Kynntu þér teymið
...kynnstu okkur á netinu eða í eigin persónu

Það hefur aldrei verið auðveldara að hafa samband við okkur
Ef þú ert með einfalda fyrirspurn, máttu endilega senda okkur póst á travels@kilroy.is Ef þig langar að bóka ferð, notaðu hnappana hér fyrir neðan til að skrifa okkur eða bóka fund!
Anna Karen Stefánsdóttir
Ferðaráðgjafi
Það er ekkert skemmtilegra en að ferðast og upplifa heiminn!
Ég hef alltaf haft brennandi áhuga fyrir nýjum stöðum, ólíkum menningarheimum og þeim sögum sem fólk hefur að segja. Ég hef ferðast um Evrópu, Asíu og Afríku! En ég bjó um tíma í Danmörku þar sem ég stundaði nám í alþjóðlegum félagsvísindum. Sú reynsla opnaði augun mín enn meira fyrir fjölbreytileikanum í heiminum - og kveikti enn sterkari löngun til að halda áfram að uppgötva hann.
Eftir að hafa flutt heim og lokið B.A. námi í félagsráðgjöf lét ég loksins drauminn rætast árið 2023 og lagði af stað í ævintýralegt bakpokaferðalag um Asíu með KILROY.
Ferðin tók mig til Dubai, Sri Lanka, Tælands, Víetnam, Japan, Kuala Lumpur og Bali - og hvert stopp var einstakt á sinn hátt. Ég meðal annars keyrði um sandöldur í eyðimörkum Dubai, fylgdist með fílafjölskyldum í Sri Lanka, nældi mér í köfunarréttindi í Tælandi, fór í drullubað í Víetnam, át nóg af sushi í Tokyo, sá Batu hellana í Kuala Lumpur og lærði að surfa á Bali. Á leiðinni kynnist ég frábæru fólki allstaðar að úr heiminum.
Ævintýraþráin hefur þó ekki stoppað þar. Ég hef farið í ógleymanlegt ferðalag frá Kenía til Tansaníu þar sem ég sá ''The big 5'' í safari, synti með höfrungum á Zanzibar og fór í 17 daga ferðalag frá Beijing í Kína sem endaði í Hong Kong.
Næst á dagskrá er Kambódía og svo Suður Ameríka!
Fyrir mér er ferðalag ekki bara ferð - það er upplifun, tenging og minningar sem endast ævilangt.
Ef þú vilt láta draumaferðina þína verða að veruleika, þá er ég meira en til í að hjálpa þér að plana hana!

Bergrún Sóla Áskelsdóttir
Ferðaráðgjafi
Ég er stoltur landsbyggðarlúði uppalin á Sauðárkróki og eins mikið og ég elska Ísland veit ég fátt betra en að læra um heiminn og allt sem hann hefur upp á að bjóða. Ein besta leiðin til þess er að fara út og skoða eins mikið af honum og hægt er! Maturinn, fólkið, náttúran og allt þar á milli sem maður upplifir á ferðalagi er eitthvað sem maður gleymir aldrei.
Ég ferðaðist um Asíu í fjóra mánuði árið 2019 þar sem ég fór meðal annars til Japan, Suður-Kóreu, Kína og Suðaustur-Asíu. Árið 2022 ferðaðist ég svo um Suður-Ameríku í þrjá mánuði þar sem ég fór til dæmis á strendurnar í Mexíkó, fjallgöngu í Kólumbíu, Amazon skóginn í Ekvador og labbaði Inca Trail til Machu Picchu í Perú. En ég hef líka farið í Interrail ferð um Evrópu, tungumálaskóla og salsa námskeið á Kúbu, surf námskeið á Kosta Ríka, tekið köfunarréttindi á Taílandi og ferðast ein um Balkanskagann.
Þegar ég fór í mína fyrstu ferð með Kilroy var það klárlega ævintýrið sem ég vissi ekki að ég þyrfti! Mér finnst ótrúlega mikilvægt að skora á sjálfa mig og fara út fyrir þægindarammann með því að ferðast því það er ekki bara ótrúlega skemmtilegt heldur lærir maður líka heilan helling. Fyrir mér eru ferðalög ómetanleg fjárfesting sem ég mun aldrei sjá eftir því þetta er eitthvað sem maður tekur með sér út í lífið.
Mér hefur alltaf fundist erfitt að ákveða hvert ég á að fara næst og vera með bucket lista því mig langar bara helst að fara út um allt! En það sem kallar mest á mig þessa dagana er maturinn í Miðausturlöndum, að kafa með risaskötum á Balí og sjá dýrin í Afríku í sínu náttúrulega umhverfi.
Ég hlakka til að hjálpa þér að láta draumaferðina þína verða að veruleika!

