Námspása í Ástralíu
Um starfshlé

Taktu þér pásu frá vinnunni og gefðu þér tíma fyrir lífið

Starfshlé gefur þér frelsi til að stíga út úr rútínunni og eyða tímanum í það sem þig hefur alltaf langað að gera: Að ferðast.

Gerðu starfshléið þitt einstakt

Starfshlé þarf ekki að vera eins og hefðbundið gap year. Kannski hefur þú verið að vinna í nokkur ár og þarft smá pásu frá rútínunni. Kannski ert þú að skipta um starf og vilt nýta tímann á milli til að ferðast. Eða kannski hefurðu einfaldlega áttað þig á því að lífið snýst um meira en að safna upp nokkrum vikum af sumarleyfi.

Hver sem ástæðan er, þá geturðu mótað starfshléið þitt eftir þínum áhugamálum, markmiðum og fjárhagsáætlun. Farðu í bakpokaferðalag um Asíu, ferðastu milli landa í Suður-Ameríku, lærðu nýtt tungumál, taktu þátt í sjálfboðastarfi eða skelltu þér loksins í þá göngu sem hefur lengi verið á óskalistanum.

Og þú þarft ekki að velja bara eitt. Starfshlé er þinn tími. Blandaðu saman ólíkum ferðategundum, upplifunum og áfangastöðum til að skapa ævintýri sem hentar þér.

Farðu í road trip um Ástralíu
Taktu loksins ferðina til Perú
Farðu í safari í Botsvana
Fjallganga í Patagóníu

Farðu í road trip um Ástralíu

Taktu loksins ferðina til Perú

Farðu í safari í Botsvana

Fjallganga í Patagóníu

Þarftu aðstoð við að skipuleggja starfshléið þitt?

Ferðasérfræðingarnir okkar hjálpa þér að móta ferðahugmyndina, velja áfangastaðina og skipuleggja ferð sem hentar þér.

Farðu lengra án þess að þurfa að skipuleggja allt sjálf/ur

Að skipuleggja lengri ferð getur verið eins og fullt starf út af fyrir sig. Hvaða lönd á að heimsækja? Hversu lengi á að stoppa? Þarftu vegabréfsáritun? Hver er besta leiðin til að ferðast á milli staða? Og hvernig passar þetta allt saman við fjárhagsáætlunina þína?

Þarna kemur KILROY inn. Ferðaráðgjafinn þinn hjálpar þér að breyta hugmyndum í raunhæfa ferð, frá vali á áfangastöðum og flugum yfir í bókanir á gistingu, samgöngum og ævintýrum. Þú getur verið með mikilvægustu hlutina á hreinu áður en þú leggur af stað  en samt haft nægan sveigjanleika til að breyta plönum á leiðinni.

Hvort sem þú veist nákvæmlega hvert þú vilt fara eða veist bara að þú þarft pásu, þá hjálpum við þér að klára restina!

Ferðastu um Suðaustur-Asíu
Eyðu mánuði í Suður-Afríku
Uppgötvaðu hvítar strendur í Belís
Farðu í road trip um Bandaríkin og Kanada
Gakktu að Machu Picchu í Perú

Ferðastu um Suðaustur-Asíu

Eyðu mánuði í Suður-Afríku

Uppgötvaðu hvítar strendur í Belís

Farðu í road trip um Bandaríkin og Kanada

Gakktu að Machu Picchu í Perú

Hvað geturðu gert í starfshléi?

Starfshléið þitt getur verið eins virkt, afslappað eða ævintýralegt og þú vilt. Það eru engar reglur sem segja að þú þurfir að eyða sex mánuðum í bakpokaferðalagi milli hostela.

  • Bakpokaferðalag: Ferðastu um nokkur lönd, fylgdu leiðinni sem þig hefur alltaf dreymt um og gefðu þér tíma til að upplifa hvern stað til fulls.

  • Lærðu eitthvað nýtt: Nýttu tímann til að læra að surfa, taka tungumálanámskeið, fá köfunarréttindi eða tileinka þér nýja hæfni.

