FERÐIR TIL SUÐUR-AMERÍKU
Sjá allar ferðir
Af hverju að heimsækja Suður-Ameríku?
Kannaðu andstæður Suður-Ameríku, magnaða náttúru, bucket lista ævintýri og ógleymanleg ferðalög.
Ævintýri og menning mætast í Suður-Ameríku
Suður-Ameríka er gerð fyrir ferðalanga sem vilja upplifa eitthvað öðruvísi. Hér geturðu farið frá suðrænum ströndum og litríkum borgum yfir í snjóþakta tinda Andesfjalla, saltflatir og eyðimerkur sem virðast úr öðrum heimi. Á hverjum degi bíða ný ævintýri, óvæntar upplifanir og ný sjónarhorn.
En Suður-Ameríka snýst ekki bara um magnaða náttúru. Heimsálfan iðar af lífi, menningu og karakter. Dansaðu fram á nótt í líflegum borgum, smakkaðu staðbundna rétti og kynnstu fólki sem tekur á móti þér með bros á vör.
Hvort sem draumurinn er að ganga um fornar Inkaslóðir, sigla um Galápagoseyjar, skoða Patagóníu eða einfaldlega njóta ferðalagsins á eigin hraða, þá finnurðu það hér. Suður-Ameríka er einn af þeim stöðum sem þarf að upplifa til að skilja.

Kannaðu stórbrotna náttúru í Patagonia
Áfangastaðir í Suður-Ameríku
Uppgötvaðu fjölbreytt svæði Suður-Ameríku
Af hverju að velja KILROY fyrir næstu ferðina þína
30+ ára reynsla
Yfir 30 ára reynsla, sérþekking og traustir samstarfsaðilar okkar um allan heim gera þér kleift að ferðast með öryggi og sjálfstrausti.
Persónuleg ferðaráðgjöf
Ferðaráðgjafi sem kynnist þínum óskum, draumum og markmiðum. Frá fyrstu hugmynd að heimkomu erum við með þér í hverju skrefi á leiðinni.
24/7 neyðarsími
Ef eitthvað óvænt kemur upp á er neyðarsíminn okkar opinn allan sólarhringinn. Ferðasérfræðingar KILROY eru til staðar fyrir þig, hvar og hvenær sem er.
KILROY leiðin
Bestu ferðirnar enda ekki þegar þú kemur heim. Þær lifa áfram í upplifunum, sögum og minningum sem fylgja þér lengi eftir að ferðinni lýkur.
Þarftu aðstoð við að skipuleggja ferð til Suður-Ameríku?
Ferðasérfræðingarnir okkar hjálpa þér að móta ferðahugmyndina, velja áfangastaðina og skipuleggja ferð sem hentar þér.
Fyrir ferðalanga sem elska útivist
Suður-Ameríka er einn af frægustu ævintýraáfangastöðum heims. Gakktu að Machu Picchu, farðu í gönguferð um Patagonia, skoðaðu Amazon á bát eða uppgötvaðu afskekkt fjallaþorp hátt í Andesfjöllum. Þú getur farið í surf í Brasilíu, sandbretti í eyðimörkinni í Perú, skoðað dýralíf á Galápagos-eyjum eða farið á kajak meðal jökla í suðurhluta Chile. Sama hvernig þitt ævintýri lítur út þá finnur þú það hér.

Ganga til Machu Picchu í Perú
Forn menning og nútímaborgir
Í Suður-Ameríku mætast saga, menning og nútími á einstakan hátt. Frá fornum Inkarústum í Perú og litríkum nýlendubæjum í Ekvador til hefða frumbyggja í Bólivíu og líflegs borgarlífs í Buenos Aires og Rio de Janeiro. Hver áfangastaður segir sína eigin sögu og býður upp á nýjar upplifanir handan við hvert horn.

Selaron tröppurnar í Rio de Janeiro, Brasilíu
Algengar spurningar
Ert þú að skipuleggja ferð til Suður-Ameríku? Hér finnur þú svör við algengustu spurningum frá ferðaráðgjöfum okkar.
Það er engin tilviljun að Suður-Ameríka sé í uppáhaldi hjá bakpokaferðalöngum um allan heim. Hér sameinast ævintýri, menning, mögnuð náttúra og hagkvæm ferðalög. Hvort sem þú ert að elta sólarupprás yfir Machu Picchu, skoða Amazon-regnskóginn eða kynnast lífinu í líflegum stórborgum, þá bíða nýjar upplifanir handan við hvert horn. Ferðaleiðirnar eru vel þekktar og auðvelt að hitta aðra ferðalanga á leiðinni, sem gerir Suður-Ameríku að fullkomnum áfangastað fyrir bakpokaferðalag.
Suður-Ameríka er gríðarlega stór og lengd ferðarinnar fer eftir því hvað þú vilt sjá. Við mælum með að þú gefir þér að minnsta kosti 2-3 vikur fyrir eitt land, en 1-4 mánuðir gefa þér tækifæri til að skoða nokkur lönd og ferðast á rólegri hraða. Margir ferðalangar eyða mánuðum í að kanna heimsálfuna og finna samt staði sem þeir vilja snúa aftur til.
Perú, Argentína, Chile og Ekvador eru frábærir upphafsstaðir til að kynnast Suður-Ameríku. Þar bíða heimsfrægir áfangastaðir, fjölbreytt ævintýri og auðvelt ferðalag um ótrúlega fjölbreytt lönd. Ef þú veist ekki hvar þú átt að byrja, hjálpum við þér að finna leiðina og skipuleggja ferð sem passar fullkomlega við þína ferðadrauma.
Hvort sem þú vilt ferðast á eigin vegum eða með öðrum ferðalöngum, þá eru möguleikarnir endalausir. Flestir ferðalangar blanda saman rútuferðum, innanlandsflugi og skipulögðum ferðum til að fá sem mest út úr ferðinni. Við hjálpum þér að finna réttu leiðina út frá tíma, fjárhag og þeim ævintýrum sem eru efst á óskalistanum.
Það er ekki til einn besti tíminn til að ferðast til Suður-Ameríku, þar sem árstíðir eru ólíkar eftir löndum. Til dæmis er Patagónía best yfir sumarmánuði suðurhvels (nóvember til mars), en áfangastaðir eins og Perú og Bólivía eru oft bestir á þurrkatímabilinu frá maí til október. Besti ferðatíminn fer eftir því hvaða lönd og upplifanir þú vilt fá.
Ekki endilega. Á flestum vinsælum áfangastöðum kemstu langt með grunnspænsku eða ensku. Nokkur spænsk orð og setningar geta þó gert ferðina enn skemmtilegri og hjálpað þér að tengjast menningunni og heimafólkinu. Ef þú vilt bæta tungumálakunnáttuna getum við einnig hjálpað þér að finna spænskunámskeið sem hluta af ferðinni.
Frá Machu Picchu og Patagóníu til Galápagoseyja og Amazon-regnskógarins, Suður-Ameríka er full af áfangastöðum sem rata á bucket listann. Það sem gerir heimsálfuna svo sérstaka er hversu ólík löndin eru og hversu margar ógleymanlegar upplifanir bíða handan við næsta landamæri.
Sýnir 4 / 7 niðurstöður





