Jónheiður Anna Thorlacius
Ferðaráðgjafi
Ég hef alltaf vitað að ég vilji skoða heiminn. Ferðaástríðan kviknaði svo fyrir alvöru í útskriftarferð til Tælands. Þá vissi ég að þetta var það sem mér var ætlað að gera, en í dag er ég útskrifaður ferðamálafræðingur frá HÍ. Ég er alltaf með hugann við að skipuleggja næstu ferð og bíð eftir því að geta skellt mér í nýtt ævintýri. Hvort sem það er kynnast nýjum menningarheimum og siðum, smakka nýjan mat, kynnast nýju fólki, lenda í óvæntum ævintýrum eða skoða alla þá fallegu náttúru sem jörðin okkar hefur upp á að bjóða þá er ég til! Ég vil hvetja aðra til þess að ferðast og skapa geggjaðar minningar í sínum draumaferðum!
Eftir útskriftarferðina gat ég ekki hugsað um annað en að komast aftur út. 2018 fór ég í mína fyrstu heimsreisu með vinkonu minni á vegum KILROY. Við heimsóttum meðal annars Sri Lanka, Víetnam, Kambódíu, Laos, Bali, Fiji og Bandaríkin. Stuttu seinna skellti ég mér í mína fyrstu ferð einsömul. Hún tók 6 mánuði og sé ekki eftir einni mínútu. Ég bókaði aðra leið til Tælands að vinna, ekki vitandi hvenær ég ætlaði heim. Á heimleiðinni heimsótti ég Japan og Suður-Kóreu. 2022 hélt ég jólin í Mexikó með vinkonu og fagnaði nýju ári í Gvatemala. Þá ferð endaði ég ein í Kosta Ríka að læra betur að surfa.
Fátt hefur mótað mig meira sem einstakling en ferðalögin sem ég hef farið í. Að takast á við áskoranir í sóló ferðalögum, að opna mig fyrir nýjum vinum og fara út fyrir þægindaramman hefur kennt mér svo margt.
Ég á eftir að sjá svo margt og bucketlistinn er langur. Efst á honum núna er Perú, Indland og Kína!
Ef þig langar í magnaðar ferðaupplifanir sem munu fylgja þér út ævina þá endilega hafðu samband og við hönnum þína draumaferð saman

Fljótleg og einföld bókun hjá KILROY
1
Hafðu samband
Segðu okkur frá ferðaplönunum þínum, hugmyndum og markmiðum.
2
Deildu plönunum þínum
Við kynnumst þér og því sem þú ert að leita að.
3
Fínstillum smáatriðin
Við mótum þína fullkomnu ferð saman.
4
Bókaðu með öryggi
Við sjáum um smáatriðin svo þú getir einbeitt þér að ævintýrinu.
5
Vertu tilbúin/n
Pakkaðu töskunum og byrjaðu að telja niður.
Birgitta Linda Björnsdóttir
Team Leader
xxxxxx

