Ævintýri gerð af ferðalöngum

Fólk syndir í tærbláum cenote
Um okkur

Af hverju KILROY?

Ferðalög eru meira en bara ferð. Það er fólkið sem þú hittir, ný sjónarhorn og sögurnar sem verða til á leiðinni. Það er þetta sem við lifum fyrir.

Okkar hugmyndafræði

Ferðir fyrir forvitna og ævintýragjarna ferðalanga

Sérsniðið fyrir þig, af sérfræðingum sem lifa fyrir þetta

Sum ferðalög gleymast með tímanum en önnur breyta því hvernig þú sérð heiminn. Að ferðast á KILROY mátann er fyrir þau sem vilja fara alla leið. Fyrir þau sem klífa eldfjöll í sólarupprás, kafa á óþekktum slóðum og segja já við einstökum upplifunum. Ferðalög snúast ekki bara um staðina sem þú heimsækir heldur allt það sem þú upplifir á leiðinni.

Engir tveir ferðalangar eru eins og því ættu ferðir þeirra ekki að vera það heldur. Þú kemur með hugmyndirnar, við komum með reynsluna. Flug, tryggingar, hótel, camperbílar og ævintýraferðir. Segðu okkur að hverju þú ert að leita og við sjáum um restina. Slepptu endalausu Google‑flakki, því ferðaráðgjafar okkar vita hvað raunverulega virkar. Við setjum saman ferðalag sem hentar þínum fjárhagsramma, ferðafélögum, ferðastíl og því sem þig dreymir um að upplifa. Því bestu ævintýrin eru aldrei eins fyrir alla.

Við leggjum mikla áherslu á að finna bestu mögulegu ferðina fyrir þig þar sem virði, gæði og öryggi fara saman. Ferðasérfræðingar okkar eru ekki bara fólk á bak við skrifborð sem selur ferðir. Þeir lifa og hrærast í ferðalögum og koma með bakpoka fullan af eigin reynslu. Við höfum farið í bakpokaferðir, stundað nám erlendis, surfað, farið í road trip og unnið víðs vegar um heiminn. Við höfum gert mistökin, lært trixin og vitum hvað skilur að draumaferð og algert ferðaklúður. Þess vegna gerum við það sem við gerum. Svo þú getir kannað heiminn af öryggi og með sjálfstrausti, vitandi að við stöndum með þér frá því að skipulagningin hefst og þar til þú ert komin/n heim aftur.

Fljótleg og einföld bókun hjá KILROY

1

Hafðu samband

Segðu okkur frá ferðaplönunum þínum, hugmyndum og markmiðum.

2

Deildu plönunum þínum

Við kynnumst þér og því sem þú ert að leita að.

3

Fínstillum smáatriðin

Við mótum þína fullkomnu ferð saman.

4

Bókaðu áhyggjulaus

Við sjáum um smáatriðin svo þú getir einbeitt þér að ævintýrinu.

5

Vertu klár!

Pakkaðu töskunum og byrjaðu að telja niður.

Eða taktu þátt í einu af Tripmates hópævintýrunum okkar

Vertu með í einu af Tripmates hópævintýrunum okkar og upplifðu heiminn með nýjum ferðafélögum. Við sjáum um skipulagið, þú mætir klár í ævintýrið. Tryggðu þér pláss með aðeins 15.000 kr. staðfestingargjaldi.

Teymið okkar

Kynntu þér sérfræðinga okkar

Andlitin á bakvið ævintýrin.

Ferðaráðgjafar okkar hafa ferðast víða, elt sólsetur, fundið leyndar perlur og safnað raunverulegri reynslu. Í dag nýta þeir þessa reynslu til að hjálpa öðrum að skapa sín eigin ævintýri.

Hittu teymi sem brennur fyrir ferðalög, er forvitið um heiminn og alltaf tilbúið að hjálpa þér að skipuleggja næstu ferð.

Þarftu aðstoð við að skipuleggja ferðina þína?

Ferðasérfræðingarnir okkar hjálpa þér að móta ferðahugmyndina, velja áfangastaðina og skipuleggja ferð sem hentar þér.

Starf hjá KILROY

Elskar þú að ferðast? Við líka!

Hjá KILROY leitum við alltaf að forvitnu, ævintýragjörnu fólki sem þorir að fara sínar eigin leiðir. Hvort sem þú starfar sem ferðaráðgjafi eða á bak við tjöldin eigum við eitt sameiginlegt: Ástríðu fyrir að kanna heiminn og hjálpa öðrum að gera það sama.

Ef þetta hljómar eins og staður fyrir þig, þá viljum við heyra frá þér.

Gagnlegar slóðir

Allar stefnur okkar, skýrslur og skilmálar á einum stað!

FAQ

Algengar spurningar

Allt sem þú vilt vita um KILROY á einum stað!

