FERÐIR TIL SRI LANKA

Ein eyja og óteljandi ævintýri.
Frá þokukenndum fjöllum og safaríferðum yfir í gullnar strendur og epíska surfstaði. Sri Lanka er stútfull af ógleymanlegum ævintýrum.




Langar þig í smá af öllu? Farðu til Sri Lanka
Sri Lanka býður upp á ótrúlegt úrval upplifana á tiltölulega litlu svæði. Hér finnur þú frumskóga, þjóðgarða, forn hof, nýlendubæi, teplöntur og nokkrar af fallegustu ströndum svæðisins. Það er alltaf eitthvað nýtt að uppgötva!
Það sem gerir Sri Lanka sérstaklega einstakt er hversu auðvelt er að sameina ólíkar upplifanir í einni ferð. Einn daginn geturðu gengið um græn fjöllin í kringum Ella, þann næsta lært að surfa í Arugam Bay, slakað á með jóga við ströndina eða farið í safarí í leit að villtum fílum og öðrum dýrum. Á leiðinni kynnistu vingjarnlegu heimafólki, litríkum mörkuðum og bragðmikilli matarmenningu sem á skilið mun meiri athygli en hún fær oft.
Ferðaráðgjafar okkar hafa sjálfir ferðast um Sri Lanka og deila gjarnan sínum bestu ráðum. Hvort sem þú vilt heimsækja helstu kennileiti eða uppgötva staði sem sjaldan rata í hefðbundnar leiðsögubækur, hjálpum við þér að setja saman ferð sem hentar þínum ferðastíl.

Must-do: Fílaskoðun
Þarftu aðstoð við að skipuleggja ferð til Sri Lanka?
Ferðasérfræðingarnir okkar hjálpa þér að móta ferðahugmyndina, velja áfangastaðina og skipuleggja ferð sem hentar þér.
Náttúran er stærsta aðdráttarafl Sri Lanka
Það tekur ekki langan tíma að skilja af hverju svo margir falla fyrir Sri Lanka. Á einu augnabliki ertu umkringd/ur grónum fjöllum og teökrum, á því næsta stendur þú á pálmaströnd með brim í eyrunum og sand á milli tánna.
Í kringum Ella og Nuwara Eliya liggja grænar hlíðar eins langt og augað eygir, þaktar teplantekrum, fossum og útsýnisstöðum sem fá mann til að taka aðeins of margar myndir. Á suður- og austurströndinni taka við surfstrendur, faldir vogar og afslappað strandlíf sem auðvelt er að festast í.
Og svo eru það dýrin. Sri Lanka er einn besti staðurinn í Asíu til að fara í safarí og sjá villt dýralíf. Í Yala gætirðu komið auga á hlébarða, í Minneriya safnast hundruð villtra fíla saman á ákveðnum tímum ársins og í Udawalawe eru líkurnar á fílasýnum einstaklega góðar.
Það besta? Þú þarft ekki að velja á milli fjalla, strandar eða safarí. Á Sri Lanka geturðu upplifað allt í einni og sömu ferðinni. Það er einmitt það sem gerir eyjuna svona sérstaka.