  • Sjálfboðaliðastarf erlendis: Sameinaðu ferðalög og verkefni sem skipta þig máli. Taktu þátt í náttúruvernd, samfélagsverkefnum, umhverfisstarfi eða öðrum ábyrgum sjálfboðaverkefnum.

  • Vertu virkur: Nýttu tímann í eitthvað sem þú hefur aldrei haft tíma fyrir heima. Gakktu um frumskóga, klífðu fjöll, kafaðu við kóralrif eða taktu þátt í margra daga ævintýri.

  • Farðu í road trip: Leigðu bíl eða campervan og skoðaðu heiminn á þínum hraða. Road trip er frábær leið til að komast út fyrir alfaraleið og njóta þess frelsis að geta breytt plönum á leiðinni.

Lærðu að kafa
Ferð til Suðurskautslandsins
Road trip um Ástralíu
Gönguferð að Everest Basecamp í Nepal

Lærðu að kafa

Ferð til Suðurskautslandsins

Road trip um Ástralíu

Gönguferð að Everest Basecamp í Nepal

FAQ

Algengar spurningar

Að skipuleggja lengri ferð vekur oft margar spurningar. Hér eru nokkur atriði sem gott er að vita áður en þú ferð í námspásu.

Það fer alveg eftir því hvað þú vilt fá út úr pásunni þinni. Ástralía og Nýja-Sjáland eru frábærir kostir ef þú vilt náttúru, road trip og útivistarævintýri. Suðaustur-Asía hentar vel ef þú vilt hagkvæma langtímaferð, strendur, menningu og góða aðstöðu fyrir bakpokaferðalanga. Mið-Ameríka er toppval fyrir surf, eldfjöll, dýralíf og útivist.

Algjörlega. Þetta er einmitt eitt af því besta við að taka sér starfshlé. Þú getur byrjað á tungumálanámskeiði, skellt þér í hópferð, varið nokkrum vikum í sjálfboðastarf og endað á road trip eða afslöppun á ströndinni.

Ekki endilega. Það er oftast góð hugmynd að plana það mikilvægasta, eins og millilandaflug, vegabréfsáritanir, lykilupplifanir og fyrstu nóttina eða tvær í gistingu. Eftir það geturðu leyft þér meiri sveigjanleika. Ferðaráðgjafi hjá KILROY getur hjálpað þér að finna rétta jafnvægið á milli þess að hafa plan og halda möguleikunum opnum.

Það þarf ekki að vera þannig. Kostnaðurinn fer eftir því hvert þú ferð, hversu lengi þú ert á ferðalagi og hvernig þú velur að ferðast. Suðaustur-Asía og sum svæði í Mið-Ameríku geta verið hagkvæmir kostir, á meðan Ástralía og Nýja-Sjáland krefjast yfirleitt stærri fjárhagsáætlunar. Við hjálpum þér að setja saman ferð sem hentar bæði fjárhagnum þínum og þeim tíma sem þú hefur.

Þú þarft ekki að plana langt ferðalag ein/n. KILROY hefur hjálpað ferðalöngum að skipuleggja stór ævintýri í meira en 30 ár. Þú færð persónulega ráðgjöf frá sérfræðingi sem hjálpar þér að setja púslin saman, finna réttu upplifanirnar og sjá til þess að allt hagnýtt sé á hreinu fyrir ferðina.

Sýnir 4 / 5 niðurstöður

Þú ættir að taka starfshlé ef...

...þú finnur að þú þarft breytingu

Stundum þarftu ekki annað frí. Þú þarft alvöru pásu frá rútínunni til að átta þig á hvað kemur næst.

...þig hefur alltaf langað að ferðast lengur

Draumaferðin þarf ekki að passa inn í sumarfríið. Starfshlé gefur þér frelsi til að taka þér tíma og upplifa heiminn á eigin forsendum.

...þú vilt meira en venjulegt frí

Lærðu tungumál, taktu þátt í sjálfboðastörfum, farðu í nýtt ævintýri eða prófaðu eitthvað sem þú hefðir annars ekki tíma fyrir.