FERÐIR TIL MAROKKÓ

Nýr heimur ævintýra bara nokkrum klukkustundum frá Evrópu
Í Marokkó mætast litríkir borgir, stórbrotin fjallalönd og ævintýri í eyðimörkinni í einni ógleymanlegri ferð.





Brimbretti, fjöll og líflegir markaðir
Marokkó er spennandi áfangastaður fullur af menningu, litum, bragði, ævintýrum og fallegum ströndum. Hjá KILROY höfum við sjálf ráfað um souk-markaðina, gengið um fjöllin og rennt okkur niður sandöldur Sahara, svo við vitum nákvæmlega hvar þú finnur þessar sérstöku staði sem margir ferðalangar missa af.

Uppgötvaðu Marrakech
Þarftu aðstoð við að skipuleggja ferðina þína til Marokkó?
Ferðasérfræðingarnir okkar hjálpa þér að móta ferðahugmyndina, velja áfangastaðina og skipuleggja ferð sem hentar þér.
Uppgötvaðu helstu áfangastaði Marokkó
Marrakesh er litrík borg með heillandi andrúmslofti. Djemaa el-Fna er einn af þeim stöðum sem þú verður einfaldlega að heimsækja. Þetta fræga torg er hjarta borgarinnar og sefur aldrei. Þar er alltaf líf og fjör, bæði dag og nótt. Með Fez, Meknes og Rabat myndar Marrakesh fjórar konungsborgir Marokkó. Hver þessara sögulegu borga býður upp á ríkulega menningu, forvitnilega sögu og sinn eigin karakter.
Bara nokkrum klukkustundum frá Marrakesh er sjávarbærinn Essaouira, þekktur fyrir afslappað andrúmsloft og strandstemningu sem heillar flesta sem koma. Ef þig langar að eyða tíma á ströndinni í ferðinni þinni, þá skaltu fara á langar sandstrendur Agadir.
Rétt fyrir utan Agadir er litla sjávarþorpið Taghazout, einn vinsælasti brimbrettastaður Marokkó. Þar finnur þú frábærar öldur, hlýtt vatn og afslappaða kaffihúsa- og baramenningu. Þorpið er líka heimili margra surf skóla og farfuglaheimila, svo það er tilvalið hvort sem þú vilt læra á bretti eða bæta færni þína.

Medína í Agadir
Af hverju að velja KILROY fyrir næstu ferðina þína
30+ ára reynsla
Yfir 30 ára reynsla, sérþekking og traustir samstarfsaðilar okkar um allan heim gera þér kleift að ferðast með öryggi og sjálfstrausti.
Persónuleg ferðaráðgjöf
Ferðaráðgjafi sem kynnist þínum óskum, draumum og markmiðum. Frá fyrstu hugmynd að heimkomu erum við með þér í hverju skrefi á leiðinni.
24/7 neyðarsími
Ef eitthvað óvænt kemur upp á er neyðarsíminn okkar opinn allan sólarhringinn. Ferðasérfræðingar KILROY eru til staðar fyrir þig, hvar og hvenær sem er.
KILROY leiðin
Bestu ferðirnar enda ekki þegar þú kemur heim. Þær lifa áfram í upplifunum, sögum og minningum sem fylgja þér lengi eftir að ferðinni lýkur.
Surfævintýri í Marokkó
Slástu í hópinn hjá surf samfélaginu í Tamraght, þar sem frábærar öldur, jóga og ný vinátta bíða þín. Við vinnum með geggjuðu surf-campi í Tamraght, afslöppuðu þorpi við Atlantshafsströndina, rétt norðan við Agadir og nálægt Taghazout. Gistu í villu við sjóinn, njóttu daglegra surf tíma, taktu þátt í jóga ef þú vilt og kynnstu ferðalöngum alls staðar að úr heiminum. Búastu við góðu andrúmslofti og ekta surf menningu alla dvölina.

Surfcamp í Tamraght
Algengar spurningar
Ertu að skipuleggja ferð til Marokkó? Hér finnur þú svör við algengustu spurningunum frá ferðaráðgjöfum okkar.
Hvort sem þú ert að plana road trip meðfram Atlantshafsströndinni, göngu í Atlasfjöllunum eða ævintýri inn í Saharaeyðimörkina, þá eru ferðaráðgjafar okkar til staðar fyrir þig. Við getum aðstoðað með flug, gistingu, samgöngur, afþreyingu, ferðatryggingar og sérsniðnar ferðaáætlanir, auk þess að deila eigin ferðaráðum úr Marokkó. Ef þú vilt frekar ferðast með öðrum, hjálpum við þér líka að finna rétta hópferð eða surfcamp.
Veðurfar í Marokkó er fjölbreytt, frá heitum eyðimörkum yfir í svalari fjallasvæði. Upplifunin þín fer eftir því hvar og hvenær þú ferðast. Vorið og haustið eru vinsælustu tímarnir áður en hitinn eykst mikið, en það hefur líka orðið vinsælt að fagna áramótum í Marokkó.
Já, Marokkó getur verið frábær áfangastaður fyrir þá sem vilja ferðast sóló. Landið býður upp á blöndu af menningu, ævintýrum, ströndum og útivist, svo auðvelt er að setja saman ferð eftir þínum áhugamálum. Ef þú vilt meiri stuðning getum við hjálpað til með gistingu, samgöngur, afþreyingu, ferðatryggingar og jafnvel að tengja þig við hópferð eða surfcamp, þannig að þú getur notið frelsisins við að ferðast einn en samt verið með aukið öryggi.
Marokkó hefur lengi verið vinsæll áfangastaður og hefur orðið sífellt vinsælli hjá ungu fólki og bakpokaferðalöngum. Eins og með öll ferðalög er mikilvægt að vera meðvitaður um umhverfið sitt og fylgja almennum öryggisráðstöfunum, eins og að sýna ekki verðmæti opinberlega, sérstaklega í fjölmennum borgum og á fjölförnum mörkuðum.
Marokkó getur verið frábær kostur fyrir þá sem vilja fá mikið fyrir peninginn. Þú getur auðvitað slakað á á ströndinni, en það er líka kjörið að blanda saman ævintýrum í Marrakech, Atlasfjöllunum, Saharaeyðimörkinni og meðfram ströndinni. Gistimöguleikar eru allt frá einföldum en heillandi riads gistiheimilum til lúxushótela, og matur er mjög hagstæður ef þú borðar á staðbundnum veitingastöðum og mörkuðum.
Sýnir 4 / 5 niðurstöður