Sigiriya Lion Rock
Af hverju að velja KILROY fyrir næstu ferðina þína
30+ ára reynsla
Yfir 30 ára reynsla, sérþekking og traustir samstarfsaðilar okkar um allan heim gera þér kleift að ferðast með öryggi og sjálfstrausti.
Persónuleg ferðaráðgjöf
Ferðaráðgjafi sem kynnist þínum óskum, draumum og markmiðum. Frá fyrstu hugmynd að heimkomu erum við með þér í hverju skrefi á leiðinni.
24/7 neyðarsími
Ef eitthvað óvænt kemur upp á er neyðarsíminn okkar opinn allan sólarhringinn. Ferðasérfræðingar KILROY eru til staðar fyrir þig, hvar og hvenær sem er.
KILROY leiðin
Bestu ferðirnar enda ekki þegar þú kemur heim. Þær lifa áfram í upplifunum, sögum og minningum sem fylgja þér lengi eftir að ferðinni lýkur.
Hvað er hægt að gera á Sri Lanka?
Sumar upplifanir á Sri Lanka enda á öllum bucket listum. Og þegar þú kemur þangað skilurðu af hverju.
Lestin, klettarnir og ævintýrin sem þú manst eftir
Lestarferðin milli Kandy og Ella er ein þeirra. Vagnarnir liðast í gegnum græna dali, þokukennd fjöll og endalausar teakrur, á meðan heimamenn stíga inn og út á litlum stöðvum á leiðinni. Náðu þér í sæti við opinn glugga, hallaðu þér aftur og njóttu útsýnisins. Þetta er auðveldlega ein fallegasta lestarferð sem þú munt fara í.
Í Ella halda ævintýrin áfram. Gakktu upp á Little Adam's Peak fyrir stórbrotið útsýni eða taktu aðeins meira krefjandi göngu að Ella Rock. Hvort sem þú velur, bíða grænar hlíðar, fjöll og útsýni sem gera svitann vel þess virði.
Svo er það Sigiriya. Risavaxinn klettur sem rís upp úr frumskóginum og er eitt þekktasta kennileiti Sri Lanka. Gangan upp á toppinn tekur ekki langan tíma, en útsýnið yfir frumskóga og sveitir landsins lætur þig vilja staldra aðeins lengur við.
Fyrir þá sem vilja kafa dýpra í sögu og menningu landsins eru Kandy, Temple of the Tooth, Dambulla Cave Temple og forna borgin Polonnaruwa staðir sem vert er að gefa sér tíma fyrir.
En eins og svo oft eru það ekki bara stóru kennileitin sem standa upp úr. Stundum eru það litlu augnablikin sem sitja lengst í minningunni: máltíð á fjölskyldureknum veitingastað, líflegur markaður eða óvænt stopp í þorpi sem var aldrei á ferðaáætluninni.
Surf, strendur og safarí
Sri Lanka er einn af þessum stöðum þar sem þú getur vaknað á surfbretti, farið í safarí um hádegi og endað daginn á strönd með ferskan kókoshnetudrykk í hönd.
Á austurströndinni er Arugam Bay meðal vinsælustu surfstaða Asíu. Hingað koma bæði byrjendur og reynsluboltar fyrir góðar öldur, afslappað andrúmsloft og strandlíf sem auðvelt er að venjast. Margir blanda surfi og jóga saman, sem er fullkomið ef markmiðið er að hægja aðeins á og njóta augnabliksins.
Ef hafið kallar meira á þig en öldurnar, þá býður suðurströndin upp á frábært snorkl og möguleikann á að synda við sjávarskjaldbökur. Frá Mirissa fara einnig bátsferðir þar sem hægt er að sjá hvali á réttu árstíma.
Það besta við Sri Lanka er þó kannski hversu auðvelt er að víkja af hefðbundnu leiðinni. Finna afskekkta strönd. Drekka te þar sem það er ræktað. Stoppa á litlum stað sem engin ferðahandbók nefndi.
Oft eru það einmitt þessar óvæntu uppgötvanir sem breyta góðri ferð í ógleymanlegt ævintýri.

Sri Lanka býður upp á frábært surf - og margt fleira
Smakkaðu þig í gegnum Sri Lanka
Sri Lanka er sannkölluð paradís fyrir matgæðinga. Hér bíða þín ilmandi karrýréttir, ferskir sjávarréttir, suðrænir ávextir og ríkuleg krydd eins og kanill, kardimommur og kókos sem setja svip sinn á matargerð landsins.
Smakkaðu hefðbundið rice and curry, sem tekur á sig ólíkar myndir eftir landsvæðum, eða byrjaðu daginn á hoppers, skálalöguðum pönnukökum úr gerjuðu hrísgrjónadeigi. Við strendurnar eru nýveiddir sjávarréttir í aðalhlutverki, á meðan hálöndin eru þekkt fyrir teframleiðslu í heimsklassa.
Eftirminnilegustu máltíðirnar finnast þó oft ekki á fínustu veitingastöðunum, heldur á litlum staðbundnum kaffihúsum, fjölskyldureknum veitingastöðum og líflegum mörkuðum þar sem uppskriftir og matarmenning hafa gengið í arf kynslóð fram af kynslóð.