Agnes Geirsdóttir
Ferðaráðgjafi fyrir hópa
Ég hef mikin áhuga á ferðalögum og að skapa ógleymanlegar upplifanir. Að skipuleggja ferðir, hvort sem það er fyrir mig og fjölskylduna mína eða fyrir aðra, er eitthvað sem ég elska að gera. Það besta sem ég geri er að upplifa eitthvað nýtt, skoða nýjar slóðir, kynnast nýrri menningu, fara í fallegar gönguferðir, hitta nýtt fólk og smakka fjölbreyttan mat.
Ég finn alltaf hvað ég læri mikið á að ferðast.. Þau láta mann sjá hlutina í nýju ljósi, bæta í reynslubankann og skapa fullt af minningum. Að eiga bókaða ferð framundan er líka ákveðin gleði svona gulrót sem heldur manni gangandi.
Fyrsta stóra ferðin mín var til Filippseyjar og eftir hana vissi ég að ég vildi ferðast meira.
Ég hef heimsótt þessa klassískar borgir eins og London, París, New York, Edinborg og fl. en hef líka verið dugleg að velja aðeins óhefðbundnari áfangastaði eins og Salou, Salta og Detroit.
Seinasta langa ferðalagið mitt var til Argentínu árið 2025 þar sem ég heimsótti Buenos Aires og Salta. Sú ferð gaf mér enn meira sjálfstraust til að fara lengra og skoða heiminn.
Næstu áfangastaðir á listanum hjá mér eru að skoða meira af Suður-Amerík og Ítalíu, Japan, Tæland. Listinn er auðvitað lengri, en maður byrjar alltaf einhvers staðar.
Ef þig langar í vinaferð til Riga, námsferð til Berlín, árshátíðarferð til Prag, tónleikaferð til Írland, kennaraferð til Japan eða á einhvern annan stað sem þig hefur alltaf dreymt um að heimsækja þá er ég til staðar til að hjálpa.
Ef þú hefur áhuga á að upplifa eitthvað nýtt og skoða heiminn, þá mæli ég 100% með því. Þú munt ekki sjá eftir því! Sendu mér línu og við finnum út úr þessu saman.

Eva Dögg Davíðsdóttir
Ferðaráðgjafi fyrir hópa
Það besta sem ég geri er að ferðast! fara á nýjar slóðir, kynnast öðruvísi siðum og menningu, fara í gönguferðir og aðrar afþreyingar til þess að fá enn betri upplifun og smakka fjölbreyttann mat. Ef þú ert á sama máli þá ætti ég klárlega að geta aðstoðað þig við það sem þú ert að leitast eftir fyrir drauma ferðalagið þitt því ferðalög er mitt helsta áhugamál. Reynsla mín og þekking af ýmsum áfangastöðum og ævintýrum getur átt þátt í því að setja saman drauma ferðina þína og gera hana að þínu næsta ævintýri!
Alla mína tíð hef ég haft áhuga á því að ferðast og lenda í ævintýrum. Í fyrstu voru það klassískar ferðir til Evrópu með fjölskyldunni og íþróttaferðir en um leið og ég hafði tök á því að fara lengra þá gerði ég það. Mitt fyrsta langa ferðalag var Asíureisa. Þá fór ég til Tælands, Myanmar, Indlands, Malasíu, Singapore og Indonesíu. Að lokinni reisu flutti ég Peking í Kína og hóf Háskólanám í kínversku. Næst var það Kúba og Bandaríkinn (Hawaii og San Francisco).
Eftir þessi ferðalög og meira nám á Íslandi langaði mig til þess að setjast að í einu landi í langan tíma og gera eitthvað sem gæti nýst mér í framtíðinni. Ég valdi því að stunda nám erlendis. Nám erlendis getur veitt manni tækifæri til þess að að læra nýtt tungumál, kynnast nýrri menningu, stækka tengslanetið og í mínu tilfelli til þess að fá mann til þess að meta sitt eigið líf meira og fá betri hugmynd af því hvað maður vill gera í framtíðinni. Ég skellti mér í nám til Kína í eitt ár og valdi borgina Xiamen því þar skín sólin allt árið eins og í flestum löndum í Suð-Austur Asíu. Á meðan dvölinni stóð gat ég ekki verið mikið kyrr á einum stað því löndin í kring voru bara einfaldlega alltof spennandi! Þannig ég nýtti öll fríin sem ég fékk frá skólanum í að ferðast um Filippseyjar, Víetnam, Hong Kong og auðvitað Kína.
Lærdómurinn og upplifunin sem ég fékk út úr þessum ferðum er ómetanlegur og þess vegna mæli ég 100% með því að ef þig langar út, hvort sem það er í ferðalag eða nám að kýla á það!
Næsti áfangastaður hjá mér verður líklegast Afríka (Marokkó eða Suður Afríka og þar í kring). Ástæðan fyrir því er að ég hef aldrei farið til Afríku, það er „stutt“ að fara t.d. til Marokkó en samt er menningin svo allt önnur og einstök. Það skemmir heldur ekki fyrri að hægt sé að sörfa á báðum stöðum.
Ef þú hefur áhuga á að fara út að skoða heiminn þá mæli ég hiklaust með því að skella sér því þú munt aldrei sjá eftir því! Endilega hafðu samband við mig og við í sameiningu getum sett saman draumaferðina þína.

