SÓLÓ FERÐALÖG

Farðu sóló og sjáðu hvað gerist
Bara þú, heimurinn og frelsið til að fara þína eigin leið.
Ferðastu ein/n, á þinn hátt
Það er eitthvað sérstakt við að ferðast ein/n. Þú ræður ferðinni, ákveður hvert þú ferð og getur breytt plönunum hvenær sem er. En sóló ferðalög snúast um meira en frelsi. Þau hjálpa þér að stíga út fyrir þægindarammann, byggja upp sjálfstraust og uppgötva nýjar hliðar á sjálfri/-um þér.
Hvort sem þig dreymir um bakpokaferðalag um Asíu, road trip um Ástralíu, gönguferðir í Suður-Ameríku eða safarí í Afríku, þá bíða ógleymanleg ævintýri. Þú getur líka blandað saman sóló ferðalögum og hópferðum til að hitta aðra ferðalanga á leiðinni.
Ef skipulagningin virðist yfirþyrmandi hjálpum við þér að setja saman ferð sem passar við áhugamál þín, budget og ferðastíl. Þá geturðu einbeitt þér að skemmtilegasta hlutanum: Að hlakka til ferðarinnar.
Skoðaðu Fushimi Inari-helgidóminn í Japan
Gakktu að grunnbúðum Everest
Everest Base Camp
Farðu í hópsafari í Suður-Afríku
Slakaðu á í hengirúmi í Kambódíu
Kynntu þér fólk á viðburðum eins og flúðasiglingum
Sjáðu dauðu trén í Deadvlei, Namibíu
Taktu þátt í hópgönguferð í Indónesíu
Spottaðu fílana - og Kilimanjaro - í Tansaníu
Klifrið á Kilimanjaro
Hittu aðra ferðalanga þegar þú ferð að kafa
Uppgötvaðu neðansjávarheiminn einn - en samt með öðrum
Bestu áfangastaðirnir fyrir sóló ferðalög
Nokkrir af okkar uppáhalds áfangastöðum fyrir sóló ferðalanga
Þarftu aðstoð við að skipuleggja sóló ferð?
Ferðasérfræðingarnir okkar hjálpa þér að móta ferðahugmyndina, velja áfangastaðina og skipuleggja ferð sem hentar þér.
Af hverju að ferðast ein/n?
Einn stærsti kosturinn við að ferðast ein/n er frelsið. Þú ræður ferðinni, ákveður dagskrána og getur breytt plönunum hvenær sem er. Langar þig að verja nokkrum dögum í surf eða dvelja lengur á uppáhaldsstaðnum? Þú þarft ekki að semja við neinn.
Sóló ferðalög snúast þó um meira en frelsi. Þau ýta þér út fyrir þægindarammann, hjálpa þér að byggja upp sjálfstraust og uppgötva nýjar hliðar á sjálfri/-um þér.
Og þótt þú ferðist ein/n þarftu ekki að vera einn. Það er oft auðveldara að kynnast öðrum ferðalöngum á leiðinni, hvort sem það er yfir götumat, í hostelinu eða á skipulagðri ferð.
Á sama tíma færðu meira rými til að njóta augnabliksins, fara þína eigin leið og upplifa heiminn á þínum forsendum.
Fara í göngu í Gvatemala
Kanna Patagóníu
Sjá Machu Picchu
Taka þátt í jógatíma í Taílandi
Eyjahopp í Fídjí
Slaka á við varðeld í Fídjí
Dáðst að Arenal-eldfjallinu í Kosta Ríka
Finna letidýr í Kosta Ríka
Heimsækja Iguazú-fossa í Brasilíu
Ganga að „Lost City“ í Kólumbíu
Ævintýraferð í eyðimörk í Marokkó
Fara í kayak í Kanada
Hvað þarf ég að hafa í huga þegar ég ferðast sóló?
Undirbúðu þig vel: Kynntu þér áfangastaðinn, samgöngur, staðbundna siði og helstu ferðaráð áður en lagt er af stað.
Gistu þar sem auðvelt er að hitta aðra: Hostel, hópferðir og skipulagðar upplifanir eru frábærar leiðir til að kynnast fólki á ferðalaginu.
Skildu eftir pláss fyrir spontön augnablik: Ekki fylla alla dagskrána. Sum bestu ævintýrin gerast þegar þú breytir plönunum á síðustu stundu.
Vertu með plan fyrir fyrstu dagana: Það gerir komuna auðveldari og hjálpar þér að komast af stað með sjálfstrausti.
Treystu innsæinu: Ef eitthvað finnst þér óþægilegt þarftu ekki að vera kurteis. Öryggið kemur alltaf fyrst.
Ekki treysta eingöngu á símann: Hafðu afrit af mikilvægum skjölum, bókunum og flugupplýsingum.
Heimsækja jökulvötn í Perú
Fara að kafa á Filippseyjum
Kanna hof í Gvatemala
Heimsækja Zhangjiajie í Kína
Gista á liveaboard á Filippseyjum
Klappa lamma í Perú
Hvert ættir þú að fara í sóló ferðalag?
