FERÐIR TIL PANAMA

Gamli bærinn, Panama City.
Um áfangastaðinn

Meira en bara hinn heimsfrægi Panama-skurður

Panama tengir saman heimsálfur og höf með regnskógum, líflegri höfuðborg og einstöku landslagi sem kemur sífellt á óvart.

Strönd í Bocas del Toro
Strandævintýri
Panama City
Letidýr hangir í trjánum og er ótrúlega krúttlegt
Revolution Tower

Eyjahopp í strandparadís

Panama er draumaáfangastaður fyrir bakpokaferðalanga og strandelskendur. Landið er fullt af afskekktum eyjum, ósnortnum ströndum, regnskógum og litríkum kóralrifum sem bíða þess að verða uppgötvuð. Ferð hingað gefur þér innsýn í afslappaðan Karíbahafslífsstíl og menningu sem setur svip sinn á stóran hluta landsins.

Panama er syðsta land Mið-Ameríku og sameinar á einstakan hátt líflega borgarmenningu, suðræna náttúru og eyjaævintýri. Hoppaðu á milli eyja í San Blas-eyjaklasanum, upplifðu spennandi næturlíf og hátíðahöld í Panama City eða taktu þátt í litríkum hátíðarhöldum á Azuero-skaga. Hvort sem þú ert að leitast eftir slökun, menningu eða ævintýrum, þá hefur Panama eitthvað fyrir þig.

Eyrarhoppi á San Blas eyjum

Eyrarhoppi á San Blas eyjum

Þarftu aðstoð við að skipuleggja ferð til Panama?

Ferðasérfræðingarnir okkar hjálpa þér að móta ferðahugmyndina, velja áfangastaðina og skipuleggja ferð sem hentar þér.

Bocas del Toro og San Blas-eyjarnar

Bocas del Toro er einn vinsælasti áfangastaður Panama fyrir ferðalanga sem elska strendur, eyjalíf og afslappað andrúmsloft. Eyjaklasinn við landamæri Costa Rica samanstendur af gróskumiklum eyjum, tærum sjó og litríku sjávarlífi. Hér finnurðu frumskóga, hvítar sandstrendur og friðsælar víkur sem bjóða upp á allt frá snorkli og köfun til afslappaðra daga í hengirúmi.

Isla Colón er hjarta eyjaklasans og þar finnurðu flesta veitingastaði, bari og gistimöguleika. Ef þú vilt hægara tempó skaltu halda yfir til Isla Carenero, lítillar eyju með afslappaðri stemningu og fallegum ströndum.

En ef þú heimsækir Panama er erfitt að sleppa San Blas-eyjunum. Á Karíbahafsströndinni bíða hundruð smárra eyja sem líta út eins og þær hafi verið teknar beint af póstkorti. Sveigjandi pálmatré, kristaltær sjór, litrík kóralrif og mjúkar sandstrendur gera eyjaklasann að einum af hápunktum landsins. Á milli þess sem þú syndir, snorklar og nýtur sólarinnar geturðu smakkað ferskt sjávarfang og kynnst menningu Guna-fólksins sem býr á eyjunum.

Letidagar á ströndinni í Bocas del Toro

Letidagar á ströndinni í Bocas del Toro

Af hverju að velja KILROY fyrir næstu ferðina þína

30+ ára reynsla

Yfir 30 ára reynsla, sérþekking og traustir samstarfsaðilar okkar um allan heim gera þér kleift að ferðast með öryggi og sjálfstrausti.

Persónuleg ferðaráðgjöf

Ferðaráðgjafi sem kynnist þínum óskum, draumum og markmiðum. Frá fyrstu hugmynd að heimkomu erum við með þér í hverju skrefi á leiðinni.

24/7 neyðarsími

Ef eitthvað óvænt kemur upp á er neyðarsíminn okkar opinn allan sólarhringinn. Ferðasérfræðingar KILROY eru til staðar fyrir þig, hvar og hvenær sem er.

KILROY leiðin

Bestu ferðirnar enda ekki þegar þú kemur heim. Þær lifa áfram í upplifunum, sögum og minningum sem fylgja þér lengi eftir að ferðinni lýkur.

Afþreying og ævintýri í Panama

Panama hentar alls konar ferðalöngum, en er sérstaklega spennandi fyrir bakpokaferðalanga sem leita að ævintýrum og ógleymanlegum upplifunum. Það er vissulega freistandi að slaka á í hengirúmi undir pálmatrjám, en Panama hefur upp á svo miklu meira að bjóða en paradísarstrendur.