Fyrir okkur snúast ferðalög ekki bara um að komast frá A til B. Þetta snýst um upplifanir, persónulegan vöxt og minningar sem verða til á leiðinni.

Í áratugi höfum við sérhæft okkur í að hjálpa ferðalöngum að kanna heiminn með ævintýraferðum og sérsniðnum ferðalögum. Okkar áhersla hefur alltaf verið á að skapa raunverulegar ferðaupplifanir, ekki bara selja flug og hótel.

Það sem gerir okkur einstök er blanda af sérfræðiþekkingu, eigin reynslu og öflugu neti samstarfsaðila um allan heim. Ferðaráðgjafar okkar þekkja þarfir ævintýraþyrstra ferðalanga því þeir hafa sjálfir verið á ferðinni. Þeir vita hvað virkar, hvað ber að varast og hvernig á að breyta draumaferð í ógleymanlegt ævintýri.

Algjörlega. Ferðalög á fjárhagsáætlun eru hluti af DNA KILROY í áratugi. Við vitum að margir vilja fá sem mest fyrir peninginn án þess að fórna upplifunum. Ferðaráðgjafar okkar hjálpa þér að forgangsraða því sem skiptir mestu, finna snjallar leiðir, mæla með hagkvæmum áfangastöðum og finna tækifæri sem þú hefðir kannski ekki uppgötvað sjálf/ur.

Hvort sem draumurinn er bakpokaferð, tungumálanám eða heimsreisa, þá hjálpum við þér að ferðast lengra, upplifa meira og fá sem mest fyrir peninginn.

Nei. Þó við séum þekkt fyrir hópferðir, hjálpum við líka einstaklingum, pörum, vinum, fjölskyldum og öllum sem vilja ógleymanlegt ævintýri. Við sköpum minningar, hvort sem það er 2 vikna frí eða hringferð um heiminn, þá erum við með þér!

Nánast hvað sem er ævintýralegt! Við hjálpum ferðalöngum að bóka hringferðir um heiminn, bakpokaferðalög, tungumálanám erlendis, sjálfboðaverkefni, road trip, hópferðir og margt fleira.

Já, algjörlega. Hvort sem þú þarft aðstoð með einn hluta ferðarinnar eða vilt að við hjálpum þér að skipuleggja allt frá A til Ö, þá erum við hér til að gera skipulagið einfaldara.

Eftir því hvert þú ætlar og hvernig ferðin þín lítur út getum við hjálpað með flug, gistingu, ferðir, ævintýra-afþreyingar, ferðatryggingar, samgöngur, tungumálanám erlendis, sjálfboðastörf og margt fleira.

Margir ferðalangar koma til okkar með lauslega hugmynd um hvert þeir vilja fara og saman setjum við saman ferðalag sem passar draumum, fjárhagsáætlun og ferðastíl. Markmið okkar er að taka stressið úr skipulaginu svo þú getir einbeitt þér að spennunni framundan.

Nei. Margir þekkja KILROY sem sérfræðinga í ferðum fyrir ungt fólk og nemendur, en í dag hjálpum við ferðalöngum á öllum aldri að kanna heiminn.

Það sem sameinar KILROY ferðalanga er ekki aldurinn heldur hugarfarið. Viðskiptavinir okkar eru forvitnir, opnir og vilja upplifa heiminn á innihaldsríkan hátt. Hvort sem þú ert að taka námspásu, skipuleggja starfshlé, fagna tímamótum eða einfaldlega leita að næsta ævintýri, þá erum við hér til að hjálpa.

Margar af okkar ferðum og upplifunum eru sérstaklega vinsælar hjá yngri ferðalöngum, en það eru engin aldurstakmörk á að vilja kynnast nýjum menningarheimum, ögra sjálfum sér eða safna ógleymanlegum minningum.

Auðvitað geturðu bókað ferðina þína sjálf/ur á netinu, en það er ekki alltaf auðveldasta eða snjallasta leiðin, sérstaklega ef ferðaplanin eru flókin. Hjá KILROY sameinum við þægindin við að bóka á netinu við þekkingu og stuðning reynslumikilla ferðaráðgjafa sem þekkja áfangastaðina, leiðirnar og ferðastílana sem við bjóðum.

Margir af okkar sérfræðingum hafa sjálfir ferðast víða og geta deilt beinum ráðum sem fara langt út fyrir það sem þú finnur í umsögnum eða leitarniðurstöðum. Við hjálpum þér að bera saman valkosti, forðast algeng mistök, finna upplifanir sem þú hefðir ekki hugsað um og setja saman ferðalag sem passar áhugamálum þínum, fjárhagsáætlun og tíma.

Og það mikilvægasta: Við erum til staðar ef eitthvað fer úrskeiðis. Hvort sem þú þarft aðstoð fyrir brottför eða stuðning á ferðalaginu, þá hefurðu teymi á bakvið þig sem vill að ferðin þín verði frábær.

Sýnir 4 / 7 niðurstöður