BRÚÐKAUPSFERÐIR
Sjá allar ferðir
Fyrsta ævintýrið sem hjón
Ekki alveg spennt/ur fyrir að eyða tveimur vikum á sama hótelinu? Brúðkaupsferðin getur verið svo miklu meira!
Valdar brúðkaupsferðir
Handvaldar upplifanir sem vert er að skoða
Gerið draumaferðina að veruleika
Brúðkaupsferðin er fullkomið tækifæri til að láta draumaferðina rætast. Ferðina sem hefur setið á bucket listanum árum saman. Kannski er það road trip um Ástralíu, safarí í Tansaníu, köfun í Indónesíu eða eyjahopp í Tælandi og á Maldíveyjum. Hvert sem draumaferðalagið liggur hjálpum við þér að skapa brúðkaupsferð sem þið munið aldrei gleyma.
Takið köfunarréttindin saman.
Af hverju ekki að velja Japan?
Leigðu campervan og rúllaðu af stað.
Ganga við sólarupprás sem þú gleymir aldrei.
Sameinaðu safarí og strendur í brúðkaupsferðinni.
Bestu áfangastaðirnir fyrir brúðkaupsferðir utan Evrópu
Fjölbreytt úrval af brúðkaupsferða-áfangastöðum!
Þarftu aðstoð við að skipuleggja brúðkaupsferð?
Ferðasérfræðingarnir okkar hjálpa þér að móta ferðahugmyndina, velja áfangastaðina og skipuleggja ferð sem hentar þér.
Hvernig skipuleggur þú fullkomna brúðkaupsferð?
Það er engin ein rétt leið til að skipuleggja fullkomna brúðkaupsferð. Fyrir sum pör er það all-inclusive resort. En ef þið eruð meira fyrir road trip um Nýja Sjáland, safarí í Suður-Afríku, köfun í Indónesíu eða blöndu af ströndum, borgum og ævintýrum, þá er KILROY með ykkur í liði. Bestu ferðirnar eru oft þær sem endurspegla hvernig þið viljið ferðast saman. Það getur líka verið sniðugt að blanda saman fleiri en einum áfangastað, sérstaklega þegar sniðugar flugsamgöngur gera það auðvelt að bæta við stoppi sem gerir ferðina enn sérstakari. Ferðasérfræðingarnir okkar hjálpa þér að tengja þetta allt saman, frá leiðum og afþreyingu til þeirra augnablika sem gera ferðina 100% ykkar!
Monteverde er fullkomin dagsferð í Costa Rica.
Kristaltært vatn = brúðkaupsferðar-stemning.
Náttúran beint fyrir utan dyrnar.
Bættu göngu við ferðaplanið!
Farðu í kayak í Asíu.
Algengar spurningar
Það fylgja margar spurningar því að skipuleggja brúðkaupsferð. Hér eru nokkrar af þeim algengustu!
Því fyrr, því betra. Að skipuleggja snemma gefur þér yfirleitt fleiri valkosti í flugi, gistingu og upplifunum. Sérstaklega ef þú ferðast á háannatíma eða hefur augastað á ákveðnu safarí-ævintýri, köfunarstað eða sérstökum gististað. En mundu að flugfélög opna oft ekki fyrir bókanir fyrr en 11-12 mánuðum fyrir brottför, svo það borgar sig að byrja að skipuleggja snemma þó flugbókanir séu ekki strax í boði. Að byrja snemma gefur þér líka meiri tíma til að byggja upp ferðaplan sem passar fullkomlega fyrir þig og tryggir að þú fáir sem mest fyrir peninginn!
Algjörlega! Mörg pör velja að blanda saman áfangastöðum til að fá fjölbreytta upplifun. Þið gætuð t.d. sameinað safarí og stranddvöl, borgarferð og road trip, eða heimsótt nokkrar hitabeltiseyjar í sömu ferðinni. Með góðri skipulagningu og réttum flugsamgöngum er þetta oft auðveldara en þið haldið.
Vinsælar samsetningar:
Sri Lanka og Maldíveyjar
Nýja-Sjáland og Fiji-eyjar
Japan og Filippseyjar
Balí og Gili-eyjar
Tansanía og Sansibar
Vesturströnd Bandaríkjanna og Hawaii
Vinsæl ævintýri eins og köfun, siglingar og safaríferðir fyllast oft fljótt. Við hjálpum þér að bóka upplifanirnar fyrirfram svo allt sé klárt þegar ferðin hefst.
Það er engin föst uppskrift að því hvað brúðkaupsferð kostar. Verðið fer eftir áfangastað, lengd ferðarinnar og þeim upplifunum sem þið viljið bæta við á leiðinni. Safarí, köfunarferðir og dvöl á afskekktum eyjum geta hækkað kostnaðinn, en það þarf ekki endalaust budget til að eiga ógleymanlega ferð. Með góðu skipulagi er oft hægt að fá meira út úr budgetinu. Við hjálpum ykkur að finna réttu dagsetningarnar, flugleiðirnar og upplifanirnar svo brúðkaupsferðin verði nákvæmlega eins og þið viljið hafa hana.
Safarí: Upplifið stórkostlegt dýralíf, fallega náttúru og ógleymanleg augnablik saman.
Snorklun og köfun: Kafið ofan í heim litríkra kóralrifa, sjávarskjaldbaka og einstaks sjávarlífs.
Road trip: Ferðist á ykkar eigin hraða, uppgötvið falda gimsteina og stoppið þar sem ykkur sýnist.
Gönguferðir: Takið á ykkur áskorun og njótið ótrúlegs útsýnis þegar þið náið toppnum saman.
Matreiðslunámskeið: Kynnist staðbundinni matarmenningu og lærið að elda rétti sem minna ykkur á ferðina.
Zipline: Bætið smá adrenalíni við brúðkaupsferðina og svífið yfir stórbrotinni náttúru.
Eyjahopp: Uppgötvið fleiri en eina eyju og njótið fjölbreyttra stranda, menningar og ævintýra.
Surfkennsla: Prófið eitthvað nýtt saman eða bætið tæknina á öldunum.
Sýnir 4 / 5 niðurstöður
Þú ættir að skipuleggja brúðkaupsferðina með KILROY ef þú...
...vilt brúðkaupsferð sem er sérsniðin að ykkur
Við hjálpum þér að setja saman ferð sem passar við ferðastílinn ykkar, áhugamál og fjárhag.
...vilt blanda saman slökun og ævintýrum
Hvort sem það eru road trip, safarí, köfun eða eyjadvöl, þá hjálpum við ykkur að finna rétta jafnvægið í ferðinni.
...vilt fá hjálp við að tengja alla punktana
Við sjáum um flug, gistingu og skipulag svo þið getið ferðast með hugarró.










































