SEOUL

Stelpur við Gyeongbokgung-höllina

Heimili K-pop, K-beauty og kóreskrar menningar

Seoul er borg sem sameinar framtíðarlegt borgarlíf, ríka menningu og ótrúlegan mat. Hér geturðu skoðað fornar hallir, ráfað um lífleg hverfi, smakkað frábæran götumat og kafað inn í heim K-popps, K-beauty og kóreskra hefða.

Hvort sem þú ferðast einn, með vinum eða sem hluti af stærra Asíuævintýri, þá hefur Seoul eitthvað fyrir þig. Til að ná að upplifa borgina almennilega mælum við með að verja þar að minnsta kosti 4 til 5 dögum. Það er ferð sem situr lengi í minningunni eftir að heim er komið.

Göturnar í Seúl
Gyeongbokgung-höllin
Fjöllin mynda bakgrunninn í Seúl
Upplifðu borgina á göngu
Njóttu karaoke-senunnar
Kóreskur matur
Kirsemmublóm í Seúl
Hópferð til Seúl

Göturnar í Seúl

Gyeongbokgung-höllin

Fjöllin mynda bakgrunninn í Seúl

Upplifðu borgina á göngu

Njóttu karaoke-senunnar

Kóreskur matur

Kirsemmublóm í Seúl

Hópferð til Seúl

Ein borg, endalaus ævintýri

Seoul er borg sem lætur þig aldrei leiðast. Á einni stundu ertu að rölta um þröng stræti með hefðbundnum hanok-húsum og á þeirri næstu komin í miðju neonskínandi stórborgar sem virðist vera skrefi á undan framtíðinni. Byrjaðu daginn í Bukchon Hanok Village, nældu þér í street food á Gwangjang-markaðnum og endaðu kvöldið í Hongdae eða Gangnam þar sem borgin lifnar virkilega við. Hvort sem þú ert að elta bestu matarsenuna, kafa ofan í K-menningu, versla fram á kvöld eða einfaldlega taka inn stemninguna, þá er Seoul ein af þeim borgum sem þú vilt upplifa aftur og aftur.

Götumatur í Seoul

Götumatur í Seoul

Verslun, húðvörur og minjagripir

Suður-Kórea er paradís fyrir þá sem elska að versla. Frá glæsilegum verslunarmiðstöðvum og trendsettandi hverfum eins og Myeongdong og Hongdae til hefðbundinna markaða fullra af einstökum minjagripum, hér er eitthvað fyrir alla. Landið er sérstaklega þekkt fyrir K-beauty og húðvörur, svo þetta er frábær staður til að birgja sig upp af rakakremum, andlitsgrímum og öðrum vinsælum vörum. Ef þú ert að leita að minjagripum skaltu kíkja á handverk, kóreskt te, keramik eða smáhluti innblásna af K-pop og kóreskri menningu. Það er auðvelt að fylla ferðatöskuna í Suður-Kóreu.

K-beauty í Seoul

K-beauty í Seoul

Fjórar árstíðir, fjórar ólíkar upplifanir

Vorið og haustið eru yfirleitt talin besti tíminn til að heimsækja Seoul, með notalegu veðri, kirsuberjablómum á vorin og litríkum haustlitum síðar á árinu. Sumarið er hlýtt og líflegt, fullt af hátíðum og viðburðum, á meðan veturinn býður upp á jólaljós, færri ferðamenn og auðvelt aðgengi að skíðasvæðum nálægt borginni. Hvenær sem þú ferð færðu að upplifa einstaka blöndu af nútímamenningu, hefðum og borgarlífi sem gerir Seoul að spennandi áfangastað allt árið um kring.

Kirsuberjablóm í Seoul

Kirsuberjablóm í Seoul

Bættu Seoul við Asíuferðina þína

Nýttu flugið til fulls og bættu nokkrum ógleymanlegum dögum í Seoul við Asíuferðina þína. Seoul er frábært stopp ef þú ert á ferðinni milli Japans, Suðaustur-Asíu, Ástralíu eða Nýja-Sjálands. Þökk sé góðum flugsamgöngum er auðvelt að bæta við 3-5 daga í höfuðborg Suður-Kóreu áður en þú heldur áfram. Notaðu tímann til að skoða matarmarkaði, verslunarhverfi, menningarleg kennileiti og líflegt næturlíf áður en þú heldur á næsta áfangastað. Ef þú ert að plana stærri Asíuferð getum við hjálpað þér að setja saman ferðaleið sem sameinar Seoul við staði eins og Tokyo, Osaka, Bangkok, Hanoi eða Balí, allt með hagkvæmni og einföldu ferðaskipulagi.

Vaktaskipti við Gyeongbokgung-höllina

Vaktaskipti við Gyeongbokgung-höllina

Af hverju að velja KILROY fyrir næstu ferðina þína

30+ ára reynsla

Yfir 30 ára reynsla, sérþekking og traustir samstarfsaðilar okkar um allan heim gera þér kleift að ferðast með öryggi og sjálfstrausti.

Persónuleg ferðaráðgjöf

Ferðaráðgjafi sem kynnist þínum óskum, draumum og markmiðum. Frá fyrstu hugmynd að heimkomu erum við með þér í hverju skrefi á leiðinni.

24/7 neyðarsími

Ef eitthvað óvænt kemur upp á er neyðarsíminn okkar opinn allan sólarhringinn. Ferðasérfræðingar KILROY eru til staðar fyrir þig, hvar og hvenær sem er.

KILROY leiðin

Bestu ferðirnar enda ekki þegar þú kemur heim. Þær lifa áfram í upplifunum, sögum og minningum sem fylgja þér lengi eftir að ferðinni lýkur.

Þarftu aðstoð við að skipuleggja ferð til Suður-Kóreu?

Ferðasérfræðingarnir okkar hjálpa þér að móta ferðahugmyndina, velja áfangastaðina og skipuleggja ferð sem hentar þér.