Sjáðu fíla á safari
Um afþreyingu

Upplifðu þekkt villt dýr og óbeislaða náttúru

Farðu í ógleymanleg safaríævintýri um einhver af stórbrotnustu víðernum heimsins og upplifðu villt dýralíf í sínu náttúrulega umhverfi.

Ógleymanleg safarí- og dýralífsævintýri

Safarí er miklu meira en venjuleg ferð. Það er tækifæri til að upplifa náttúruna í sinni villtustu mynd. Hvort sem þú ert að fylgjast með ljónum á afrísku savönnunni eða horfa á fíla ráfa frjálsa um þjóðgarða, þá færir safarí þig nær náttúrunni en flest önnur ferðalög.

Dreymir þig um klassískt safarí í Tansaníu eða Kenía, eða langar þig að kynnast einstöku dýralífi Sri Lanka og Indlands? Hvert safarí býður upp á sínar eigin upplifanir, ógleymanleg kynni af villtum dýrum og stórbrotið landslag sem þú gleymir seint.

Sjáðu nashyrninga í sínu náttúrulega umhverfi

Sjáðu nashyrninga í sínu náttúrulega umhverfi

Þarftu aðstoð við að skipuleggja safaríferð?

Ferðasérfræðingarnir okkar hjálpa þér að móta ferðahugmyndina, velja áfangastaðina og skipuleggja ferð sem hentar þér.

Villt dýralífsævintýri utan Afríku

Þótt Afríka sé heimili margra þekktustu safarí-áfangastaða heims, þá er hægt að upplifa magnaðar dýraupplifanir víða um heim. Leitaðu að Bengal tígrisdýrum í þjóðgörðum Indlands, sjáðu hlébarða og villta fíla á Sri Lanka, eða farðu djúpt inn í regnskóga Indónesíu til að sjá órangútana. Eða kannaðu víðáttumiklar vatnaleiðir og frumskóga Amazon, þar sem þú gætir rekist á bleika höfrunga, kámena, apa og óteljandi framandi fuglategundir.

Dýraævintýrin eru ekki bara á landi. Farðu út á sjó og upplifðu ógleymanlega hvalaskoðun þar sem þú gætir séð hnúfubaka og fleiri tegundir í náttúrulegu umhverfi þeirra.

Sjáðu órangútana á Sumatru, Indónesíu

Sjáðu órangútana á Sumatru, Indónesíu

Skipuleggðu safaríævintýrið þitt

Áður en þú bókar safarí ferðina þína er gott að hugsa um nokkur lykilatriði:

Hvaða dýr viltu sjá? Mismunandi áfangastaðir bjóða upp á ólíka upplifun. Sumir eru þekktir fyrir the Big Five, aðrir fyrir fíla, hlébarða, górillur eða stórkostlegt fuglalíf.

Hvernig viltu ferðast? Veldu á milli leiðsagna í hóp, sérsniðinna ferða, safarí þar sem þú keyrir sjálf/ur eða overlandferðir.

Hvaða þægindastig hentar þér? Gisting í safarí spannar allt frá ódýrum tjaldsvæðum til lúxuslodge með stórkostlegu útsýni yfir dýralífið.

Ferðasérfræðingarnir okkar hjálpa þér að finna hina fullkomnu safaríferð miðað við áhuga þinn, fjárhag og ferðastíl.

Safari lodge í Arusha, Tansanía

Safari lodge í Arusha, Tansanía

Safarí á KILROY-máta

Hjá KILROY snýst safarí um miklu meira en að haka við dýr á lista. Þetta snýst um að vakna fyrir sólarupprás, elta ljón yfir savanna, fylgjast með fílum við vatnsból og upplifa augnablik sem þú munt tala um löngu eftir að ferðinni lýkur.

Hvort sem þú ert að leitast eftir hagkvæmu ævintýri eða safaríferð sem hefur verið á bucket listanum í mörg ár, þá hjálpum við þér að finna réttu upplifunina. Við sjáum um flug, gistingu, samgöngur og skipulagið svo þú getir einbeitt þér að því mikilvæga: að njóta hvers augnabliks.

Búðu þig undir morgna sem byrja snemma, óvænt dýrakynni, stórbrotið landslag og sögur sem verða betri í hvert skipti sem þú segir þær. Þetta er ekki bara ferð, þetta er safaríævintýri á KILROY-máta.

Kynnstu nýju fólki og búðu til minningar sem gleymast ekki

Kynnstu nýju fólki og búðu til minningar sem gleymast ekki

FAQ

Algengar spurningar

Algengar spurningar sem við fáum um safaríferðir.

