PARAFERÐIR
Sjá allar ferðir
Lykillinn að draumaferðinni og nýjum minningum
Viljið þið ferð sem er nógu stutt til að passa inn í frídagana ykkar, en samt nógu löng til að verða alvöru ævintýri?
Valdar ferðir fyrir tvo
Við höfum tekið saman nokkrar af okkar ævintýralegustu ferðum fyrir pör sem vilja meira!
Veldu áfangastaði sem henta pörum
Sumir áfangastaðir eru frábærir, en sem par eru það oft staðirnir með meira rými, meiri náttúru og færra fólk sem skapa bestu upplifunina. Hvort sem þið farið í road trip, skoðið afskekkt landsvæði eða dveljið á rólegum áfangastað, þá gefst ykkur tími til að njóta augnablikanna saman. Þetta snýst minna um að sjá allt og meira um að upplifa ferðina saman.
Stígðu út fyrir þægindarammann.
Taktu PADI köfunarréttindin þín í Egyptalandi.
Sjáðu kirsuberjablómin í Japan.
Lærið að surfa saman.
Snorklun við Great Barrier Reef.
Hver er draumaáfangastaðurinn ykkar?
Skoðið áfangastaðina okkar og byrjið að skipuleggja næsta ævintýri!
Þarftu aðstoð við að skipuleggja paraferð?
Ferðasérfræðingarnir okkar hjálpa þér að móta ferðahugmyndina, velja áfangastaðina og skipuleggja ferð sem hentar þér.
Safarí, gönguferðir og suðrænt ævintýri
Okkar ráð: Ekki festast í að merkja við sem flesta staði. Bestu ferðaminningarnar verða oft til þegar þið prófið eitthvað nýtt saman. Það gæti verið að sjá villt dýr við sólarupprás, læra að kafa, takast á við margra daga göngu eða lenda í óvæntu ævintýri sem var aldrei á ferðaplaninu.
Þetta eru sögurnar sem þið segið aftur og aftur, því þær eru sameiginlegar, ógleymanlegar og allt öðruvísi en hversdagslífið.
Gengið að Machu Picchu í Perú.
Sjáðu Big 5 í Suður-Afríku.
Hefur þú prófað canyoning?
Fylgdu fossunum.
Strendur í Asíu.
Hvernig viljið þið ferðast?
Road trip, safarí, eyjahopp eða kannski blanda af ferðastílum?
Fyrir LGBTQ pör
Margir áfangastaðir eru öruggir og opnir fyrir LGBTQ+ ferðalanga, á meðan aðrir eru íhaldssamari. Á sumum stöðum getur verið skynsamlegt að kynna sér aðstæður fyrirfram og hafa staðbundnar venjur og viðhorf í huga.
Það þýðir þó ekki að þessir áfangastaðir séu ekki þess virði að heimsækja. Þvert á móti bjóða margir þeirra upp á stórkostlega náttúru, einstaka gistingu og ógleymanlegar upplifanir fyrir pör. Oft snýst þetta einfaldlega um að vera upplýst og ferðast á þann hátt sem hentar aðstæðum hverju sinni.
Með réttu ráðgjöfinni geturðu fundið áfangastaði og upplifanir þar sem ykkur líður vel og þið getið notið tímans saman. Hvort sem það er á opinskálega LGBTQ+-vænum stað eða á áfangastað þar sem gott er að kynna sér menninguna og aðstæður fyrirfram.

Ferðastu sem LGBTQ par.
Algengar spurningar
Ertu með spurningar? Engar áhyggjur, við höfum svörin um hvernig þú skipuleggur og bókar draumaferðina þína!
Það eru ótal magnaðir staðir um allan heim til að ferðast til með maka!
Við mælum sérstaklega með:
Japan: Fullkomið fyrir pör sem vilja blanda saman menningu, frábærum mat, fallegum lestarferðum og öllu frá iðandi borgum til kyrrlátra sveita.
Tæland: Uppáhalds hjá mörgum pörum: eyjar, góður matur, litlir gististaðir og tækifæri til að blanda saman afslöppun og ævintýrum.
Ástralía: Tilvalið fyrir pör sem elska road trip, strandlínur, sérstakt dýralíf og vilja ferðast á eigin hraða.
