FERÐIR TIL SUÐUR-AFRÍKU

útsýni yfir Coffee Bay í Suður-Afríku
Um áfangastaðinn

Þar sem náttúra, dýralíf og menning mætast

Safarí, dýralíf, líflegar borgir og stórbrotin náttúra. Suður-Afríka er draumaáfangastaður fyrir ævintýragjarna ferðalanga.

Sebrahestar við vatnið í Suður-Afríku
Nashyrningar á savannunni í Suður-Afríku
Antílópur á veginum í Suður-Afríku
Stelpa í jeppa á safari í Suður-Afríku

Fullkominn áfangastaður fyrir ævintýrafólk

Suður-Afríka er stútfull af ógleymanlegum upplifunum. Hér geturðu farið í safarí í leit að „stóru fimm“, surf-að á heimsklassa öldum, gengið um stórbrotið fjallalandslag og kynnst líflegri menningu landsins.

Við hjá KILROY höfum sjálf ferðast um Suður-Afríku, allt frá Höfðaborg og Garden Route til safarísvæða, strandparadísa og falinna gimsteina utan alfaraleiða. Hvort sem þú ert að leita að adrenalíni, villtu dýralífi eða kynnast heimafólki, getum við hjálpað þér að finna upplifanir sem standa upp úr.

Og ef þú spyrð okkur? Þá er safarí í Kruger þjóðgarðinum upplifun sem enginn ætti að missa af!

Safari í Kruger þjóðgarðinum, Suður-Afríku

Safari í Kruger þjóðgarðinum, Suður-Afríku

Þarftu aðstoð við að skipuleggja ferð til Suður-Afríku?

Ferðasérfræðingarnir okkar hjálpa þér að móta ferðahugmyndina, velja áfangastaðina og skipuleggja ferð sem hentar þér.

Kruger þjóðgarðurinn er ógleymanleg safaríupplifun

Kruger-þjóðgarðurinn er einn frægasti safaríáfangastaður heims og algjört skyldustopp í Suður-Afríku. Hér geturðu séð „stóru fimm“ Afríku, ljón, fíla, nashyrninga, buffalóa og hlébarða, í sínu náttúrulega umhverfi. Hvort sem þú velur jeppasafarí, göngusafarí eða næturferð bíður þín ógleymanleg upplifun í einu fjölbreyttasta dýralífi heimsálfunnar.

Fílar í Kruger þjóðgarðinum, Suður-Afríku

Fílar í Kruger þjóðgarðinum, Suður-Afríku

Af hverju að velja KILROY fyrir næstu ferðina þína

30+ ára reynsla

Yfir 30 ára reynsla, sérþekking og traustir samstarfsaðilar okkar um allan heim gera þér kleift að ferðast með öryggi og sjálfstrausti.

Persónuleg ferðaráðgjöf

Ferðaráðgjafi sem kynnist þínum óskum, draumum og markmiðum. Frá fyrstu hugmynd að heimkomu erum við með þér í hverju skrefi á leiðinni.

24/7 neyðarsími

Ef eitthvað óvænt kemur upp á er neyðarsíminn okkar opinn allan sólarhringinn. Ferðasérfræðingar KILROY eru til staðar fyrir þig, hvar og hvenær sem er.

KILROY leiðin

Bestu ferðirnar enda ekki þegar þú kemur heim. Þær lifa áfram í upplifunum, sögum og minningum sem fylgja þér lengi eftir að ferðinni lýkur.

Besti ferðatíminn til Suður-Afríku

Suður-Afríka er áfangastaður sem hægt er að heimsækja allt árið um kring. Loftslagið er mjög mismunandi eftir svæðum og dýralífið breytist líka eftir árstíðum, þannig að besta ferðatíminn fer algjörlega eftir áhuga þínum og því sem þú vilt upplifa!

Sumar (nóvember til mars)

Rétti tíminn fyrir sól og sjósund í Cape Town og Durban. Einnig tilvalið til að skoða vínekrur og Garden Route.

Vor (september til nóvember)

Þessi tími er frábær til að sjá blómstrandi gróður og fylgjast með hvölum við ströndina!

Haust/Vetur (maí til september)

Þetta er besti tíminn fyrir safarí, þegar dýrin safnast saman við vatnsbólin. Einnig besta leiðin til að sleppa við mikinn hita og raka í norðurhluta landsins.

Við mælum almennt með að forðast regntímann (apríl til maí) á sumum svæðum. En það er alltaf hægt að setja saman góða ferð, sama hvaða árstími er, og við hjálpum þér að finna aðrar leiðir!

Table Mountain, Suður-Afríku

Table Mountain, Suður-Afríku

FAQ

Algengar spurningar

Fáðu svör við algengustu spurningunum um ferðalög til Suður-Afríku.

Það þarf alls ekki að kosta mikið að ferðast um Suður-Afríku, sérstaklega ef þú skipuleggur ferðina með fjárhagsáætlun í huga. Hjá KILROY hjálpum við þér að fá sem mest út úr ferðabudgetinu, hvort sem það snýst um safarí, samgöngur eða gistingu.

Við vinnum með traustum samstarfsaðilum sem bjóða upp á hagkvæmar safaríferðir í og við Kruger þjóðgarðinn. Þú getur valið á milli einfaldra tjaldbúða eða þægilegri gistimöguleika og upplifað stórbrotið dýralíf án þess að sprengja ferðasjóðinn. Auk þess færðu tækifæri til að komast út fyrir hefðbundnar ferðamannaslóðir og upplifa safaríið á persónulegri hátt.

Já, almennt er öruggt að ferðast til Suður-Afríku. Eins og annars staðar er mikilvægt að sýna skynsemi, fara eftir staðbundnum ráðleggingum og kynna sér ferðaráðleggingar áður en lagt er af stað. Með góðum undirbúningi bíða þín ógleymanleg ævintýri.

Suður-Afríka er draumaáfangastaður fyrir námspásuferð. Farðu á surfcamp, skelltu þér í safarí eða taktu þátt í sjálfboðastarfi með börnum eða dýrum. Hér geturðu sameinað ævintýri, nýja reynslu og ferð sem hefur raunveruleg áhrif.