HA LONG BAY

Ha Long Bay við sólarlag, Víetnam

Einn af þessum áfangastöðum sem þú verður að sjá

Í norðausturhluta Víetnam bíður Ha Long Bay, einn magnaðasti staður landsins. Með þúsundum kalksteinskletta sem rísa upp úr blágrænum flóanum er auðvelt að skilja af hverju svæðið er á óskalista ferðalanga um allan heim. Þetta er einn af þessum stöðum sem lítur jafnvel betur út í raunveruleikanum en á myndunum.

Já, Ha Long Bay er vinsæll ferðamannastaður. En það er af góðri ástæðu. Hvort sem þú siglir á milli klettanna, gistir á báti yfir nótt eða horfir á sólina hverfa bak við sjóndeildarhringinn, þá er upplifunin algjörlega þess virði.

Tilbúin/n að haka við einn glæsilegasta áfangastað Asíu á óskalistanum? Þá er kominn tími á Ha Long Bay.

Sigling á Ha Long Bay í hóp
Ha Long Bay í kayak
Bátar á Ha Long Bay
Yfirsýn yfir Ha Long Bay
Ha Long Bay við sólarlag
Ha Long Bay í dagsbirtu
Njóttu drykkjar á Ha Long Bay

Sigling á Ha Long Bay í hóp

Ha Long Bay í kayak

Bátar á Ha Long Bay

Yfirsýn yfir Ha Long Bay

Ha Long Bay við sólarlag

Ha Long Bay í dagsbirtu

Njóttu drykkjar á Ha Long Bay

Hápunktar og afþreying

Það eru margar leiðir til að upplifa Ha Long Bay. Þú getur siglt um flóann í dagsferð, skoðað hann úr kajak eða, að okkar mati, valið bestu leiðina af öllum: nokkra daga siglingu þar sem þú upplifir kyrrðina að kvöldi til og vaknar við stórkostlegt útsýni yfir kalksteinsklettana í morgunsárið.

Það er líka nóg af tækifærum til að synda, hvort sem það er beint frá bátnum eða við eina af fallegum ströndum svæðisins. Þú getur farið í kajaksiglingu, snorklað, heimsótt hella á borð við Sung Sot, Luon og Dau Go eða einfaldlega notið útsýnisins yfir eitt fallegasta landslag Víetnams.

Ef þú ert að leita að svipaðri upplifun með færri ferðamönnum og oft á hagstæðara verði, mælum við með flóum eins og Bai Tu Long Bay eða Lan Ha Bay. Þar er sérstaklega vinsælt að heimsækja Cat Ba-eyju, þar sem ævintýrin bíða handan við hvert horn. Leigðu hjól, skoðaðu afskekktar víkur, eltu útsýnið og njóttu ferskra sjávarrétta sem kosta ekki mikið, svo að þú eigir enn fyrir næsta ævintýri.

Ha Long Bay

Ha Long Bay

Hvernig kemst þú til Ha Long Bay?

Ha Long Bay er staðsett um 170 km frá Hanoi og það hefur aldrei verið auðveldara að komast þangað. Frá því að nýr hraðvegur tengdi Hanoi og Ha Long City árið 2018 hefur ferðatíminn styst verulega og nú er hægt að komast á áfangastað á aðeins nokkrum klukkustundum með rútu, minivan eða einkabíl.

Ef þú ert að ferðast lengra um Víetnam geturðu einnig flogið til Van Don-flugvallarins, sem er í um 50 km fjarlægð frá Ha Long Bay. Hvort sem þú kemur frá Hanoi eða öðrum hlutum landsins er leiðin einföld og fljótleg. Sem þýðir meiri tíma á báti meðal kalksteinsklettanna og minni tíma á ferðinni.

Yfirsýn yfir sólarlagið í Ha Long Bay, Víetnam

Yfirsýn yfir sólarlagið í Ha Long Bay, Víetnam

Af hverju að velja KILROY fyrir næstu ferðina þína

30+ ára reynsla

Yfir 30 ára reynsla, sérþekking og traustir samstarfsaðilar okkar um allan heim gera þér kleift að ferðast með öryggi og sjálfstrausti.

Persónuleg ferðaráðgjöf

Ferðaráðgjafi sem kynnist þínum óskum, draumum og markmiðum. Frá fyrstu hugmynd að heimkomu erum við með þér í hverju skrefi á leiðinni.

24/7 neyðarsími

Ef eitthvað óvænt kemur upp á er neyðarsíminn okkar opinn allan sólarhringinn. Ferðasérfræðingar KILROY eru til staðar fyrir þig, hvar og hvenær sem er.

KILROY leiðin

Bestu ferðirnar enda ekki þegar þú kemur heim. Þær lifa áfram í upplifunum, sögum og minningum sem fylgja þér lengi eftir að ferðinni lýkur.

Þarftu aðstoð við að skipuleggja ferð til Ha Long Bay?

Ferðasérfræðingarnir okkar hjálpa þér að móta ferðahugmyndina, velja áfangastaðina og skipuleggja ferð sem hentar þér.