FERÐIR TIL SEYCHELLES-EYJA

Paradís með smá ævintýraívafi
Þetta er staðurinn þar sem regnskógarnir ná alla leið niður að ströndinni og hver eyja hefur sitt eigið ævintýri.



Meira en bara strandarparadís
Seychelles er miklu meira en myndrænar strendur. Þessi eyjaklasi í Indlandshafi býður upp á gróskumikla skóga, stórbrotið granítlandslag, litríkt sjávarlíf og afslappaðan lífsstíl. Farðu í eyjahopp, skoðaðu náttúruverndarsvæði, snorklaðu yfir kóralrifum eða njóttu einfaldlega þess að hægja á þér. Hvort sem Seychelles-eyjar eru hluti af stærra Afríkuævintýri eða aðaláfangastaðurinn þinn, bíða hér ógleymanlegar upplifanir.

Seychelles býður upp á frábærar gönguleiðir
Þarftu aðstoð við að skipuleggja ferð til Seychelles-eyja?
Ferðasérfræðingarnir okkar hjálpa þér að móta ferðahugmyndina, velja áfangastaðina og skipuleggja ferð sem hentar þér.
Eyjahopp er alvöru ævintýri
Ein besta leiðin til að upplifa Seychelles er að eyjahoppa. Hver eyja hefur sinn einstaka karakter og upplifun. Á Mahé finnurðu fjallagöngur, litríka markaði og fallegar strendur. Praslin er heimkynni Vallée de Mai, þar sem hinn einstaki coco de mer-pálmi vex villtur, á meðan La Digue heillar með afslöppuðu andrúmslofti, hjólum í stað bíla og fallegum flóum.
Fyrir utan aðaleyjarnar leynast fjölmargar smærri eyjar, sumar óbyggðar og aðrar verndaðar, sem bjóða upp á innsýn í villta og ósnortna náttúru Seychelles. Ferjur gera það auðvelt að ferðast á milli eyjanna og bátsferðir opna leiðina að afskekktum ströndum og földum paradísum.

Það sem þú verður að gera á Seychelles: Eyjahopp
Af hverju að velja KILROY fyrir næstu ferðina þína
30+ ára reynsla
Yfir 30 ára reynsla, sérþekking og traustir samstarfsaðilar okkar um allan heim gera þér kleift að ferðast með öryggi og sjálfstrausti.
Persónuleg ferðaráðgjöf
Ferðaráðgjafi sem kynnist þínum óskum, draumum og markmiðum. Frá fyrstu hugmynd að heimkomu erum við með þér í hverju skrefi á leiðinni.
24/7 neyðarsími
Ef eitthvað óvænt kemur upp á er neyðarsíminn okkar opinn allan sólarhringinn. Ferðasérfræðingar KILROY eru til staðar fyrir þig, hvar og hvenær sem er.
KILROY leiðin
Bestu ferðirnar enda ekki þegar þú kemur heim. Þær lifa áfram í upplifunum, sögum og minningum sem fylgja þér lengi eftir að ferðinni lýkur.
Hvað á að gera á Seychelles-eyjum?
Draumakenndar strendur eru aðeins byrjunin. Seychelles býður upp á gróskumikla regnskóga, stórbrotnar gönguleiðir, einstakt sjávarlíf og afslappaða eyjastemningu. Hér eru nokkrar upplifanir sem þú ættir ekki að missa af.
Heimsæktu aðaleyjarnar Mahé, Praslin og La Digue
Mahé er stærsta eyjan og heimili höfuðborgarinnar Victoria. Þar geturðu gengið um Morne Seychellois þjóðgarðinn, slakað á við Beau Vallon-ströndina eða notið staðbundinnar matarmenningar. Á Praslin bíður Vallée de Mai, heimili hins einstaka coco de mer-pálma, og á La Digue tekur lífið hægar á sér með hjólreiðum, fallegum ströndum og afslöppuðu andrúmslofti.
Kafaðu og snorklaðu í kristaltæru hafi
Seychelles er paradís fyrir unnendur sjávarins. Snorklaðu yfir litríku kóralrifi, farðu í köfun meðal skjaldbaka og hitabeltisfiska eða taktu bátsferð þar sem þú gætir séð höfrunga og sjófugla.
Taktu þátt í náttúruvernd
Langar þig að ferðast með tilgang? Á Seychelles-eyjum eru fjölmörg verkefni sem tengjast verndun hafsins, þar sem hægt er að taka þátt í rannsóknum á kóralrifum, sæskjaldbökum og öðru sjávarlífi.
Smakkaðu kreólska matargerð
Ferðin er ekki fullkomin án þess að smakka ferskan sjávarrétt, ilmandi karrýrétti og suðræna ávexti. Kreólska matargerðin sameinar afrísk, asísk og evrópsk áhrif og er stór hluti af upplifuninni á eyjunum.