Þú getur ferðast sóló víða um heim, en sumir áfangastaðir henta sérstaklega vel og þá sérstaklega ef þetta er fyrsta sóló-ævintýrið þitt. Staðir þar sem auðvelt er að ferðast um, góðir möguleikar fyrir bakpokaferðalanga og fullt af tækifærum til að hitta annað ferðafólk eru oft frábær byrjun.
Suðaustur-Asía er klassískur valkostur. Tæland, Víetnam, Kambódía, Laos og Malasía eru með vinsælar bakpokaleiðir, nóg af hostelum og endalaus tækifæri til að kynnast öðru ferðafólki. Dögum má eyða í eyjahopp, læra að surfa, ganga um frumskóga eða skoða líflegar borgir, allt á viðráðanlegu budgeti.
Ástralía er annar uppáhaldsstaður, sérstaklega ef þig langar að blanda saman frelsi og félagslegu bakpokaferðalagi. Surfnámskeið, hostel og skipulagðar upplifanir gera það auðvelt að kynnast fólki, en þú hefur líka fullt frelsi til að skoða á þínum hraða.
Nýja-Sjáland er draumastaðurinn fyrir þau sem þrá náttúru og ævintýri. Gakktu um magnað landslag, lærðu að surfa, farðu í road trip á campervan eða taktu þátt í viðburðum með öðru ferðafólki.
Suður-Afríka býður upp á blöndu af náttúru, fjöllum, strandlengju, líflegum borgum og ævintýrum. Enska er töluð víða, svo það er auðvelt að ferðast um og kynnast bæði heimafólki og öðrum ferðalöngum.
Bandaríkin eru frábær ef þig hefur alltaf dreymt um road trip. Þú getur ferðast á þínum hraða en hostel, dagsferðir og skipulagðar upplifanir gera það líka auðvelt að kynnast öðru fólki á leiðinni.
Auðvitað eru þetta bara nokkrar hugmyndir. Besti áfangastaðurinn fer eftir því hvað þú vilt fá út úr ferðinni, hversu mikla sólóreynslu þú hefur og hversu langt út fyrir þægindarammann þú vilt fara. Ef þú vilt fá innblástur eða aðstoð við að skipuleggja ævintýrið, hafðu samband við ferðasérfræðinga okkar. Við hjálpum þér að finna staðinn sem hentar þér best.
Fara í fallhlífarstökk í Ástralíu
Lifa draumalífinu í Suður-Afríku
Smakka geggjaðan mat í Taílandi
Skoða markaði og verslanir í Sri Lanka
Læra surf á Sri Lanka
Fara í göngu í Nýja-Sjálandi
Ferðastu á sóló, en með félagsskap þegar þú vilt
Ekki alveg tilbúin/n að ferðast alla leiðina ein/n? Þú þarft ekki að velja á milli sóló ferðalags og þess að ferðast með öðrum. Hópferð gefur þér það besta úr báðum heimum.
Með KILROY hópferð geturðu mætt ein/n og kynnst öðrum ferðalöngum strax frá fyrsta degi. Tripmates-ferðirnar okkar eru hannaðar fyrir ungt fólk og blanda saman sameiginlegum ævintýrum og frítíma til að skoða á eigin vegum. Hóparnir eru litlir, að hámarki 16 manns og margir ferðast einir, þannig að það er auðvelt að kynnast nýju fólki.
Tripmates-ferðirnar geta verið allt ferðalagið eða bara hluti af stærra ævintýri. Þær eru frábær leið til að prófa sóló ferðalag, byggja upp sjálfstraust og eignast ferðafélaga áður en þú heldur áfram á eigin vegum.
Tripmates í Indónesíu
Tripmates í Georgíu
Tripmates á Maldíveyjum
Tripmates í Nepal
Tripmates í Indónesíu
Tripmates á Bornea
Tripmates á Sri Lanka
Tripmates í Suður-Afríku
Tripmates í Namibíu
Tripmates í Eswatini
Tripmates í Malasíu
Tripmates á Balí
Tripmates í Albaníu
Algengar spurningar
Finndu svör við algengustu spurningunum um sóló ferðalög.
Í mörgum löndum, já. Sum lönd og svæði henta þó betur fyrir sóló ferðalög en önnur. Kynntu þér áfangastaðinn áður en þú leggur af stað, skoðaðu nýjustu ferðaráð og notaðu skynsemina á staðnum. Það er líka sniðugt að deila ferðaplani með einhverjum heima og tryggja að þú getir haft samband ef þarf.
Ef þú ert óviss um hvert þú átt að fara eða hvernig þú átt að skipuleggja leiðina, þá erum við til staðar. Við getum mælt með áfangastöðum sem henta sóló ferðalögum, hjálpað þér að skipuleggja leiðina og bókað flug, gistingu og afþreyingu. Margir ferðaráðgjafar okkar hafa sjálfir ferðast einir og eru alltaf til í að deila eigin reynslu og bestu ráðunum.
Það er enginn einn besti áfangastaðurinn fyrir sóló ferðalag. Það fer allt eftir því hvers konar upplifun þú ert að leita að. Suðaustur-Asía er vinsæl meðal bakpokaferðalanga og þar er auðvelt að hitta aðra ferðalanga. Ástralía og Nýja-Sjáland henta vel ef þú leitar að frelsi, ævintýrum og stórbrotinni náttúru. Japan er frábær kostur fyrir þau sem elska menningu, líflegar borgir og auðveldar samgöngur, á meðan Suður-Afríka býður upp á einstaka blöndu af safarí, útivist, ströndum og surfi.