Hér geturðu farið í eyjahopp, lært að surfa, gengið um frumskóga, kafað í litríku neðansjávarlífi og siglt niður straumharðar ár. Í Parque Nacional Volcán Barú bíða stórbrotnar gönguleiðir um hæsta fjall landsins, þar sem útsýnið gerir hvert skref þess virði.

Ef útivist er þitt uppáhald eru svæði eins og Cerro Punta, Boquete og El Valle full af gönguleiðum, náttúruupplifunum og afslappaðri stemningu. Fyrir ferðalanga sem leita að meira adrenalíni er Chiriquí-hérað rétti staðurinn. Þar geturðu farið í spennandi river rafting um ár sem liðast í gegnum frumskóga og fram hjá fossum og mögnuðu landslagi.

Frá eyjaævintýrum og surfi til fjallagöngu og river rafting er Panama áfangastaður sem kemur sífellt á óvart og býður upp á miklu meira en flestir gera sér grein fyrir.

Letidýr að fela sig í tré

Letidýr að fela sig í tré

Spænskunám með Traveling Classroom

Ef þig langar að ferðast, læra spænsku og kynnast öðrum bakpokaferðalöngum er Traveling Classroom frábær kostur. Í stað þess að sitja í hefðbundinni kennslustofu fer námið fram í raunverulegu umhverfi, hvort sem það er á ströndinni, í frumskóginum eða í líflegum bæjum, með heimamenn sem kennara. Á sama tíma færðu tækifæri til að upplifa það besta sem Kosta Ríka og Panama hafa upp á að bjóða á aðeins einum mánuði.

Spænskunám í Panama City

Langar þig að læra spænsku í Panama? Hvort sem þú vilt bæta tungumálakunnáttuna á bakpokaferðalagi eða ferðast sérstaklega til að læra tungumálið er Panama City frábær staður til að byrja. Þú færð tækifæri til að æfa spænskuna í daglegu lífi, kynnast menningunni af eigin raun og hitta bæði heimafólk og ferðalanga alls staðar að úr heiminum. Það er ein besta leiðin til að læra tungumál og upplifa nýjan áfangastað á sama tíma.

Spænskunámskeið

Spænskunámskeið

FAQ

Algengar spurningar

Ertu með spurningar? Við erum með svörin. Hér eru nokkrar af þeim spurningum sem ferðalangar spyrja oft áður en þeir leggja af stað til Panama!

Besti tíminn til að fara til Panama er frá desember til apríl, þegar þurrkatímabilið er. Á karabíska svæðinu rignir nánast allt árið, en ekki hafa áhyggjur því skúrirnar eru yfirleitt stuttar og gera frumskóginn enn grænni. Úrkoma minnkar aðeins í kringum febrúar-mars og september-október. Ef gönguferðir eru efst á listanum hjá þér er best að ferðast á þurrkatímabilinu. Fyrir river rafting í Chiriquí eru aðstæðurnar hins vegar yfirleitt bestar frá maí til desember.

Til að komast til Bocas del Toro geturðu tekið stuttan, 30 mínútna leigubíl frá Guabito (nálægt landamærum Costa Rica) til Changuinola. Þaðan fara vatnsskutlur daglega beint út á eyjarnar. Í Panama City er líflegt strætókerfi, þar á meðal hin frægu „diablos rojos“ (rauðu djöflarnir). Ef þú vilt ógleymanlega og fallega leið, geturðu líka tekið lestina frá Panama City til Colón og notið ótrúlegs útsýnis á leiðinni.

Ef þú ert að leitast eftir góðum öldum þá hefur Panama nóg upp á að bjóða. Surfstaðir landsins eru þekktir fyrir kraftmiklar öldur og fjölbreyttar aðstæður, og Santa Catalina á Boca Chica-svæðinu er í sérstöku uppáhaldi hjá mörgum surfurum.


Fyrir þá sem vilja kanna lífið undir yfirborðinu er Parque Nacional Marino Golfo de Chiriquí algjör perla. Svæðið samanstendur af fjölda eyja, kóralrifa og fjölbreyttu sjávarlífi sem gerir það fullkomið fyrir snorkl og köfun. Ekki missa heldur af Isla Boca Brava, þar sem þú getur gengið um frumskóginn, komið auga á apa á trjátoppunum og notið ósnortinnar náttúru langt frá fjöldaferðamennsku.