mars, ásamt júlí og ágúst, þurrari víða um land og henta því vel til ferðalaga.
Karabíska ströndin nýtur hlýs veðurs allt árið og er því frábær kostur nánast hvenær sem er. Þar sem Kólumbía býður upp á allt frá suðrænum ströndum og frumskógum til fjalla og líflegra borga getur veðrið verið mjög breytilegt eftir landsvæðum. Þess vegna er mikilvægt að velja ferðatímann út frá þeim stöðum sem þú vilt heimsækja.
Þegar þú bókar ferð til Kólumbíu með KILROY hjálpum við þér að finna besta ferðatímann fyrir þitt ævintýri, þannig að þú fáir sem mest út úr ferðinni.

Punta Gallinas
Algengar spurningar
Ertu með spurningar? Við höfum svörin! Hér eru nokkrar af þeim spurningum sem ferðalangar spyrja okkur oft áður en þeir leggja af stað til Kólumbíu.
Flestir ferðalangar eiga örugga og ánægjulega ferð til Kólumbíu, en eins og víða annars staðar er mikilvægt að sýna aðgát. Haltu þig við þekkt svæði, forðastu að vera einn á ferli eftir myrkur og notaðu traustar samgöngur.
Smáglæpir á borð við vasaþjófnað geta komið fyrir, sérstaklega í stærri borgum, svo gott er að geyma verðmæti úr augsýn og fara varlega með símann á almannafæri. Einnig er ráðlagt að þiggja ekki drykki eða mat frá ókunnugum og sýna varúð þegar stefnumótaöpp eru notuð.
Með því að fylgja ráðleggingum heimamanna og beita almennri skynsemi eru allar líkur á að ferðin verði bæði örugg og eftirminnileg. Mundu einnig að kynna þér nýjustu ferðaráð stjórnvalda áður en lagt er af stað.
Við mælum með að eyða að minnsta kosti nokkrum vikum í Kólumbíu og þú getur auðveldlega verið lengur, sérstaklega ef þú ætlar að fara í Lost City gönguna eða aðrar margra daga ferðir.
Rútukerfið í Kólumbíu er umfangsmikið og tengir saman bæði stórborgir og smærri bæi um allt land. Fyrir lengri vegalengdir er innanlandsflug hins vegar oft fljótlegasti og þægilegasti kosturinn, sérstaklega ef þú vilt nýta tímann sem best. Með blöndu af rútum og flugi er auðvelt að ferðast á milli helstu áfangastaða og upplifa fjölbreytileika landsins.
Algjörlega. Kólumbía er sannkölluð paradís fyrir ævintýragjarna ferðalanga. Þar geturðu farið í frumskógarferðir, fjallgöngur, snorklað og kafað við Karabíska hafið eða fylgst með hnúfubökum á Kyrrahafsströndinni. Einnig býður landið upp á fjölmörg tækifæri til að kanna afskekkt landslag, fossa, regnskóga og náttúruperlur utan alfaraleiða. Hvort sem þú leitar að adrenalíni eða einstökum náttúruupplifunum er Kólumbía áfangastaður sem hefur eitthvað fyrir alla ævintýraunnendur.
Hægt er að ferðast til Kólumbíu allt árið. Desember til mars, auk júlí og ágúst, eru yfirleitt þurrustu mánuðirnir á mörgum svæðum Kólumbíu.
Vinsælir staðir eru Bogotá, Medellín, Cartagena, Tayrona þjóðgarður, Ciudad Perdida, Cocora-dalurinn, Guatapé, Minca og Cali.
Sýnir 4 / 6 niðurstöður