Nýja-Sjáland: Hentar pörum sem elska road trip, stórbrotna náttúru og frelsið til að skapa sitt eigið ævintýri.
Suður-Afríka: Sameinar safarí, vínhéruð, strandakstur og frábæran mat.
Indónesía: Frá Balí til Gili-eyja finnur þú eyjahopp, köfun, eldfjöll og fullt af upplifunum til að njóta saman.
Mexíkó: Frábær blanda af ströndum, menningu, mat og ævintýrum, allt frá cenotes til Karíbahafsstranda.
Srí Lanka: Þekkt fyrir dýralíf, fallegar lestarferðir, surfbæi og afslappað strandlíf sem gerir það auðvelt að setja saman fjölbreytta ferð.
Perú: Dreymir ykkur um að ganga að Machu Picchu saman? Auk Inka-slóðarinnar er Perú þekkt fyrir stórkostlegan mat og menningu!
Besti ferðatíminn fer eftir því hvert þið ætlið að fara. Ef draumurinn er Ástralía eða Nýja-Sjáland eru sumarmánuðirnir frá desember til febrúar vinsælir fyrir road trip, strandlíf og útivist. Í Suður-Afríku er þurrkatímabilið frá maí til september yfirleitt best fyrir safarí, en sumarið hentar vel til að skoða Cape-svæðið.
Í Suðaustur-Asíu, eins og í Tælandi og Víetnam, er vinsælt að ferðast frá nóvember til apríl þegar veðrið er þurrara. Á Balí og víðar í Indónesíu er þurrkatímabilið frá apríl til október oft talið besti ferðatíminn.
Ertu ekki viss hvert eða hvenær þú átt að fara? Við hjálpum þér að finna rétta áfangastaðinn.
Nánast hvað sem er! Hvort sem draumurinn er safarí-lodge í Suður-Afríku, boutique-hótel í Japan, strandbungaló í Tælandi, campervan í Ástralíu eða heimagisting hjá heimafólki, þá hjálpum við ykkur að finna gistingu sem passar ferðinni.
Þið getið jafnvel blandað saman ólíkum tegundum gistingar á leiðinni til að gera ferðina enn persónulegri. Klassísk strandhótel og all-inclusive eru vissulega í boði, en hjá KILROY er hægt að gera svo miklu meira.
Safarí: Upplifið villta náttúru saman, frá morgunferð í safarí til kvölda undir stjörnubjörtum himni.
Snorklun og köfun: Kannið litrík rif, sjávarlíf og neðansjávarheima og sjáið áfangastaðinn frá nýju sjónarhorni.
Road trip: Ein besta leiðin fyrir pör til að ferðast. Þið ráðið ferðinni sjálf og finnið áhugaverða staði á leiðinni.
Gönguferðir: Hvort sem það eru stuttar dagsgöngur eða lengri ævintýri, þá er það alltaf spennandi að ná toppnum saman.
Matreiðslunámskeið: Lærðu staðbundnar uppskriftir, smakkaðu ný brögð og taktu minningar með heim.
Zipline: Smá adrenalín í ferðina og útsýni sem þú færð ekki frá jörðu.
Eyjahopp: Skoðaðu nokkrar eyjar í einni ferð og blandaðu saman ströndum, staðbundinni menningu og útivist.
Surfkennsla: Farið saman út á öldurnar, hvort sem þetta er í fyrsta skipti eða þið eruð reyndir surfarar.
Þú ættir að skipuleggja ferðina með KILROY ef þú...
...vilt að fríið þitt sé sniðið sérstaklega að þér
Við hjálpum þér að setja saman ferð sem passar við þinn ferðastíl, áhugamál og fjárhag.
...vilt blanda saman afslöppun og ævintýrum
Frá road trip og safarí yfir í köfun og eyjahopp. Við hjálpum þér að finna rétta jafnvægið.
...vilt fá hjálp við að tengja saman alla þætti ferðarinnar
Við sjáum um allt skipulagið, með stuðning allan sólarhringinn ef á þarf að halda.





























