Safarí-ferðir eru mjög mismunandi í verði eftir áfangastað, árstíma, samgöngum, gistingu og hversu mikil þægindi þú vilt. Þó lúxusferðir geti verið dýrar, þarf ógleymanleg dýraupplifun ekki endilega að tæma veskið.

KILROY býður upp á fjölbreytt úrval af hagkvæmum safarí-ferðamöguleikum þar sem þú getur upplifað ótrúlegt dýralíf, magnaða náttúru og ekta ævintýri án þess að fórna upplifuninni.

Tansanía: Kannaðu heimsþekkta staði eins og Serengeti þjóðgarðinn og Ngorongoro gíginn. Tansanía býður upp á einstaka upplifun af villtum dýrum, stórbrotna náttúru og möguleikann á að sjá hina miklu árstíðaflutninga (the Great Migration).

Kenýa: Maasai Mara er eitt þekktasta safarí svæði Afríku og hér færðu að sjá ljón, fíl, hlébarða og fleiri dýr í sínu náttúrulega umhverfi.

Suður-Afríka: Upplifðu fræga þjóðgarða eins og Kruger þjóðgarð og Addo Elephant National Park. Suður-Afríka sameinar magnaða náttúruupplifun, góða aðstöðu og fjölbreytta ferðamöguleika.

Namibía: Kynntu þér dramatískt eyðimerkurlandslag, víðáttur og sérstakt dýralíf á stöðum eins og Etosha þjóðgarðinum og sandöldum Sossusvlei.

Indland: Upplifðu aðra hlið á safarí í þekktum þjóðgörðum Indlands. Leitaðu að Bengal tígrisdýrinu í Ranthambore eða Bandhavgarh þjóðgarðinum og sjáðu hlébarða, letibjörn, fíl og ótrúlegt fuglalíf.

Sri Lanka: Einn af földu safarí-gimsteinum Asíu, þar sem þú getur séð villta fíla, hlébarða, letibjörn og fjölbreytt fuglalíf.

Borneó og Súmatra: Farðu djúpt inn í frumskóga Borneó og Súmatra, leitaðu að órangútum í sínu náttúrulega umhverfi, sjáðu framandi fugla og kannaðu gróskumikil regnskógarvistkerfi með einstakri náttúru.

Það fer eftir áfangastað, en í flestum safaríferðum getur þú séð fíla, ljón, gíraffa, sebrahesta, nashyrninga, buffaló, hlébarða og óteljandi fuglategundir. Sumir staðir, eins og Indland, eru þekktir fyrir tígrisdýr, á meðan Malasía og Sumatra eru þekkt fyrir órangútana og regnskógardýralíf.

Besti tíminn fer eftir því hvert þú ætlar og hvaða dýr þú vilt sjá. Í mörgum Afríkuríkjum er þurrkatímabilið besti tíminn til að sjá dýrin, þar sem þau safnast saman við vatnsbólin. Ferðasérfræðingar okkar geta hjálpað þér að velja besta tímann miðað við ferðaplönin þín.

Já, safaríferðir eru almennt mjög öruggar þegar ferðast er með reyndum leiðsögumönnum og virtum ferðaaðilum. Leiðsögumennirnir þekkja dýrin, umhverfið og öryggisreglurnar út og inn og sjá til þess að þú getir notið upplifunarinnar af öryggi.

Það eina sem þú þarft að gera er að fylgja leiðbeiningunum, hafa myndavélina tilbúna og njóta þess að fylgjast með villta dýralífinu í sínu náttúrulega umhverfi.

Taktu með þér þægileg föt í hlutlausum litum, góða gönguskó, sólarvörn, skordýravörn, fjölnota vatnsbrúsa og myndavél eða sjónauka. Hitastig getur verið breytilegt yfir daginn, svo létt lög eru líka góð hugmynd.

Flestar safaríferðir eru á bilinu 3 til 10 dagar, allt eftir áfangastað og dagskrá. Stutt safarí getur samt gefið þér mögnuð tækifæri til að sjá villt dýr, en lengri ferðir bjóða upp á að kanna fleiri þjóðgarða og ólík vistkerfi.

Sýnir 4 / 7 niðurstöður

Þú ættir að fara í safarí ef...

...þig dreymir um að sjá villt dýr í návígi

Upplifðu ótrúleg kynni við villt dýr í sínu náttúrulega umhverfi, allt frá fílum og ljónum til órangútana og hlébarða.

...þú elskar náttúruna og útiveru

Kannaðu stórfenglega þjóðgarða, afskekktar óbyggðir og einstaka náttúru.

...þú vilt fá alvöru ævintýri

Ekkert safarí-ævintýri er eins. Þú færð ógleymanleg augnablik, óvæntar upplifanir og minningar sem endast ævilangt.