Guðný Gígja Benediktsdóttir
Ferðaráðgjafi fyrir hópa
Mín helsta ástríða í lífinu er útivist og ferðalög hvort sem það er hér heima eða erlendis. Ég veit fátt betra en að ferðast og fara út fyrir þægindarammann, kynnast nýju fólki, ólíkum menningarheimum, smakka fjölbreyttan mat og prufa nýja hluti. Á ferðalögum lærir maður og upplifir hluti sem maður getur tekið með sér út í lífið og er hvergi hægt að læra annarstaðar.
Áhugi minn á ferðalögum kviknaði snemma, 18 ára fluttist ég til Bandaríkjanna þar sem ég starfaði sem Au-Pair og ári síðar fluttist ég tímabundið til Delhi og heimsótti vini í Ástralíu. Ég fór í mína fyrstu reisu eftir háskólanám þar sem ég heimsótti, Jórdaníu, Suðaustur-Asíu, Kína og Suður-Ameríku. Ég hef farið í road trip um Ameríku, gist í Sahara eyðimörkinni, gengið Inca trailið í Perú, skoðað cherry blossom í Japan og farið í jóga retreat á Kosta Ríka.
Ég er varla komin heim úr ferðalagi þegar ég er byrjuð að plana það næsta. Ég reyni að fara ekki oft á sama staðinn heldur vel yfirleitt eitthvað nýtt og spennandi og í dag dreymir mig um að fara til Tansaníu, ganga upp á Kilamanjaro, fara í Safari í Seringeti þjóðgarðinum og slökun á Zanzibar.
Ég hef mikla ástríðu fyrir að deila sögum og fróðleik af ferðalögum mínum og ég elska að plana ferðalög hvort sem það sé fyrir mig sjálfa eða einhvern annan. Hafðu endilega samband við mig ef þú vilt fara á vit ævintýranna og við getum sett saman draumaferðina þína í sameiningu

Hrafnhildur Jóna Hjartardóttir
Ferðaráðgjafi fyrir hópa
Ég hef mikla ást á að ferðast og nýt tækifæri til að skoða heiminn í gegnum starfið mitt. Í áratug hef ég starfað í ferðaþjónustu og öðlast mikla reynslu í að bjóða fyrirtaks þjónustu. Ég er með menntun í viðburðarstjórnun og stjórnun gestamóttöku og ferðaþjónustu sem hefur reynst mér vel.
Uppáhalds áfangastaðurinn minn er Barselóna á Spáni, þar sem ég eyddi hálfu ári í starfsnámi. Næst á mínu ferðaplani er jóga námskeið á Bali eyjunni í Indónesíu, heimsækja „stóra eplið“ New York í Bandaríkjunum og upplifa dýralífið í Kosta Ríka.
Komandi frá Siglufirði, litlum bæ á norðurhluta Íslands, hafa ferðalög svo sannarlega víkkað sjóndeildarhringinn minn og gefið mér tækifæri að kynnast öðrum menningarheimum.
Ertu að leita að einhverju spennandi að gera fyrir þinn hóp? Ég veit ekkert betra en að deila þekkingu minni og ást á ferðalögum – hlakka til að hjálpa þér að skipuleggja þitt næsta ævintýri!




