FERÐIR TIL NÝJA-SJÁLANDS

Land ævintýra og óviðjafnanlegrar náttúru
Ef þú ert að leita að ævintýrum er Nýja-Sjáland staðurinn fyrir þig: bungee-jump, fallhlífarstökk, rafting og gönguferðir í stórkostlegri náttúru.





Upplifðu það besta á Norður-eyju Nýja-Sjálands
Nýja-Sjáland er draumaáfangastaður fyrir ævintýragjarna ferðalanga. Með rúmlega 14.000 kílómetra strandlengju býður landið upp á stórkostlegar strendur þar sem auðvelt er að leigja surfbretti og skella sér á öldurnar. Paihia og Bay of Islands eru sannkölluð paradís fyrir þá sem elska siglingar, köfun og aðrar vatnaíþróttir.
En Nýja-Sjáland hefur mun meira upp á að bjóða en strendur og sjóferðir. Landið er fullt af stórbrotnum gönguleiðum um þjóðgarða og ósnortna náttúru, hvort sem þú ert í stuttri dagsgöngu eða margra daga ævintýri.
Ef þú ert í leit að adrenalíni skaltu heimsækja Auckland og stökkva af Sky Tower eða halda til Taupō þar sem þú getur prófað teygjustökk í stórbrotnu umhverfi. Fyrir enn meira ævintýri geturðu farið í rafting á Kaituna River, þar sem er að finna hæsta foss í heimi sem farið er niður í raftingferðum. Vertu tilbúin/n fyrir magnað 7 metra fall!
Á ferðalagi um landið færðu einnig tækifæri til að kynnast ríkri menningu Māori-fólksins. Rotorua er frábær staður til að fræðast um sögu, hefðir og menningu frumbyggja Nýja-Sjálands. Þar geturðu heimsótt menningarmiðstöðvar sem bjóða upp á hefðbundna dansa, staðbundna matargerð og einstaka innsýn í sögu og arfleifð Māori-fólksins.

Tongariro þjóðgarðurinn
Þarftu aðstoð við að skipuleggja ferð til Nýja-Sjálands?
Ferðasérfræðingarnir okkar hjálpa þér að móta ferðahugmyndina, velja áfangastaðina og skipuleggja ferð sem hentar þér.
Suðureyjan: Jöklar, firðir og mörgæsir
Suðureyjan býður upp á mun meira en magnaða firði og jökla. Hér eru tækifærin til ævintýra nánast endalaus. Á veturna breytast fjöllin í kringum Queenstown í sannkallaða snjóparadís fyrir skíða- og snjóbrettaáhugafólk. Þegar sumarið gengur í garð tekur við annar veruleiki, þar sem borgin verður miðpunktur fyrir teygjustökk, jet-bátaferðir og fallegar siglingar. Queenstown er áfangastaður sem enginn ætti að missa af á ferð um Nýja-Sjáland.
Ef þú vilt upplifa eitthvað einstakt er járnbrautarferðin milli Christchurch og Greymouth talin ein sú fallegasta í heimi. Leiðin tengir saman austur- og vesturströnd Suðureyjar og liggur um stórbrotið landslag með gróskumiklum skógum, gljúfrum og fjalllendi.
Á ferðalaginu um svæðið tekurðu einnig eftir fjölmörgum vínekrum, enda er hér að finna nokkur þekktustu vínræktarsvæði landsins. Marlborough er heimsþekkt fyrir Sauvignon Blanc-vín sín á meðan Central Otago er sérstaklega þekkt fyrir Pinot Noir. Fyrir vínunnendur er þetta sannkölluð paradís.