Seychelles eru frábærar fyrir köfun og snorkl
Hvenær er besti tíminn til að heimsækja Seychelles-eyjar?
Seychelles er áfangastaður sem hægt er að heimsækja allt árið. Hitinn helst yfirleitt á bilinu 24-30°C og eyjarnar njóta hlýlegs hitabeltisloftslags árið um kring.
Apríl, maí, október og nóvember eru oft taldir bestu mánuðirnir til að heimsækja eyjarnar. Þá er hafið yfirleitt rólegt, aðstæður frábærar fyrir snorkl og köfun og auðvelt að eyjahoppa á milli fallegra stranda og grænna náttúrusvæða.
Frá maí til september blása stöðugri vindar sem laða að brimbrettafólk og gera gönguferðir þægilegri í aðeins svalara veðri.
Frá desember til mars verður loftslagið hlýrra og rakara, með stöku hitabeltisskúrum. Á móti verður náttúran einstaklega gróskumikil og eyjarnar skarta sínu fegursta.
Í stuttu máli: Það er enginn slæmur tími til að heimsækja Seychelles. Hvort sem þú ert að leita að kristaltæru hafi, ævintýrum í náttúrunni eða afslöppun á paradísarströndum, þá finnurðu rétta tímann fyrir þína ferð.

Þú getur heimsótt Seychelles allt árið
Algengar spurningar
Hér finnur þú svör við algengustu spurningunum um ferðalög til Seychelles-eyja.
Flestir ferðalangar dvelja í um 10-14 daga á Seychelles-eyjum, sem gefur þér nægan tíma til að skoða tvær eða þrjár eyjar. Ef þú vilt ekki bara heimsækja aðaleyjarnar heldur líka kanna afskekktari eyjar, þá getur þú auðveldlega verið þar í meira en tvær vikur. Ef Seychelles er strandarstoppið í lengri ferð og þú ætlar bara að heimsækja Mahé, þá eru um fimm dagar oft nóg.
Seychelles teljast meðal dýrari áfangastaða í Afríku, en það er hægt að halda kostnaðinum niðri með því að velja einfaldari gistingu, borða staðbundinn mat og ferðast með ferjum á milli eyja. Utan háannar er einnig oft hægt að finna betri verð á bæði flugi og gistingu.
Mahé, Praslin og La Digue eru klassíska samsetningin, hver með sína sérstöðu. Þar fyrir utan er hægt að skoða tugi annarra eyja á bátsferðum.
Reglur um vegabréfsáritanir og inngöngu geta breyst, svo við mælum alltaf með að þú skoðir nýjustu upplýsingarnar á vef utanríkisráðuneytisins áður en lagt er af stað. Með góðum undirbúningi geturðu einbeitt þér að því að njóta eyjanna þegar þangað er komið.
Já, Seychelles-eyjar eru þekktar fyrir kristaltært vatn, falleg kóralrif og fjölbreytt sjávarlíf. Hér geturðu séð litskrúðuga hitabeltisfiska, sæskjaldbökur og fjölbreyttar kóraltegundir. Eyjarnar bjóða upp á frábæra staði fyrir bæði snorkl og köfun, hvort sem þú ert byrjandi eða reynslumikill kafari.
Algjörlega! Ein besta leiðin til að upplifa Seychelles er að eyjahoppa. Ferjur gera það auðvelt að ferðast á milli Mahé, Praslin og La Digue, svo þú getur upplifað ólíkan karakter hverrar eyjar. Langar þig að kanna enn meira? Þá eru bátsferðir frábær leið til að uppgötva falda gimsteina á ótroðnum slóðum.
Sýnir 4 / 6 niðurstöður











