Road trips með KILROY.
Um afþreyingu

Uppgötvaðu bestu road trip ævintýri heimsins

Minnispunktur: Bestu minningarnar verða til á leiðinni

Skipuleggjum þitt road trip saman

Hjá KILROY færð þú meira en bara aðgang að fjölbreyttu úrvali af campervönum, húsbílum og bílaleigubílum. Við hjálpum þér að skipuleggja allt road trip-ið; frá flugum og leiðarhugmyndum til ógleymanlegra upplifana á leiðinni. Hvort sem þig langar í gönguævintýri, bátsferðir, vínsmökkun eða adrenalínupplifanir eins og fallhlífarstökk eða river rafting, þá tryggjum við að þú missir hvorki af hápunktum né leyndum perlum sem við fundum sjálf á okkar eigin ferðum.

Að vakna við svona útsýni.
Taktu maka þinn með í road trip um Nýja-Sjáland.
Húsbílar sem rúma alla fjölskylduna.
Finndu campervan sem passar við þinn ferðastíl.

Að vakna við svona útsýni.

Taktu maka þinn með í road trip um Nýja-Sjáland.

Húsbílar sem rúma alla fjölskylduna.

Finndu campervan sem passar við þinn ferðastíl.

Þarftu aðstoð við að skipuleggja road trip?

Ferðasérfræðingarnir okkar hjálpa þér að móta ferðahugmyndina, velja áfangastaðina og skipuleggja ferð sem hentar þér.

Samgöngur

Finndu rétta bílinn fyrir þitt ævintýri

Campervan

Campervan gefur þér frelsi, sveigjanleika og hjálpar þér að halda kostnaði niðri. Þetta er vinsælasti kosturinn hjá bakpokaferðalöngum, sólóferðalöngum og pörum sem vilja vakna á nýjum stað á hverjum degi án þess að þurfa að bóka gistingu á leiðinni.

Flestir campervanar eru með nauðsynlegasta búnaðinn fyrir lífið á ferðinni; lítið eldhús með gashellu, vaski, ísskáp og grunneldhúsáhöldum. Sumar gerðir eru jafnvel með salerni og sturtu.

Campervanar eru venjulega fyrir 2-4 manns.
Leigðu stóran húsbíl.
Leigðu bíl og dveldu á hótelum.

Campervanar eru venjulega fyrir 2-4 manns.

Leigðu stóran húsbíl.

Leigðu bíl og dveldu á hótelum.

Nokkur ráð sem við höfum lært á veginum

Við höfum sjálf farið í ótal road trip og hér eru nokkur góð ráð áður en þú leggur af stað:

  • Vertu viss um að vera með góða tryggingu. Og við getum hjálpað þér með það!

  • Bókaðu aðeins stærri bíl en þú heldur að þú þurfir, ef budget leyfir.

  • Sæktu kort áður en þú ferð. Símasamband getur verið óstöðugt.

  • Fylltu tankinn utan við stærri borgir þegar þú getur, þar sem verðið getur verið mun lægra.

  • Lærðu reglur um akstur á staðnum, sérstaklega ef ekið er vinstra megin.

  • Sumar leigustöðvar taka ekki debetkortum. Taktu alþjóðlegt kreditkort með.

Mundu: vinstri akstursátt í Ástralíu
Settu upp tjald og njóttu kvöldsins.
Keyrðu hina goðsagnakenndu Route 66.

Mundu: vinstri akstursátt í Ástralíu

Settu upp tjald og njóttu kvöldsins.

Keyrðu hina goðsagnakenndu Route 66.

FAQ

Algengar spurningar

Algengar spurningar um road trip ferðalög.

Það fer allt eftir því hvernig þú vilt ferðast. Campervan er frábær kostur fyrir bakpokaferðalanga og pör sem vilja frelsi og sveigjanleika á hagkvæman hátt. Húsbílar bjóða upp á meira pláss og þægindi, á meðan bílaleigubíll hentar vel ef þú vilt gista á farfuglaheimilum, hótelum eða í fjallaskálum á leiðinni. Við hjálpum þér að finna valkost sem passar þínum ferðastíl og budgeti.

Kostnaðurinn fer eftir áfangastað, árstíma, gerð ökutækis og ferðamáta. Campervan eða húsbíll getur sparað þér gistingu á meðan bílaleigubíll býður oft meiri sveigjanleika. Við hjálpum þér að finna lausn sem hentar bæði draumaferðinni og veskinu.

Ef þetta er þitt fyrsta road trip mælum við oft með áfangastöðum eins og Nýja-Sjálandi, Ástralíu, Kanada eða vesturströnd Bandaríkjanna. Þar eru frábærir vegir, stórkostlegt landslag og góð aðstaða fyrir þau sem vilja upplifa frelsið á ferðinni án mikillar skipulagsvinnu.

Algjörlega! Road trip er frábær leið til að ferðast ein/n og njóta frelsisins til fulls. Þú stjórnar ferðahraðanum, stoppar þar sem þig langar og getur auðveldlega kynnst öðrum ferðalöngum á farfuglaheimilum, tjaldsvæðum og á vinsælum stoppum á leiðinni.

Í flestum tilfellum já. Margar bílaleigur og campervan-fyrirtæki bjóða upp á að sækja ökutækið á einum stað og skila því á öðrum. Þetta er sérstaklega vinsælt í löndum eins og Nýja-Sjálandi, Ástralíu og Kanada þar sem margir vilja keyra aðra leið en þeir komu. Við hjálpum þér að athuga það ef það er eitthvað sem þú hefur áhuga á!

Við gerum meira en bara að bóka bílinn. Ferðasérfræðingarnir okkar hafa sjálfir farið í fjölmörg road trip og geta hjálpað þér að velja rétta áfangastaði, leið, ökutæki og ferðatíma. Við getum einnig aðstoðað með flug, gistingu, ferðaáætlanir og ráð um bestu stoppin á leiðinni, svo þú getir einbeitt þér að ævintýrinu.

Sýnir 4 / 6 niðurstöður

Þú ættir að fara í road trip hér ef þú...

...vilt sjá fjölbreytt dýralíf á leiðinni

Þú veist aldrei hvað bíður handan næstu beygju, kannski grábjörn, elgur eða hvalur úti í firðinum.

...vilt gleyma klukkunni alveg

Þú vilt keyra eftir opnum vegum undir endalausum himni, með uppáhaldslagalistann í botni og næsta ævintýri handan næstu beygju.

...elskar náttúruna

Þú vilt sjá landslagið breytast frá fjallatindum í strandbæi og djúpa firði, allt á einni og sömu leiðinni.