FERÐIR TIL PERÚ

Machu Picchu, Perú
Um áfangastaðinn

Ævintýri frá frumskógi til fjallatinda

Perú sameinar stórkostlega náttúru, ríka menningu og ógleymanleg ævintýri, allt frá Andesfjöllum til Amazon-regnskógarins.

Machu Picchu, Perú
Sandbretti í Huacachina
Lares-gangan
Upplifðu menningu Inkanna í Perú
Upplifðu menningu Inkanna í Perú

Paradís fyrir göngugarpa og náttúruunnendur

Frá snjóþöktum fjallstindum og djúpum gljúfrum til þokuskóga og Amazon-regnskógarins er Perú eitt besta útivistarland Suður-Ameríku. Hér finnur þú nokkrar af þekktustu gönguleiðum álfunnar, þar á meðal hina goðsagnakenndu Inka-leið að Machu Picchu, en líka fjölmargar minna þekktar slóðir sem bíða þess að verða kannaðar. Gakktu um stórbrotið landslag Andesfjalla, dáðstu að litríkum hlíðum Regnbogafjallsins eða leggðu leið þína inn í Cordillera Blanca, þar sem jöklar, fjallavötn og tignarlegir tindar skapa einstaka umgjörð fyrir næsta ævintýri.

Lares-gangan í Perú

Lares-gangan í Perú

Þarftu aðstoð við að skipuleggja ferð til Perú?

Ferðasérfræðingarnir okkar hjálpa þér að móta ferðahugmyndina, velja áfangastaðina og skipuleggja ferð sem hentar þér.

Menning, saga og bragðtegundir

Menning Perú er einstök blanda af arfleifð Inkanna, hefðum frumbyggja og spænskum áhrifum. Um allt land má finna líflega markaði, hefðbundnar hátíðir og samfélög sem hafa varðveitt siði sína í gegnum kynslóðir.

Maturinn er líka stór hluti af upplifuninni. Perú er þekkt sem eitt fremsta matarríki heims og réttir á borð við ceviche og lomo saltado hafa unnið sér sess meðal ferðalanga alls staðar að úr heiminum. Hvort sem þú ert að smakka götumat, heimsækja staðbundna markaði eða taka þátt í matreiðslunámskeiði, þá kynnist þú menningu landsins best í gegnum bragðlaukana.

Hefðbundinn máltíð í Perú

Hefðbundinn máltíð í Perú

Af hverju að velja KILROY fyrir næstu ferðina þína

30+ ára reynsla

Yfir 30 ára reynsla, sérþekking og traustir samstarfsaðilar okkar um allan heim gera þér kleift að ferðast með öryggi og sjálfstrausti.

Persónuleg ferðaráðgjöf

Ferðaráðgjafi sem kynnist þínum óskum, draumum og markmiðum. Frá fyrstu hugmynd að heimkomu erum við með þér í hverju skrefi á leiðinni.

24/7 neyðarsími

Ef eitthvað óvænt kemur upp á er neyðarsíminn okkar opinn allan sólarhringinn. Ferðasérfræðingar KILROY eru til staðar fyrir þig, hvar og hvenær sem er.

KILROY leiðin

Bestu ferðirnar enda ekki þegar þú kemur heim. Þær lifa áfram í upplifunum, sögum og minningum sem fylgja þér lengi eftir að ferðinni lýkur.

Ógleymanlegir staðir í Perú

Huacachina

Ímyndaðu þér græna ,,oasis'' umlukta risastórum sandöldum. Huacachina, skammt frá bænum Ica, er einn sérstæðasti áfangastaður Perú og fullkominn fyrir þá sem vilja bæta smá adrenalíni við ferðina. Stökktu upp í sandbuggy og þeysistu yfir öldurnar áður en þú prófar sandbrettun niður brattar hlíðarnar. Þegar kvölda tekur skaltu finna góðan stað til að horfa á sólsetrið lita eyðimörkina gullna og njóta einstaks útsýnis yfir þessa mögnuðu eyðimerkurvin.

Huacachina, Perú
Machu Picchu, Perú
Cusco, Perú
Regnbogafjallið, Perú
Amazon regnskógurinn, Perú
Titicaca vatn, Perú
Colca-gljúfrið, Perú
Lima, Perú

Huacachina, Perú

Machu Picchu, Perú

Cusco, Perú

Regnbogafjallið, Perú

Amazon regnskógurinn, Perú

Titicaca vatn, Perú

Colca-gljúfrið, Perú

Lima, Perú

Hvernig ferðast maður um Perú?

Perú er stórt og fjölbreytt land, en það er auðveldara að ferðast um það en margir halda. Ef þú ert í bakpokaferðalagi eru bakpokaferðapassar okkar þægileg og sveigjanleg leið til að komast á milli vinsælustu áfangastaða landsins. Á leiðinni hittirðu aðra ferðalanga og getur ferðast auðveldlega á milli staða eins og Lima, Huacachina, Arequipa, Cusco og Titicaca-vatns.

Ef þú vilt frekar láta einhvern annan sjá um skipulagið gæti hópferð verið rétti kosturinn. Þá færðu að upplifa Perú með öðrum ferðalöngum, ásamt leiðsögn heimamanna sem þekkja landið best.

Langar þig í ferð sem er sniðin að þér? Þá hjálpum við þér að setja saman draumaferðina, hvort sem þú vilt ganga til Machu Picchu, skoða Amazon-regnskóginn, kafa ofan í matarmenninguna eða blanda Perú við aðra spennandi áfangastaði í Suður-Ameríku. Sama hvernig þú ferðast, hjálpum við þér að finna þína leið um Perú.

