FERÐIR TIL MADAGASKAR

Fyrir þau sem vilja komast út fyrir þægindarammann
Madagaskar er sannkölluð paradís fyrir náttúruunnendur, þar sem óspillt landslag, einstakt dýralíf og ævintýri á ótroðnum slóðum bíða handan við hvert horn.





Falinn gimsteinn í Indlandshafi
Ef þú ert að leita að áfangastað á ótroðnum slóðum er Madagaskar algjör gimsteinn. Hér bíða þín lemúrar í villtri náttúru, risavaxin baobab-tré, gróskumiklir regnskógar og tærar strendur við Indlandshafið. Eyjan er heimili ótrúlegs dýra- og plöntulífs sem finnst hvergi annars staðar í heiminum, sem gerir hverja ferð einstaka. Madagaskar er ekki bara áfangastaður, heldur ævintýri sem situr lengi í minninu eftir að þú kemur heim.

5% allra dýra heimsins lifa hér.
Þarftu aðstoð við að skipuleggja ferðina þína til Madagaskar?
Ferðasérfræðingarnir okkar hjálpa þér að móta ferðahugmyndina, velja áfangastaðina og skipuleggja ferð sem hentar þér.
Hápunktar á Madagaskar
Madagaskar er eins og heimur út af fyrir sig, fullur af ótrúlegri náttúru, dýralífi og ævintýrum sem þú finnur hvergi annars staðar. Byrjaðu ferðina við strendur Ifaty þar sem þú getur slakað á í sólinni, snorklað í kristaltæru vatni eða kafað meðal hvala sem synda um Mozambíkur-sundið. Ef þú ert að leita að aðeins meiri spennu skaltu halda til Anakao og kafa með hákörlum.
Fyrir göngugarpa er Isalo þjóðgarðurinn algjört must-see. Þar bíða þín stórbrotin gljúfur, fossar og landslag sem minnir helst á aðra plánetu. Ef þig langar að fara á ótoðnar slóðir geturðu tjaldað í þjóðgörðunum Andohahela og Ankarafantsika eða kannað villta regnskóga og óspilltar strendur á Locaro-skaganum.
Ekkert ferðalag til Madagaskar er þó fullkomið án þess að heimsækja hina frægu Baobab-breiðgötu. Það er erfitt að toppa sólsetur meðal þessara risavaxnu og aldagömlu trjáa, og myndavélin verður á yfirvinnu. Þegar þig langar að hægja aðeins á ferðinni er Nosy Be fullkominn staður til að hlaða batteríin með hvítum sandströndum, túrkísbláum sjó og afslöppuðu eyjalífi.
Það er nóg af ævintýrum á Madagaskar. Kannaðu Tsingy de Bemaraha með sínum mögnuðu kalksteinstindum, sigldu eftir Tsiribihina-ánni eða upplifðu rólegt líf meðfram Pangalanes-skurðunum.
Ef þú vilt áskorun geturðu gengið á Pic Boby og notið stórbrotins útsýnis yfir eyjuna. Að deginum loknum bíða svo ferskir sjávarréttir, suðrænir ávextir og bragðgóð malagasa matargerð sem fullkomnar upplifunina.

Hvalhákarli undan ströndum Madagaskar
Af hverju að velja KILROY fyrir næstu ferðina þína
30+ ára reynsla
Yfir 30 ára reynsla, sérþekking og traustir samstarfsaðilar okkar um allan heim gera þér kleift að ferðast með öryggi og sjálfstrausti.
Persónuleg ferðaráðgjöf
Ferðaráðgjafi sem kynnist þínum óskum, draumum og markmiðum. Frá fyrstu hugmynd að heimkomu erum við með þér í hverju skrefi á leiðinni.
24/7 neyðarsími
Ef eitthvað óvænt kemur upp á er neyðarsíminn okkar opinn allan sólarhringinn. Ferðasérfræðingar KILROY eru til staðar fyrir þig, hvar og hvenær sem er.
KILROY leiðin
Bestu ferðirnar enda ekki þegar þú kemur heim. Þær lifa áfram í upplifunum, sögum og minningum sem fylgja þér lengi eftir að ferðinni lýkur.
Minjagripir: hvað má og hvað ekki
Við elskum að styðja við staðbundin fyrirtæki, en þar sem skógeyðing er vaxandi vandamál, hugsaðu þig tvisvar um áður en þú kaupir minjagripi úr viði. Það sama gildir um minjagripi úr kóröllum.
Ef þú vilt koma með eitthvað einstakt og umhverfisvænt heim, leitaðu að litlum leikfangabílum og reiðhjólum sem heimamenn hafa smíðað úr endurunnum áldósum.

Vanilluströnd Madagaskar
Algengar spurningar
Fáðu svör við algengum spurningum um Madagaskar.
Madagaskar er með hitabeltisloftslag og mikill munur er á veðri eftir því hvar þú ert á eyjunni. Hér er stutt yfirlit yfir veðrið:
Þurrkatímabil (maí - október): Þetta er besti tíminn til að ferðast til Madagaskar. Hitastigið er þægilegt og það rignir varla neitt. Fullkomið til að kanna regnskóga, sjá lemúra og njóta fallegu strandanna.
Rigningartímabil (nóvember - apríl): Heitt og rakamikið með miklum skúrum, sérstaklega í regnskógunum fyrir austan. Það getur verið hringrásarveður, sérstaklega frá janúar til mars, sem getur gert ferðalög erfiðari.
Dýralífið á Madagaskar er algjörlega sérstakt og margar tegundir dýra sem hér finnast eru landlægir - þ.e.a.s. þær finnast ekki annars staðar í heiminum. Þekktasta og jafnframt eitt sérkennilegasta dýrið er lemúrinn. Þeir koma í ýmsum stærðum og tegundum, hver og einn undarlegri og áhugaverðari en sá síðasti. Sumir syngja eins og hvalir, aðrir hoppa skrýtið um sandinn. Það eru meira en 100 mismunandi tegundir af lemúrum!
Plöntulífið á Madagaskar er líka ótrúlegt og í ferðalaginu sérðu hluta af yfir 10.000 plöntutegundunum sem vaxa hér. Á suðurhluta eyjarinnar finnur þú sérstaka þurrregnskóga, á meðan austurhlutinn er þakinn dæmigerðum hitabeltisregnskógum.
Madagaskar er fjórða stærsta eyja heims. Margir segja að fólkið og menningin séu sérstaklega áhugaverð þar sem hún er blönduð, frá Asíu og Afríku. Á Madagaskar trúa margir enn á galdra og anda fortíðar og stór hluti íbúanna, sérstaklega þeir sem búa í dreifbýli, hafa haldið í hefðbundinn lífsstíl með ýmsum dönsum, siðum og fleira.
Á stórum hluta Madagaskar getur verið erfitt að ferðast um á eigin vegum, en ef þú ákveður samt að prófa er hægt að ferðast með lest á ákveðnum svæðum. Á leiðum eins og Toliara til Ifaty geturðu líka ferðast með rútu. Innviðir landsins eru þó langt frá því sem við eigum að venjast heima, svo þú þarft að vera opin/n fyrir ævintýrinu.