Finndu ferska ávexti og ljúffengan mat á mörkuðum
Hvenær er best að ferðast til Sri Lanka?
Sri Lanka er hægt að heimsækja allt árið, en veðrið er mismunandi eftir því hvaða hluta landsins þú ætlar að skoða.
Ef þú ert að ferðast til suður- og vesturstrandarinnar, auk fjalllendisins í kringum Ella, Kandy og Nuwara Eliya, eru bestu aðstæður yfirleitt frá desember til apríl þegar veðrið er þurrt og sólríkt.
Ef ferðaplönin þín innihalda austurströndina, þar á meðal Arugam Bay og Trincomalee, þá er tímabilið frá maí til september oft best.
Einn af kostunum við að ferðast um Sri Lanka er að monsún regntímabilin hafa áhrif á mismunandi svæði á mismunandi tímum. Þess vegna er yfirleitt alltaf hægt að finna sól og gott veður einhvers staðar á eyjunni, sama hvenær þú ferð!

Hvenær sem þú ferð - ævintýrið bíður
Algengar spurningar
Allar spurningarnar þínar um Sri Lanka á einum stað!
Við mælum með að þú verðir að minnsta kosti 10-14 daga. Ef þú hefur tvær til þrjár vikur, þá hefurðu nægan tíma til að upplifa fjalllendi, villt dýr, menningarstaði og strendur á afslappaðari hraða.
Við mælum alltaf með að skoða nýjustu reglur um vegabréfsáritanir áður en þú heldur af stað. Góðar upplýsingar um vegabréfsáritanir eru á vef utanríkisráðuneytisins.
Þú getur heimsótt Sri Lanka allt árið, það fer eftir því hvar þú ferðast. Suður- og vesturhlutinn er yfirleitt bestur frá desember til apríl, en austurströndin er oft best frá maí til september.
Já klárlega. Margir ferðalangar telja þetta vera eina af fallegustu lestaferðum í heiminum og einn af hápunktum ferðar til Sri Lanka. En það eru líka margar aðrar fallegar lestaferðir í Sri Lanka sem þú gætir viljað prófa.
Þú gætir mætt fílum, hlébörðum, krókódílum, vatnabúffölum, dádýrum og ótrúlega fjölbreyttu fuglalífi.
Já, það er auðvelt að sameina Sri Lanka við aðra áfangastaði í Asíu. Vinsælustu valkostirnir eru Maldíveyjar eða Indland, sem eru auðveld í aðgengi og gera lengri ferðina enn betri. Talaðu við ferðaráðgjafa okkar ef þú vilt sameina Sri Lanka við aðra áfangastaði. Við hjálpum þér að finna bestu lausnina!
Algjörlega. Það er tiltölulega auðvelt að ferðast um Sri Lanka og landið býður upp á frábæra blöndu af ævintýrum, menningu og afslöppun.
Sýnir 4 / 7 niðurstöður
Upplifðu Sri Lanka í hópferð
Vertu tilbúin/n fyrir ógleymanlegt ævintýri með litlum hópi ferðalanga á þínum aldri. Í Tripmates hópferðum okkar um Sri Lanka og Maldíveyjar upplifir þú allt frá stórbrotinni náttúru og suðrænum ströndum til ótrúlegrar staðbundinnar menningar. Og myndar vináttu sem getur varað út ævina!
Við sjáum um skipulagið og alla praktísku hlutina, þannig að þú getur einbeitt þér að því sem skiptir mestu máli: að kanna, tengjast og skapa minningar sem þú munt tala um langt eftir að ferðinni lýkur. Allt sem þú þarft að gera er að pakka í töskuna og vera tilbúin/n fyrir ævintýri lífsins.

Ferðalangar í Tripmates hópferð í Sri Lanka














