FERÐIR TIL PORTÚGAL

Meira en sól og strendur
Surf á Atlantshafsströndinni, skoðaðu eldgosseyjar og upplifðu afslappaðan lífsstíl Portúgals.





Meira en strendur og surf
Portúgal er þekkt fyrir sögulegar borgir, fallega strandlengju, eyjaævintýri og afslappaðan lífsstíl. Skoðaðu litrík hverfi í Lissabon og Porto, farðu í gönguferð um stórbrotið landslag Madeira og Azoreyja, slakaðu á ströndum Algarve eða uppgötvaðu heillandi bæi meðfram Atlantshafinu. Hvort sem þú leitar að ævintýrum, menningu, náttúru eða smá af öllu, þá hefur Portúgal eitthvað fyrir alla ferðalanga.

Lissabon, Portúgal
Þarftu aðstoð við að skipuleggja ferð til Portúgal?
Ferðasérfræðingarnir okkar hjálpa þér að móta ferðahugmyndina, velja áfangastaðina og skipuleggja ferð sem hentar þér.
Surfaðu á öldum Atlantshafsins
Portúgal er einn af uppáhaldsáfangastöðunum okkar fyrir surf og það er auðvelt að sjá af hverju. Stöðugar öldur, fallegar strendur og afslappað surf-samfélag gera landið fullkomið, hvort sem þú ert að stíga fyrstu skrefin á surfbrettinu eða vilt taka færnina á næsta stig. Þess vegna vinnum við með vandlega völdum surf camps í Ericeira, Costa da Caparica og Cascais.
Þegar þú bókar surf camp með KILROY færðu þó miklu meira en bara surfkennslu. Þú gistir með öðrum ferðalöngum, kynnist fólki alls staðar að úr heiminum og nýtur þess frelsis sem fylgir því að blanda saman surfi, stranddögum, skoðunarferðum, jóga eða jafnvel road trip um Portúgal. Hvort sem þú ferðast einn, með vinum eða sem hluti af stærra ævintýri hjálpum við þér að finna surfupplifun sem hentar þínum ferðastíl.

Surfcamp í Portúgal
Af hverju að velja KILROY fyrir næstu ferðina þína
30+ ára reynsla
Yfir 30 ára reynsla, sérþekking og traustir samstarfsaðilar okkar um allan heim gera þér kleift að ferðast með öryggi og sjálfstrausti.
Persónuleg ferðaráðgjöf
Ferðaráðgjafi sem kynnist þínum óskum, draumum og markmiðum. Frá fyrstu hugmynd að heimkomu erum við með þér í hverju skrefi á leiðinni.
24/7 neyðarsími
Ef eitthvað óvænt kemur upp á er neyðarsíminn okkar opinn allan sólarhringinn. Ferðasérfræðingar KILROY eru til staðar fyrir þig, hvar og hvenær sem er.
KILROY leiðin
Bestu ferðirnar enda ekki þegar þú kemur heim. Þær lifa áfram í upplifunum, sögum og minningum sem fylgja þér lengi eftir að ferðinni lýkur.
Uppgötvaðu eyjarnar í Portúgal
Margir tengja Portúgal við surfstrendur og sögulegar borgir, en eyjarnar bjóða upp á allt aðra upplifun. Madeira og Azoreyjar, sem liggja úti í Atlantshafi, eru þekktar fyrir stórbrotna náttúru og eru draumaáfangastaðir fyrir þau sem elska gönguferðir, útivist og ævintýri. Hugsaðu þér þétt skóglendi, eldfjallatinda, fossa og stórkostlegt útsýni yfir hafið.
Madeira er oft kölluð „eyja eilífs vors“ vegna mils loftslags og frábærra gönguskilyrða allt árið um kring. Fylgdu fallegum levada-leiðum í grænum dölum, klífðu fjallatinda yfir skýjunum og uppgötvaðu leynda fossa á leiðinni. Azoreyjar, afskekktur eyjaklasi með níu eldfjallaeyjum, bjóða upp á ekki síðra landslag. Þar geturðu gengið meðfram gígvötnum, skoðað stórbrotið eldgosalandslag og slakað á í náttúrulegum heitum laugum eftir dag á gönguleiðum. Hvort sem þú ert að skipuleggja gönguævintýri eða vilt bæta nokkrum dögum í náttúrunni við Portúgalferðina, þá eru þessar eyjur áfangastaðir sem erfitt er að gleyma.

Madeira, Portúgal
Algengar spurningar
Frá surfi og road trip ferðum til besta tíma til að ferðast. Hér eru svör við spurningum sem okkur berast oft um ferðir til Portúgal.
Já, og það er auðvelt að sjá af hverju. Portúgal er vinsæll áfangastaður fyrir sólóferðalanga, með góðar samgöngur, afslappað andrúmsloft og nóg af tækifærum til að kynnast fólki. Hvort sem þú gistir á hosteli, tekur þátt í surf campi eða ferðast í hópi, þá er sjaldan langt í nýja ferðafélaga.
Portúgal er frábær áfangastaður allt árið um kring. Sumarið, frá júní til ágúst, er fullkomið fyrir stranddaga, surf og líflega stemningu við ströndina. Vor og haust bjóða hins vegar upp á milt veður, færri ferðamenn og frábærar aðstæður fyrir gönguferðir, road trip og skoðunarferðir.
Madeira er svo sérstök að hún er draumaáfangastaður óháð árstíma. Eyjan er þekkt fyrir milt loftslag allt árið, sem gerir hana fullkomna fyrir útivist, gönguferðir og náttúruupplifanir hvenær sem er.
Já! Portúgal er einn af bestu surf áfangastöðum í Evrópu. Hvort sem þú ert byrjandi eða vanur surfari finnur þú öldur fyrir öll getustig. Vinsælir surf staðir eru Ericeira, Cascais og Algarve, og surf camp er topp leið til að bæta færni og kynnast öðrum ferðalöngum.
Algjörlega. Margir ferðalangar velja að blanda surf og jóga saman. Þannig færðu ævintýri og slökun í einum pakka. Við bjóðum upp á pakka á stöðum eins og Ericeira og Cascais þar sem þú getur notið beggja í ferðinni þinni.
Engin spurning. Madeira og Azoreyjar eru frábærar fyrir þau sem elska náttúru og gönguferðir. Þú getur búist við eldgosalandslagi, dramatískum strandlínum, fjallaleiðum, fossum og ótrúlegum útsýnisstöðum. Þessar eyjur sýna allt aðra hlið Portúgals en meginlandið.
Sýnir 4 / 5 niðurstöður