Milford Sound
Af hverju að velja KILROY fyrir næstu ferðina þína
30+ ára reynsla
Yfir 30 ára reynsla, sérþekking og traustir samstarfsaðilar okkar um allan heim gera þér kleift að ferðast með öryggi og sjálfstrausti.
Persónuleg ferðaráðgjöf
Ferðaráðgjafi sem kynnist þínum óskum, draumum og markmiðum. Frá fyrstu hugmynd að heimkomu erum við með þér í hverju skrefi á leiðinni.
24/7 neyðarsími
Ef eitthvað óvænt kemur upp á er neyðarsíminn okkar opinn allan sólarhringinn. Ferðasérfræðingar KILROY eru til staðar fyrir þig, hvar og hvenær sem er.
KILROY leiðin
Bestu ferðirnar enda ekki þegar þú kemur heim. Þær lifa áfram í upplifunum, sögum og minningum sem fylgja þér lengi eftir að ferðinni lýkur.
Kannaðu Nýja-Sjáland á road trip
Besti möguleikinn til að kanna Nýja-Sjáland á þínum eigin forsendum er road trip. Þú færð algjört frelsi til að ferðast á þínum hraða og skoða stórkostlegustu staðina. Frá ótrúlegum fjörðum Suðureyjar til eldvirkra landslaga Norðureyjar er hver leið ævintýri út af fyrir sig.
Stoppaðu hvar og hvenær sem þú vilt, hvort sem það er við falinn foss eða í líflegum bæ. Með road trip getur þú sofið umvafin/n náttúrunni og vaknað undir stjörnubjörtum himni.
Gott ráð: Það borgar sig að tryggja sér road trip snemma. Því fyrr sem við bókum, því betra verð.

Útsýni úr road trip
Algengar spurningar
Ertu með spurningar? Við höfum svörin. Hér eru nokkrar af þeim spurningum sem ferðalangar spyrja oft áður en þeir leggja af stað til Nýja-Sjálands!
Að keyra á Nýja-Sjálandi þýðir að þú ferðast á vinstri vegarhelmingi. Margir vegir eru hlykkjóttir, þröngir og ómalbikaðir, svo gott er að bæta 20-30% við aksturstímann sem Google Maps áætlar.
Helstu reglur:
Grunnatriði: Allir verða að nota bílbelti, bæði í framsætum og aftursætum. Notkun handhaldins farsíma við akstur er bönnuð.
Hraðatakmörk: Á opnum vegum er hámarkshraði yfirleitt 100 km/klst. en í þéttbýli 50 km/klst. Hraðatakmarkanir geta breyst hratt, svo fylgstu vel með skiltum.
Einbreiðar brýr: Fylgstu með skiltum við einbreiðar brýr. Rauð ör merkir að þú átt að veita umferð úr gagnstæðri átt forgang.
Hringtorg: Gefðu umferð frá hægri forgang og keyrðu réttsælis um hringtorgið.
Framúrakstur: Ekki taka fram úr þar sem gular línur banna framúrakstur. Notaðu framúrakstursakreinar þegar þær eru í boði. Ef þú hægir á umferð fyrir aftan þig skaltu nota útskot eða hægari akreinar þegar það er öruggt.
Þegar vetur gengur í garð hér á Íslandi, þá er að byrja sumar í Nýja-Sjálandi. Frá nóvember til mars er veðrið þar frábært. Veturinn á Nýja-Sjálandi getur verið ansi kaldur og þá sérstaklega á nóttunni. Hitinn getur farið niður í mínus 10 gráður, en yfir daginn getur hann farið upp í um 8 gráður. Desember til febrúar er háannatími og þá verður mikið líf og fjör.
Nýja-Sjáland er oft talið dýrara ferðaland, en það þarf ekki að sprengja ferðabudgetið. Með góðri skipulagningu og því að nýta allar þær ótrúlegu náttúruperlur sem landið hefur upp á að bjóða geturðu upplifað heilmikið án þess að eyða heilu fjárhæðunum.
Langar þig ekki að keyra sjálf/ur? Þá mælum við með rútupassa sem er frábær valkostur fyrir bakpokaferðalanga á budgeti. Þú getur hoppað inn og út hvar sem er og ferðast um alla eyjuna. Þú stoppar við stórkostlega staði eins og jökla, eldfjöll og strendur, heimsækir menningarstaði Maori og kemst jafnvel á fjarlægustu staðina.
Það er leiðsögumaður um borð sem segir þér frá svæðinu. Hann getur líka oft aðstoðað við að finna góða og hagkvæma gististaði, jafnvel á háannatíma.
Ef þú ætlar í bakpokaferðalag um Nýja-Sjáland er hop-on hop-off rútupassi einn vinsælasti kosturinn. Hann gefur þér frelsi til að ferðast á þínum hraða og hoppa inn og út eftir því sem þér hentar.