Taktu þátt í hópferð um Perú

Taktu þátt í hópferð um Perú

Hvenær er best að ferðast til Perú?

Perú er áfangastaður sem hægt er að heimsækja allt árið um kring, en besti ferðatíminn fer eftir því hvert ferðinni er heitið.

Þurrkatímabilið, sem stendur yfir frá maí til október, er vinsælasti tíminn til að skoða Andesfjöllin og fara í gönguferðir, enda eru veðurskilyrði þá yfirleitt best.

Þetta er einnig háannatími fyrir Machu Picchu og Inka-leiðina, svo gott er að bóka með góðum fyrirvara. Athugaðu að Inka-leiðin er lokuð í febrúar ár hvert vegna viðhalds.

Rigningartímabilið stendur yfir frá nóvember til mars. Þá getur verið blautara í fjallahéruðum landsins, en á móti er þetta góður tími til að heimsækja ströndina eða Amazon-regnskóginn.

Loftslagið er mjög mismunandi eftir landsvæðum. Eyðimerkursvæði á borð við Huacachina eru vinsæl allt árið á meðan Amazon er heitt og rakt óháð árstíð. Sama hvenær þú ferð býður Perú upp á ógleymanleg ævintýri, það snýst einfaldlega um að velja rétta svæðið á réttum tíma.

Rainbow Mountain að vetri til

Rainbow Mountain að vetri til

FAQ

Algengar spurningar

Allt sem þú þarft að vita áður en þú skipuleggur ævintýrið þitt í Perú.

Við mælum með að þú gefir þér að minnsta kosti 2-3 vikur til að upplifa helstu hápunkta Perú. Þá hefurðu nægan tíma til að heimsækja Lima, Cusco, Machu Picchu, Sacred Valley og jafnvel Titicaca-vatn eða Amazon. Ef þú vilt skoða afskekktari svæði eða sameina Perú við nágrannalönd, þá eru 4 vikur eða meira tilvalið.

Algjörlega. Perú er eitt vinsælasta bakpokaferðalands Suður-Ameríku þökk sé blöndu af menningu, ævintýrum, náttúru og þægilegum ferðaleiðum. Auðvelt er að hitta aðra ferðalanga og það eru fullt af hostelum, rútuferðum og afþreyingu sem hentar sérstaklega þeim sem eru í bakpokaferðalagi.

Ekki endilega. Þú getur komist til Machu Picchu með lest frá Cusco ef þú vilt ekki ganga. Ef þú ætlar hins vegar að fara Inka-leiðina eða aðra lengri gönguleið, þá hjálpar það að vera í þokkalegu formi til að njóta ferðarinnar betur.

Flestir ferðalangar hafa heyrt um hina frægu Inka-leið, en hún er langt frá því að vera eina leiðin til Machu Picchu. Inka-leiðin er klassísk, þar sem þú ferð í gegnum þokuskóga, fornar Inka-rústir og fjallaskörð áður en þú kemur að Sólhliðinu með útsýni yfir Machu Picchu. Vegna takmarkaðra leyfa selst hún oft upp mánuðum fyrirfram.

Ef þú vilt aðra valkosti er Salkantay Trek ein vinsælasta leiðin í Perú. Sú leið tekur þig framhjá snjóþöktum fjöllum, túrkísbláum vötnum og afskekktum Andes-landslagi áður en þú ferð niður í þokuskóginn. Lares Trek býður upp á meiri menningarupplifun, þar sem þú ferð um hefðbundin þorp þar sem heimamenn lifa enn líkt og þeir hafa gert í kynslóðir. Fyrir þá sem vilja blanda saman ævintýrum er Inca Jungle Trek blanda af göngu, hjólreiðum og annarri útivist.

Hvaða leið sem þú velur, þá er það ógleymanleg upplifun að ganga til Machu Picchu. Margir ferðalangar telja það eitt besta ferðalag Suður-Ameríku.

Já, klárlega. Inka-leiðin er ein eftirsóttasta gönguferð Suður-Ameríku og perúsk stjórnvöld takmarka fjölda leyfa sem eru í boði á dag.

Á háannatíma, sérstaklega frá maí til september, geta leyfin selst upp nokkrum mánuðum fyrirfram. Ef Inka-leiðin er eitt helsta markmiðið í ferðinni þinni til Perú mælum við með að þú tryggir þér leyfi eins snemma og mögulegt er.

Ef leyfi eru ekki í boði, ekki örvænta. Aðrar leiðir eins og Salkantay Trek og Lares Trek bjóða upp á jafn stórbrotið landslag og eru oft með betra aðgengi.

Algjörlega, og það er einmitt ástæða þess að Perú er svo frábær áfangastaður. Flestir ferðalangar koma ekki eingöngu til að ganga. Þeir blanda saman útivist, menningarupplifun, dýralífi og tíma til að slaka á.

Dæmigerð ferð gæti verið að smakka matarmenningu Lima, eyða nokkrum dögum í Cusco og Sacred Valley, ganga til Machu Picchu, heimsækja Titicaca-vatn og enda á nokkrum dögum í Amazon-frumskóginum. Aðrir bæta við sandbrettun í Huacachina, dýraathugunum í Paracas eða göngu í gegnum Colca-gljúfur.

Þar sem Perú býður upp á svo fjölbreytt landslag og afþreyingu er auðvelt að setja saman ferð sem blandar ævintýrum, menningu og náttúru án þess að vera á hlaupum allan tímann. 

Sýnir 4 / 6 niðurstöður