FERÐIR TIL ÚGANDA

Ævintýri í Afríku sem fáir vita af
Gróskumiklir regnskógar, einstakt dýralíf og ógleymanleg ævintýri. Úganda er paradís fyrir ævintýraþyrsta ferðalanga.





Dýra- og náttúruupplifanir sem finnast hvergi annars staðar
Úganda er eitt fjölbreyttasta land Afríku og hefur ekki að ástæðulausu fengið viðurnefnið „Perla Afríku“. Hér taka víðáttumiklar gresjur, gróskumiklir regnskógar, eldfjöll og stór vötn hvert við af öðru. Einn stærsti hápunkturinn er að rekast á fjallagórillur í Bwindi þjóðgarðinum, þar sem þú getur upplifað eitt eftirminnilegasta dýraævintýri heims. Ef það er ekki nóg, þá bíða þjóðgarðar á borð við Queen Elizabeth og Murchison Falls með safaríupplifunum þar sem þú getur séð fíla, gíraffa, ljón, flóðhesta og fjölbreytt fuglalíf í sínu náttúrulega umhverfi.

Fjallagórilla með unga sinn í Úganda
Þarftu aðstoð við að skipuleggja ferð til Úganda?
Ferðasérfræðingarnir okkar hjálpa þér að móta ferðahugmyndina, velja áfangastaðina og skipuleggja ferð sem hentar þér.
Ef þú elskar ævintýri, þá er Úganda fyrir þig
Úganda er draumastaður fyrir ævintýri. Einn daginn gætir þú verið á göngu í fornum regnskógi að leita að fjallagórillum og þann næsta að sigla með flóðhestum, fílum og krókódílum á safaríbáti. Frá simpansaleit og safaríferðum til göngu um eldfjallasvæði og river rafting á Níl, býður Úganda upp á ótrúlega fjölbreytt ævintýri í einni ferð. Með stórbrotna náttúru, einstakt dýralíf og hlýlegt viðmót heimamanna býður Úganda upp á upplifanir sem erfitt er að finna annars staðar. Ef þú ert að leita að ferð sem sameinar náttúru, adrenalín og ógleymanleg augnablik, þá er Úganda rétti staðurinn.

Flúðasiglingar í Úganda
Af hverju að velja KILROY fyrir næstu ferðina þína
30+ ára reynsla
Yfir 30 ára reynsla, sérþekking og traustir samstarfsaðilar okkar um allan heim gera þér kleift að ferðast með öryggi og sjálfstrausti.
Persónuleg ferðaráðgjöf
Ferðaráðgjafi sem kynnist þínum óskum, draumum og markmiðum. Frá fyrstu hugmynd að heimkomu erum við með þér í hverju skrefi á leiðinni.
24/7 neyðarsími
Ef eitthvað óvænt kemur upp á er neyðarsíminn okkar opinn allan sólarhringinn. Ferðasérfræðingar KILROY eru til staðar fyrir þig, hvar og hvenær sem er.
KILROY leiðin
Bestu ferðirnar enda ekki þegar þú kemur heim. Þær lifa áfram í upplifunum, sögum og minningum sem fylgja þér lengi eftir að ferðinni lýkur.
Besti tíminn til að ferðast til Úganda
Úganda býður upp á hlýtt loftslag allt árið, en vegna hæðar landsins er hitinn oft þægilegri en víða annars staðar í Austur-Afríku.
Flestir velja að ferðast á þurrkatímabilunum, frá desember til febrúar og júní til september. Þá eru aðstæður sérstaklega góðar fyrir safaríferðir, górillugöngur og aðrar útivistarupplifanir, þar sem stígar eru þurrari og auðveldara að koma auga á villt dýr.
Á regntímabilunum verður landslagið aftur á móti einstaklega gróskumikið og regnskógarnir skarta sínu fegursta. Þó búast megi við skúrum er þetta frábær tími fyrir þá sem vilja upplifa græna og lifandi náttúru, auk þess sem færri ferðalangar eru á ferðinni.
Hvort sem þú velur að ferðast á þurrka- eða regntíma bíða þín stórbrotin náttúruævintýri, einstakt dýralíf og ógleymanlegar upplifanir.

Hús í hálendi Úganda
Algengar spurningar
Allt sem þú vilt vita um Úganda. Frá dýralífi til öryggis og skipulagningarráða.
Úganda er þekktust fyrir fjallagórillurnar sínar sem þú getur hitt í gönguferð í Bwindi Impenetrable National Park. Landið er líka frægt fyrir hefðbundnar safaríferðir, ljón sem klifra í tré, simpansagöngur, upptök Nílarinnar og fjölbreytta menningu.
Besti tíminn til að heimsækja Úganda er á þurrkatímabilunum frá desember til febrúar og júní til september. Þá eru yfirleitt bestu skilyrðin til að sjá dýralíf, fara í gönguferðir til að sjá górillur og njóta útivistar. Þó er hægt að ferðast til Úganda allt árið.
Já. Úganda er eitt af örfáum löndum þar sem þú getur séð fjallagórillur í villtri náttúru. Flestar górillu-gönguferðir fara fram í Bwindi Impenetrable National Park og eru meðal mögnuðustu náttúruupplifana Afríku.
Algjörlega. Í Úganda sameinast klassískar safaríupplifanir og einstök kynni við prímata. Þú getur séð fíla, buffala, flóðhesta, ljón, hlébarða, gíraffa og hundruð fuglategunda í þjóðgörðum landsins. Úganda er eitt fjölbreyttasta safaríland Austur-Afríku.
Úganda er vinsæll áfangastaður meðal ævintýragjarnra ferðalanga. Við vinnum með traustum samstarfsaðilum á staðnum og mælum með að þú fylgir almennum ferðaráðleggingum, sýnir eðlilega varkárni og undirbúir ferðina vel áður en lagt er af stað. Þá er ekkert annað eftir en að njóta ævintýrsins.
Bólusetningar- og heilsukröfur geta verið mismunandi eftir ferðamönnum. Hafðu samband við heilsugæslustöðina þína með góðum fyrirvara fyrir brottför til að fá nýjustu ráðleggingar og tryggja að þú sért vel undirbúin/n fyrir ferðina.
Við mælum með að eyða að minnsta kosti 10-14 dögum í Úganda til að upplifa helstu hápunkta landsins. Þá nærðu að fara í górillu-göngu safaríferðir, hitta simpansa, njóta menningarupplifana og heimsækja þekkta staði eins og Queen Elizabeth National Park og Nílarsvæðið við Jinja. Það er líka vinsælt (og algengt) að sameina ferð til Úganda með heimsókn til Kenýa, Tansaníu og jafnvel Zanzibar.
Í Úganda eru lög og viðhorf til LGBTQ+ samfélagsins mun íhaldssamari en í mörgum vestrænum ríkjum. LGBTQ+ ferðalangar ættu að kynna sér staðbundin lög, siði og opinberar ferðaráðleggingar áður en ferðast er og íhuga vel hvernig þeir vilja ferðast innan landsins.
Margir ferðalangar heimsækja Úganda samt árlega, sérstaklega með skipulögðum hópferðum og safaríupplifunum. Hjá KILROY vinnum við með vönduðum samstarfsaðilum á staðnum sem leggja áherslu á fagmennsku og virðingu fyrir öllum ferðalöngum. Við trúum því að allir eigi skilið að líða vel á ferðalögum og hvetjum þig til að taka upplýstar ákvarðanir byggðar á nýjustu upplýsingum fyrir brottför.
Sýnir 4 / 8 niðurstöður














