Námspásur
Um námspásur

Hannaðu þína fullkomnu námspásu

Farðu lengra, lærðu eitthvað nýtt og upplifðu ævintýri sem þú gleymir aldrei með námspásu sem er sniðin að markmiðum þínum, áhugamálum og fjárhagsáætlun.

Meira en ferðalag, þetta er tækifæri til að vaxa

Námspása eða Gap Year er tækifæri til að stíga út fyrir þægindarammann og uppgötva hvað þú getur. Hvort sem þú ert í sjálfboðastarfi erlendis, lærir nýtt tungumál eða ferðast milli landa, þá styrkir hver upplifun sjálfstraustið og sjálfstæðið þitt. Þú kemur heim með ógleymanlegar minningar, víðara sjónarhorn og hæfni sem nýtist bæði í einkalífi og framtíðarstarfi. Það besta? Það er engin ein rétt leið. Þú mótar námspásuna þína sjálf/ur, hvort sem þú vilt ævintýri, nýja reynslu eða sveigjanleika.

Skoðaðu heiminn í námspásunni þinni
Farðu í köfun í námspásunni þinni
Kynntu þér nýtt fólk í námspásunni þinni
Skoðaðu heiminn í námspásunni þinni
Eignastu vini í námspásunni þinni
Skoðaðu heiminn í námspásunni þinni
Vinna með dýrum í námspásunni þinni

Skoðaðu heiminn í námspásunni þinni

Farðu í köfun í námspásunni þinni

Kynntu þér nýtt fólk í námspásunni þinni

Skoðaðu heiminn í námspásunni þinni

Eignastu vini í námspásunni þinni

Skoðaðu heiminn í námspásunni þinni

Vinna með dýrum í námspásunni þinni

Þarftu aðstoð við að skipuleggja námspásuferð?

Ferðasérfræðingarnir okkar hjálpa þér að móta ferðahugmyndina, velja áfangastaðina og skipuleggja ferð sem hentar þér.

Upplifanir sem fylgja þér áfram

Það besta við námspásu eru ekki bara staðirnir sem þú heimsækir heldur upplifanirnar sem þú safnar á leiðinni. Einn mánuðinn gætir þú verið að vinna með dýrum, þann næsta að læra að surfa, ganga um fjöll eða skoða nýja borg. Hver áskorun, árangur og tengsl móta ferðalagið þitt. Námspásan verður að minningum, hæfni og sögum sem fylgja þér út lífið.

Hópur í námspásu
Að skoða í námspásu
Dýr í námspásu
Að skoða í námspásu
Marokkó námspása
Að sjá dýr í námspásu
Safari í námspásu
Japan í námspásu

Hópur í námspásu

Að skoða í námspásu

Dýr í námspásu

Að skoða í námspásu

Marokkó námspása

Að sjá dýr í námspásu

Safari í námspásu

Japan í námspásu

FAQ

Algengar spurningar

Allt sem þú þarft að vita um að skipuleggja, bóka og nýta námspásuævintýrið þitt til fulls.

Margir ferðalangar taka námspásu á milli menntaskóla og háskóla og áður en þeir hefja starfsferilinn. Besti tíminn fer algjörlega eftir þínum markmiðum, plönum og hvað hentar þér.

Tækifærin eru endalaus. Þú getur ferðast sjálfstætt, tekið þátt í sjálfboðastarfi erlendis, lært nýtt tungumál, tekið þátt í skipulögðum ævintýrum eða blandað öllu saman í eina ferð.

Námspása þarf alls ekki að vara í 12 mánuði. Hvort sem þú hefur nokkrar vikur, nokkra mánuði eða heilt ár, þá geturðu sett saman ferðaplan sem passar við þinn tíma og fjárhag. Við getum aðstoðað þig við allt skipulag!

Ekki endilega. Sumir kjósa að skipuleggja allt fyrirfram en aðrir vilja ferðast með meiri sveigjanleika. Margar námspásuferðir bjóða upp á blöndu af skipulögðum upplifunum og sjálfstæðum ferðalögum.

Námspása gefur þér tækifæri til að stíga út úr rútínunni og upplifa eitthvað nýtt. Þú getur til dæmis:

  • Ferðast um heiminn.

  • Kynnst nýju fólki og menningarheimum.

  • Byggt upp sjálfstraust og sjálfstæði.

  • Lært nýja hluti um heiminn og sjálfa/n þig.

  • Safnað minningum fyrir lífstíð.

  • Fundið nýjan innblástur fyrir framtíðina.

  • Upplifað frelsi og ævintýri á þínum forsendum.

Sýnir 4 / 5 niðurstöður

Þú ættir að taka námspásu ef þig...

...langar að sjá meira af heiminum

Upplifðu ný lönd, kynnstu ólíkum menningarheimum og skapaðu minningar sem ná langt út fyrir hefðbundna sumarfríið.

...langar að styrkja sjálfstraustið

Vertu sjálfstæðari, stígðu út fyrir þægindarammann og öðlastu dýrmæta reynslu með nýjum upplifunum.

...langar að læra eitthvað nýtt

Hvort sem það er tungumál, hagnýt færni eða ný sýn á lífið, þá býður ferðalag upp á endalaus tækifæri til persónulegs vaxtar.