Segðu þeim ferðaplanið frá A-Ö. Sýndu þeim að þú sért búin/n að hugsa fyrir öllu og að þetta sé ekki bara hvatvís ákvörðun. Sannaðu fyrir þeim að þú sért nógu þroskuð/aður til þess að takast á við þetta ævintýri. Einnig er hægt að taka þau með á ferðafund hjá okkur. Með þessu vita þau hvað er framundan. Auðvitað þarf svo ekki að upplýsa foreldra um nákvæmlega allt sem gerðist í ferðinni.
Það getur verið á köflum, en að ferðast ein/n þýðir ekki að þú sért ein/n allan tímann. Með því að gista á hostelum, taka þátt í skipulögðum ferðum, sækja námskeið eða prófa staðbundna afþreyingu er auðvelt að kynnast nýju fólki. Reyndar finnst mörgum auðveldara að hefja samtöl og eignast ferðafélaga þegar þeir ferðast einir.
Ef þig langar í frelsið sem fylgir sóló ferðalögum en vilt líka félagsskap á leiðinni, geturðu tekið þátt í hópferð og deilt ævintýrinu með öðrum forvitnum ferðalöngum.
Veldu gistingu sem er félagsleg, eins og hostel með góðar umsagnir, og leitaðu að viðburðum sem draga fólk saman. Gönguferðir, surf-námskeið, matreiðslunámskeið, köfunarnámskeið og hópferðir eru frábærar leiðir til að hitta aðra ferðalanga.
Þú getur líka skráð þig í hópferð, hvort sem það er fyrir alla ferðina eða bara hluta hennar áður en þú heldur áfram ævintýrinu þínu á eigin vegum.
Á mörgum stöðum er það öruggt, en það borgar sig að undirbúa sig aðeins betur. Kynntu þér siði og reglur áfangastaðarins og svæðanna sem þú ætlar að heimsækja, veldu gistingu af kostgæfni og hugsaðu út í hvernig þú ætlar að ferðast á milli staða, sérstaklega eftir myrkur. Treystu innsæinu þínu og ekki hika við að breyta áætlunum ef eitthvað virðist ekki rétt.
Ef þú ert óörugg með að ferðast ein, þá geturðu alltaf haft samband við ferðaráðgjafa okkar. Við hjálpum þér að finna áfangastað sem hentar sóló ferðalögum og skipuleggja ferð sem þú getur notið með sjálfstrausti og ró.
Fyrst þarftu að ákveða hvert þú vilt fara (eða hvaða staði), hugsa út í hversu lengi þú vilt vera á ferðinni og hvað þú vilt sjá og gera. Kannski hefur þig lengi dreymt um ákveðið land, eða vilt skipuleggja ferðina í kringum áhugamál eins og köfun, surf eða gönguferðir.
Þegar þú ert komin/n með grunninn að ferðinni geturðu farið að skoða flug, gistingu, samgöngur og afþreyingu. Þú þarft ekki að skipuleggja hverja mínútu fyrirfram, en það er sniðugt að hafa a.m.k. fyrsta hluta ferðarinnar kláran áður en þú leggur af stað.
Ef þér finnst þetta yfirþyrmandi að gera ein/n, þá getum við hjálpað þér að setja saman ferðaplan sem passar þínum ferðastíl.
Þú þarft ekki að stökkva beint í að verða sóló bakpokaferðalangur á einni nóttu. Byrjaðu á að venja þig við að vera ein/n: Farðu út að borða, heimsæktu safn, skoðaðu aðra borg eða taktu helgarferð ein/n.
Þú getur líka prófað að fara í hópferð. Í slíkri ferð ferðast þú með litlum hópi ævintýraþyrstra einstaklinga, þar sem skipulagðir viðburðir og frítími haldast í hendur. Þetta er frábær leið til að venjast sóló ferðalögum, byggja upp sjálfstraust og læra að njóta þess að ferðast sjálf/ur.
Sýnir 4 / 8 niðurstöður
Þú ættir að fara í sóló ferðalag ef þú...
...vilt frelsi til að gera hlutina á þinn hátt
Engar málamiðlanir, ekkert að bíða eftir öðrum. Þú velur hvert þú ferð, hvað þú gerir og hvernig þú eyðir deginum, alla daga.
...vilt ögra sjálfri/-um þér og vaxa
Stígðu út fyrir þægindarammann, gerðu þig sjálfstæðari og fáðu alvöru sjálfstraust með því að kanna heiminn á eigin vegum.
...vilt kynnast fólki alls staðar að úr heiminum
Að ferðast ein/n gerir þig opnari fyrir nýjum kynnum. Hvort sem það er spjall á hostelum eða spontant ævintýri, þá hittir þú fólk frá öllum heimshornum.








































































