FERÐIR TIL TANSANÍU

Villt dýralíf á sléttunum í Tansaníu
Um áfangastaðinn

Frá safarí yfir á ströndina í einni ferð

Upplifðu dýralífið í Serengeti, klifraðu á Kilimanjaro eða slakaðu á ströndum Zanzibar. Tansanía sameinar ævintýri og afslöppun í einu ferðalagi.

Slakaðu á ströndunum á Zanzibar
Kilimanjaro ganga
Upplifðu útilegu í Tansaníu
Safariakstur í Serengeti

Frá safaríævintýrum í Serengeti til stranda Zanzibar

Tansanía er draumaáfangastaður fyrir ævintýragjarna ferðalanga. Hér sameinast stórbrotin náttúra, einstakt dýralíf og ógleymanlegar upplifanir. Farðu í safarí um víðáttur Serengeti, skoðaðu Ngorongoro-gíginn og fylgstu með dýrum í sínu náttúrulega umhverfi. Fyrir þau sem leita að enn meiri áskorun bíður Kilimanjaro, hæsti tindur Afríku.

Eftir ævintýrin á meginlandinu er tilvalið að fara til Zanzibar og slaka á, þar sem hvítar sandstrendur, pálmatré og tær sjór taka á móti þér. Hvort sem þú ert að eltast við villt dýr, klífa fjöll eða njóta strandlífsins, þá hefur Tansanía allt sem þarf fyrir ógleymanlegt ferðalag.

Sjáðu fílana í Serengeti

Sjáðu fílana í Serengeti

Afþreying

Hvað er hægt að gera í Tansaníu?

Safarí, fjallganga eða bara afslöppun? Tansanía hefur þetta allt.

Þarftu aðstoð við að skipuleggja ferð til Botsvana?

Ferðasérfræðingarnir okkar hjálpa þér að móta ferðahugmyndina, velja áfangastaðina og skipuleggja ferð sem hentar þér.

Sérsníddu draumaferðina þína til Tansaníu

Serengeti: Í hjarta safaríævintýrsins

Serengeti er einn þekktasti þjóðgarður heims og draumaáfangastaður fyrir alla sem vilja upplifa afrískt dýralíf. Hér geturðu séð „The Big Five“ í sínu náttúrulega umhverfi og fylgst með hinum mögnuðu árlegu farflutningum gnýja og sebrahesta, einni áhrifamestu náttúrusýningu heims. 

Kilimanjaro: Hæsti tindur Afríku

Langar þig í alvöru áskorun? Þá er Kilimanjaro eitthvað fyrir þig. Fjallið rís í 5.895 metra hæð og býður upp á ógleymanlegt ferðalag í gegnum ólíkar loftslagsbelti, allt frá gróskumiklum skógum upp í snjóþakta tinda. 

Zanzibar: Krydd, menning og paradísarstrendur

Zanzibar er fullkominn staður til að slaka á eftir safaríævintýri. Þar bíða hvítar sandstrendur, tærblár sjór og rík menning. Röltu um sögufrægu göturnar í Stone Town, heimsæktu kryddplantekrur eða skelltu þér í snorkl eða köfun í heitu Indlandshafinu. 

Lake Manyara: Falinn gimsteinn

Lake Manyara þjóðgarðurinn er kannski minna þekktur en aðrir garðar Tansaníu, en hann stendur sannarlega fyrir sínu. Garðurinn er þekktur fyrir tréklifrandi ljón, stórar flamingóhjarðir og fjölbreytt fuglalíf, sem gerir hann að frábærum viðkomustað á safaríferð um norðurhluta landsins.

Par að kanna á safariferð

Par að kanna á safariferð

Af hverju að velja KILROY fyrir næstu ferðina þína

30+ ára reynsla

Yfir 30 ára reynsla, sérþekking og traustir samstarfsaðilar okkar um allan heim gera þér kleift að ferðast með öryggi og sjálfstrausti.

Persónuleg ferðaráðgjöf

Ferðaráðgjafi sem kynnist þínum óskum, draumum og markmiðum. Frá fyrstu hugmynd að heimkomu erum við með þér í hverju skrefi á leiðinni.

24/7 neyðarsími

Ef eitthvað óvænt kemur upp á er neyðarsíminn okkar opinn allan sólarhringinn. Ferðasérfræðingar KILROY eru til staðar fyrir þig, hvar og hvenær sem er.

KILROY leiðin

Bestu ferðirnar enda ekki þegar þú kemur heim. Þær lifa áfram í upplifunum, sögum og minningum sem fylgja þér lengi eftir að ferðinni lýkur.

Hópferðir í Tansaníu

Til að tryggja að ævintýrið þitt verði bæði þægilegt, spennandi og rétt framkvæmt getum við hjá KILROY skipulagt sérsniðnar ferðir og safarí-pakka fyrir þig. Við sjáum um öll smáatriði; frá gistingu til skoðunarferða með reynslumiklum og kunnugum leiðsögumönnum sem þekkja svæðið inn og út!

Hópaferð í Serengeti

Hópaferð í Serengeti

FAQ

Algengar spurningar

Ertu að skipuleggja ferð til Tansaníu? Hér færðu svör við algengustu spurningunum frá ferðasérfræðingum okkar.

Þurrkatímabilið stendur frá júní til október og þá er best að fara í safarí í Tansaníu. Dýrin safnast saman við vatnsból og ár, gróðurinn er minni og auðveldara að sjá ljón, fíl, gíraffa og fleiri dýr.

Frá mars til maí er regntímabil og einnig oft í nóvember. Þá eru færri ferðalangar á ferðinni, gróskumikill gróður og betra verð. Hafðu bara í huga að það rignir meira og sumar leiðir geta verið erfiðari yfirferðar.

Það fer alveg eftir því hvernig þú skipuleggur ferðina. Tansanía er þó einn af dýrari safarí-áfangastöðum í Afríku. Við hjá KILROY erum sérfræðingar í að hámarka ferðabudgetið þitt svo þú fáir sem mest fyrir peninginn!

Langar þig að prófa sjálfboðastarf í Tansaníu? Það er frábært tækifæri til að hafa raunveruleg áhrif með því að taka þátt í verkefnum eins og barnagæslu eða náttúruvernd og dýravinnu. Þú getur líka sameinað sjálfboðastarf við ævintýri eins og safarí og fjallgöngu á Kilimanjaro.

Tansanía er almennt öruggur áfangastaður fyrir ferðalanga sem sýna eðlilega aðgát og fylgja ráðleggingum heimamanna. Landið tekur á móti milljónum gesta á hverju ári og ferðaþjónusta er mikilvægur hluti af efnahag landsins.

Eins og á öllum áfangastöðum er gott að vera meðvitaður um umhverfið sitt, gæta verðmæta og nota traustar samgöngur. Ef þú ert í safarí eða í skipulögðum ferðum sér leiðsögumenn yfirleitt um alla framkvæmd, sem gerir upplifunina bæði þægilega og örugga.

Með góðum undirbúningi og heilbrigðri skynsemi eru allar líkur á að ferðin til Tansaníu verði bæði örugg og ógleymanleg.