FERÐIR TIL NORÐUR-AMERÍKU
Sjá allar ferðir
Af hverju að heimsækja Norður-Ameríku?
Líflegar borgir, stórbrotin náttúra, rík saga og matargerð fyrir sælkera. Norður-Ameríka býður upp á ótrúlega fjölbreytni og ævintýri fyrir alla ferðalanga.
Valdar ferðir til Norður-Ameríku
Handvaldar upplifanir sem vert er að skoða
Ein heimsálfa, endalaus ævintýri
Norður-Ameríka er full af ógleymanlegum áfangastöðum og ævintýrum. Ef þú elskar stórborgir er New York City frábær staður til að byrja. Þar mætast heimsfræg kennileiti, spennandi næturlíf, einstök verslun og matarsena sem á sér fáa líka.
Fyrir þá sem sækjast eftir fjöllum og útivist er Kanada algjör paradís. Í British Columbia og Klettafjöllunum bíða heimsklassa skíðasvæði, stórkostlegir þjóðgarðar og ótrúlegt landslag. Staðir eins og Whistler, Banff, Lake Louise og Fernie laða að sér ævintýragjarna ferðalanga allt árið um kring.
Ef hugurinn leitar frekar til strandlífsins er erfitt að láta Mexíkó fram hjá sér fara. Hvítar sandstrendur, tær Karíbahafslón og öldur Kyrrahafsins skapa fullkomnar aðstæður til afslöppunar og ævintýra. Á milli strandferða geturðu skoðað fornar Maya-rústir, heimsótt sjarmerandi nýlendubæi og smakkað á einni vinsælustu matargerð heims.
Frá skýjakljúfum og skíðabrekkum til suðrænna stranda og fornra menningarheima sameinar Norður-Ameríka fjölbreytni, náttúru og upplifanir sem fáir aðrir heimshlutar geta boðið upp á.

Mexíkósk matargerð
Áfangastaðir í Norður-Ameríku
Uppgötvaðu fjölbreytt svæði Norður-Ameríku, utan samfélagsmiðla
Þarftu aðstoð við að skipuleggja ferð til Norður-Ameríku?
Ferðasérfræðingarnir okkar hjálpa þér að móta ferðahugmyndina, velja áfangastaðina og skipuleggja ferð sem hentar þér.
Hvað er hægt að gera í Norður-Ameríku?
Road trip, surf eða hópferðir? Norður-Ameríka hefur mikið að bjóða.
Af hverju að velja KILROY fyrir næstu ferðina þína
30+ ára reynsla
Yfir 30 ára reynsla, sérþekking og traustir samstarfsaðilar okkar um allan heim gera þér kleift að ferðast með öryggi og sjálfstrausti.
Persónuleg ferðaráðgjöf
Ferðaráðgjafi sem kynnist þínum óskum, draumum og markmiðum. Frá fyrstu hugmynd að heimkomu erum við með þér í hverju skrefi á leiðinni.
24/7 neyðarsími
Ef eitthvað óvænt kemur upp á er neyðarsíminn okkar opinn allan sólarhringinn. Ferðasérfræðingar KILROY eru til staðar fyrir þig, hvar og hvenær sem er.
KILROY leiðin
Bestu ferðirnar enda ekki þegar þú kemur heim. Þær lifa áfram í upplifunum, sögum og minningum sem fylgja þér lengi eftir að ferðinni lýkur.
Bestu road trip í Norður-Ameríku
Road trip um vesturströnd Bandaríkjanna er klassískt ævintýri sem stendur alltaf fyrir sínu. Byrjaðu í San Francisco, skoðaðu Golden Gate Bridge og röltu um brattar götur borgarinnar. Þaðan liggur leiðin suður eftir hinni frægu Highway 1, þar sem útsýni yfir Kyrrahafið, klettastrendur og sjarmerandi strandbæi gera aksturinn að upplifun í sjálfu sér.
Eftir stopp í Los Angeles tekur eyðimörkin við þar til neonljós Las Vegas lýsa upp sjóndeildarhringinn. Frá spilaborginni er stutt í náttúruundur eins og Grand Canyon og Yosemite National Park, sem eru ómissandi stopp á leiðinni.
En Bandaríkin eru langt frá því að vera eini staðurinn fyrir eftirminnilegt road trip. Kanada og Mexíkó bjóða einnig upp á stórbrotna vegi sem liggja um fjöll, þjóðgarða, strandlengjur og víðáttumikla náttúru. Það besta við road trip er frelsið til að stoppa þegar þig langar, hitta nýtt fólk á leiðinni og það að þú ræður ferðatempóinu sjálf/ur.

Road trip í USA
Algengar spurningar
Hér höfum við tekið saman svör við algengustu spurningum sem við fáum frá viðskiptavinum um Norður-Ameríku.
Norður-Ameríka passar fyrir nánast hvaða budget sem er. Bandaríkin og Kanada eru almennt dýrari en margir aðrir staðir í heiminum, en þú getur haldið kostnaðinum niðri með því að gista á hostelum, fara í road trip með húsbíl, elda sjálf/ur og ferðast utan háannatíma. Mexíkó er oft miklu hagkvæmara og því frábær valkostur fyrir bakpokaferðalög og lengri ferðir. Þar getur þú fengið 5 tacos hjá götusala fyrir minna en 2 evrur!
Besti tíminn fer eftir því hvert þú ætlar að fara. Sumarið (júní til ágúst) er tilvalið fyrir road trip, gönguferðir og þjóðgarða, á meðan veturinn býður upp á frábæra skíðamöguleika í Kanada og Bandaríkjunum. Vor og haust er góður tími ef þú vilt fá færri ferðamenn, þægilegt veður og litríkt landslag. Mexíkó er frábær áfangastaður allt árið, en þurrkatímabilið frá nóvember til apríl er sérstaklega vinsælt.
Nokkrir af helstu áfangastöðum Norður-Ameríku eru New York City, Grand Canyon, Yellowstone þjóðgarðurinn, Banff þjóðgarðurinn, Canadian Rockies, Pacific Coast Highway, Karíbahafstrendur Mexíkó og fornu Mayarústirnar í Chichén Itzá. Hvort sem þú ert að leita að líflegum borgum, epískum road trip, villtri náttúru eða ótrúlegu landslagi, þá er nóg af ógleymanlegum stöðum til að kanna.
















